Fréttablaðið - 27.11.2005, Page 2
2 27. nóvember 2005 SUNNUDAGUR
������
�����������
������������
�������������������
�������������������
���������������������
����������������
��������������������
� �����������������������������������
�������������������������
���������������
����������
METSÖLULISTI
EYMUNDSSON
barnabækur / 9. nóv
BERLÍN, AP Angela Merkel, kansl-
ari Þýskalands, lét hafa eftir
sér í gær að hún vonaðist til að
sýna Þjóðverjum „ljósið við enda
ganganna“ er hin nýja ríkisstjórn
hennar einhendir sér í að snúa
gangi efnahagslífsins aftur til
betri vegar.
Merkel tjáði götublaðinu Bild
að hún ætlaðist til að stjórnin,
samsteypustjórn íhalds- og jafn-
aðarmanna, yrði dæmd af verk-
um sínum, einkum hvernig henni
tækist til við að draga úr atvinnu-
leysinu, sem nú er um ellefu pró-
sent í þessu mesta efnahagsveldi
Evrópu. ■
Merkel um framhaldið:
Ljós við enda
ganganna
„Í GÓÐUM HÖNDUM“ Merkel kanslari
stappar stálinu í þjóð sína á iðnþingi í
Düsseldorf á föstudag. MYND/AP
GARÐABÆR Félagsmálaráðuneyt-
ið hefur úrskurðað að ekki sé
hægt að staðhæfa að Jón Ottó
Guðmundsson, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokks í skipulagsnefnd
Garðabæjar, hafi verið vanhæf-
ur til að taka þátt í breytingu á
aðalskipulagi í Urriðaholti, landi
í eigu styrktar- og líknarsjóðs
Oddfellow-reglunnar, í vor þó að
hann sé virkur félagi í Oddfellow
og hafi gegnt þar efstu embætt-
um, meðal annars í umræddum
sjóði.
Ráðuneytið segir jafnframt
að hagsmunir reglunnar tengist
afgreiðslu skipulagstillögunnar.
Það sé hlutverk skipulagsnefnd-
ar að meta hvort seta mannsins
í Oddfellow-reglunni og þátttaka
hans í ákvörðunum skipulags-
nefndar um Urriðaholt rekist á.
Skipulagsnefndin hefði á fundi
sínum átt að úrskurða um hæfi
mannsins til að taka þátt í ákvörð-
uninni áður en hún var tekin.
Skipulagi í Urriðaholti var
breytt með skömmum fyrirvara
í vor þannig að bæjarvernd var
felld niður og 27 hektara svæði,
sem fram að þessu hafði notið
bæjarverndar og verið skráð á
náttúruminjaskrá, var breytt í
þjónustusvæði. Tryggvi Felixson,
framkvæmdastjóri Landverndar,
telur að afstaða Jóns Ottós hafi
getað ráðið úrslitum í málinu
en afgreiðsla málsins hafi mikil
fjárhagsleg áhrif á styrktar- og
líknarsjóðs Oddfellow-reglunnar.
Þetta kemur fram í kæru
Tryggva til félagsmálaráðuneyt-
isins. Þar kemur einnig fram að
skipulagið hafi verið afgreitt í
bæjarstjórn Garðabæjar tveimur
dögum eftir fund skipulagsnefnd-
ar. Tryggvi telur því að bæjar-
stjórn hafi ætlað sér skamman
tíma til að setja sig inn í þær
efnislegu athugasemdir sem hafi
komið fram og því hafi öll efn-
isleg umfjöllun um málið verið
á forræði skipulagsnefndar ef
marka megi fundargerð.
Í Urriðaholti er fyrirhugað
að reisa byggingar fyrir sex til
sjö stórverslanir, þar á meðal
Ikea-verslun og stærstu bygg-
ingavöruverslun landsins, tólf
þúsund fermetrar að stærð. Talið
er að samningar við Byko séu á
lokastigi en áður hafði verið gert
ráð fyrir að þýska byggingavöru-
verslunin Bauhaus yrði þarna
með starfsemi sína.
ghs@frettabladid.is
Nefndarmaður sat
báðum megin borðs
Nefndarmaður í skipulagsnefnd Garðabæjar gæti hafa verið vanhæfur til að
taka þátt í breytingu á aðalskipulagi í Urriðaholti, sem er í eigu sjóðs Oddfellow-
reglunnar. Um það er þó ekki hægt að fullyrða, þó hann sitji í stjórn sjóðsins.
URRIÐAHOLT Bæjarvernd í Urriðaholti var felld niður í vor og svæði sem hafði verið skráð
á náttúruminjaskrá var breytt í þjónustusvæði. Framkvæmdastjóri Landverndar telur það
hagsmunaárekstur að virkur félagi í Oddfellow-reglunni, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í skipu-
lagsnefnd, hafi tekið þátt í ákvörðun nefndarinnar en svæðið er að níutíu prósentum í eigu
Oddfellow.������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Magnús Geir, hvað gerir Full-
komið brúðkaup?
„Fimm þúsund ánægðir brúðkaups-
gestir.“
Leikfélag Akureyrar sýnir nú leikritið Full-
komið brúðkaup við gríðarlegar vinsældir
nyrðra og hafa nú fimm þúsund manns séð
uppsetninguna. Magnús Geir Þórðarson er
leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og jafn-
framt leikstjóri verksins.
ELDRI BORGARAR Fimm Alþingis-
menn sátu undir kraftmiklum
ádeilum eldri borgara á afar
fjölmennum fundi um kjara- og
hagsmunamál eftirlaunaþega í
Reykjavík gær.
„Þetta var góður fundur, það
var fullt út að dyrum, fólk kom
með mjög mikið af fyrirspurnum
og deildi mikið á stjórnvöld fyrir
háa skatta, skerðingar á lífeyri,
lágar lífeyrisgreiðslur, slæman
aðbúnað á heimilum aldraðra og
svo framvegis,“ segir Margrét
Margeirsdóttir, formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík, en
félagið og Landssamband eldri
borgara efndu til fundarins.
Alþingismennirnir Ásta Möll-
er, Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir, Guðjón Kristjáns-
son, Sæunn Stefánsdóttir og
Ögmundur Jónasson mættu á
fundinn og kom fátt á óvart í
svörum þeirra við fyrirspurnum
fundarmanna.
„Mér fannst þeir nú ekki gefa
nein loforð beinlínis, en stjórnar-
andstaðan taldi skatta vera allt
of háa og skerðingar allt of mikl-
ar, og það þyrfti að bæta hag
aldraðra almennt. Þeir sem sitja
í stjórn reyndu auðvitað að bera
í bætifláka fyrir sinn málstað,
eins og gengur,“ segir Margrét.
- smk
Fundað um kjara- og hagsmunamál eldri borgara:
Yfir 200 eldri borgarar funda
Stútar við stýri Tveir ölvaðir öku-
menn létu til sín taka á Húsavík og
nágrenni í fyrrinótt. Annar þeirra ók út af
í Fnjóskadal þar sem hann var handtek-
inn en hinn hélt sig innanbæjar.
Ekið á í hálku Tveir minniháttar
árekstrar urðu á Akureyri á laugardag
enda er lúmsk hálka á götunum. Sem
betur fer urðu ekki slys á fólki og öku-
tækin eru lítið skemmd.
Ók ölvaður úr sumarbústaðnum
Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur í
sumarbústaðalandinu Einarsstöð-
um skammt frá Egilsstöðum. Sá var
stöðvaður í reglubundnu eftirliti en aðrir
ökumenn voru til fyrirmyndar.
Brotist inn í bíla Mikið var um
innbrot í bíla í Reykjavík í gær og var
tilkynnt um átta slík tilvik vítt og breitt
um bæinn. Ránsfengurinn var aðallega
hljómflutningstæki og geisladiskar.
Veifaði hnífi í annarlegu ástandi
Karlmaður var handtekinn Í Árbæn-
um í fyrrakvöld þar sem hann veifaði
hnífi innandyra í samkvæmi. Hann var í
annarlegu ástandi og var fluttur í fanga-
geymslur og yfirheyrður seinnipartinn
í gær.
Bakkaði á lögreglubíl Einn
ökumaður var handtekinn í miðbæ
Reykjavíkur í fyrrinótt grunaður um
ölvunarakstur. Ekki þurfti að stöðva
þann ökumann eða eltast við hann um
götur borgarinnar þar sem hann bakkaði
í ógáti á lögreglubíl. Við nánari athugun
reyndist maðurinn ölvaður.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HOLLAND, AP Snjó kyngdi niður víða
um Evrópu í gær. Almenningssam-
göngur lömuðust auk þess sem þó
nokkrir fórust í bílslysum vegna
mikillar hálku.
Skíðabrekkur í Belgíu og Þýska-
landi voruðu opnaðar á ný eftir hátt
í þrjátíu sentimetra snjófall yfir
nóttina. Eiffel-turninn í París var
jafnframt lokaður ferðamönnum í
fjórar klukkustundir vegna þess að
þrepin upp turninn þóttu of hál. - fb
Veðurhamur í Evrópu:
Eiffel-turninn
lokaður
DUBAI, AP Tuttugu og tveir samkyn-
hneigðir arabískir karlmenn voru
handteknir í fjöldabrúðkaupi sam-
kynhneigðra í Dubai, höfuðborg
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna. Verði þeir fundnir sekir
eiga þeir yfir höfði sér hormóna-
meðferð, fimm ára fangelsisvist
og hýðingu fyrir athæfi sitt.
Samkynhneigð hegðun á
almannafæri er bönnuð sam-
kvæmt lögum í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum. Yfirvöld í
landinu óttast að fjöldabrúðkaup
samkynhneigðra séu orsök auk-
inna vestrænna áhrifa í landinu
og reyna þau nú allt til að stöðva
þessa þróun. - fb
Brúðkaup samkynhneigðra:
Fjöldi homma
handtekinn
HITI Í FÓLKI Rúmlega 200 eldri borgarar
mættu á almennan fund sem Landssam-
band eldri borgara og Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni efndu til í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TRYGGVI FELIXSON
Tryggvi Felixson,
framkvæmdastjóri
Landverndar, sendi
kæru til félagsmála-
ráðuneytisins vegna
svæðis á náttúru-
minjaskrá. Úrskurður
liggur nú fyrir.
MENGUN Mikil rykmengun hefur
mælst í Reykjavík síðustu daga,
að sögn Lúðvíks Gústafssonar hjá
mengunarvarnasviði Umhverfis-
sviðs. Mest varð mengunin á
álagstímum í umferðinni, en þá fór
hún yfir 500 míkrógrömm á rúm-
metra. Veður hefur verið þurrt og
stillt og margir á nagladekkjum
sem auka enn á mengunina.
„Ástandið í kringum helstu
umferðaræðar borgarinnar var
ekki gott þegar umferðin var sem
mest enda sást mengunin greini-
lega,“ segir Lúðvík.
Hún fór þó ekki yfir hættu-
mörk, enda var aðeins um tíma-
bundna toppa að ræða.
Síðasta sólarhringinn eða svo
hefur loftvogin staðið hátt hér á
landi, að sögn Einars Sveinbjörns-
sonar verðurfræðings. Þannig
mældist loftþrýstingur 1.048
hektó-pasköl í Bolungarvík á
miðvikudagskvöld. Er það hæsta
staða loftvogar hérlendis síðan í
apríl 1991, en þá sýndu loftvogir
allt að 1.050 hPa.
Hár loftþrýstingur að þessu
sinni er af völdum öflugs og víð-
áttumikils háþrýstisvæðis sem
undanfarna daga hefur verið suð-
vestur og vestur af Íslandi. Það er
nú farið að gefa sig og eftir helgi
er því spáð að öllu hefðbundn-
ari lægðir verði búnar að leysa
háþrýstisvæðið af hólmi, sam-
kvæmt upplýsingum Einars.
- jss
Nagladekk og stillur hafa sín áhrif í þéttbýlinu:
Mikil rykmengun í borginni
UMFERÐ Í REYKJAVÍK Á álagstímum hefur rykmengun í Reykjavík farið yfir 500 míkró-
grömm á rúmmetra.