Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 6
DÓMSMÁL Átján ára piltur sem
ákærður hefur verið fyrir tvær
hnífstungur á menningarnótt í
Reykjavík er einnig kærður fyrir
samræði við stúlku þegar hún var
12 og 13 ára. Þá er honum gefið
að sök að hafa dreift og birt á net-
inu myndir sem sýndu stúlkuna á
klámfenginn hátt.
Mál á hendur piltinum var
þingfest í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á fimmtudag, en ríkissaksókn-
ari gaf út ákæru á hendur honum
undir lok nóvember. Ákæruatrið-
in hljóða upp á sérlega hættulegar
líkamsárásir, tilraun til mann-
dráps og kynferðisbrot.
Ungi maðurinn var handtek-
inn strax á menningarnótt og
úrskurðaður í gæsluvarðhald
daginn eftir. Hann fannst með
aðstoð vitna og löggæslumynda-
véla. Fram kom í skjölum sem
lögð voru fyrir Hæstarétt, eftir að
gæsluvarðhaldið var kært, að pilt-
urinn neitaði annarri stungunni
og kvaðst ekki hafa stungið hinn
tvisvar, heldur hlyti hnífurinn að
hafa skoppað.
Hnífstungurnar áttu sér báðar
stað á bílastæði milli Tryggva-
götu og Geirsgötu á menningar-
nótt, en hann stakk tvo pilta, 17
og 18 ára gamla. Sá eldri fékk 1,5
sentímetra skurð rétt fyrir neðan
vinstra herðablað þegar hann var
stunginn í bakið en árásin á hinn
var heldur alvarlegri. Sá hlaut
tvær stungur og lífshættulega
áverka. Slagæðar skárust í sund-
ur og lunga piltsins féll saman.
Pilturinn er einnig kærður fyrir
að rota 17 ára strák með skóflu á
göngubrú við Fjölbrautaskólann í
Garðabæ að morgni 1. febrúar. Þá
er honum gefið að sök að hafa að
minnsta kosti á annan tug skipta
haft samræði við stúlku, þá 12
og 13 ára gamla, og viðhaft aðra
grófa kynhegðan. Í októberlok í
fyrra gerði lögregla húsleit heima
hjá piltinum og gerði upptæka hjá
honum tölvu með um 30 ljósmynd-
um af stúlkunni sem sýndu hana
og þau saman fáklædd og nakin
á kynferðislegan og klámfeng-
inn hátt. Afritum af myndunum,
eða hluta þeirra, hafði hann líka
dreift, með þeim afleiðingum
að þær gengu manna í millum á
netinu.
Annar piltanna sem stungnir
voru gerir kröfu um 300.000 krón-
ur í miskabætur en sá sem varð
fyrir alvarlegri árásinni gerir
kröfu um 2,5 milljónir króna. Þá
er af hálfu stúlkunnar gerð krafa
um eina milljón króna í miska-
bætur. Einnig er krafist upptöku
á tölvunni sem klámmyndirn-
ar voru vistaðar á og á „butter-
fly“-hníf sem pilturinn beitti á
menningarnótt.
olikr@frettabladid.is
Ákærður fyrir kyn-
ferðisbrot og stungur
Þingfest hefur verið í Héraðsdómi Reykjavíkur mál á hendur 18 ára pilti sem
stakk tvo síðustu menningarnótt. Hann er líka kærður fyrir samræði við stúlku-
barn sem hann dreifði klámmyndum af og fyrir að berja strák með skóflu.
VIÐ HÉRAÐSÓM EFTIR MENNINGARNÓTT
18 ára árásarmaður fluttur á brott frá
Héraðsdómi Reykjavíkur 21. ágúst síðast-
liðinn eftir að kveðinn var upp yfir honum
gæsluvarðhaldsúrskurður. Mál á hendur
honum eru nú fyrir dómi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BUTTERFLY-HNÍFUR Pilturinn sem stakk tvo
síðustu menningarnótt í Reykjavík notaði
til verksins hníf ekki ósvipaðan þessum.
6 17. desember 2005 LAUGARDAGUR
VEFMÆLINGAR Innlit og síðuflett-
ingar á Vísi.is hefur tvöfaldast á
síðustu níu mánuðum og reynd-
ist síðasta vika vera metvika hjá
netmiðlinum samkvæmt tölum
Samræmdra vefmælinga.
Náði þá fjöldi innlita alls
1.2 milljónum hjá rétt rúmlega
200 þúsund notendum. Ástæður
þessa eru taldar þær helstar að
fréttaþjónusta miðilsins hefur
aukist til muna með tilkomu NFS
fréttastöðvarinnar. Einnig hefur
aðgengi að fjölbreyttara efni á
Vísi VefTV haft sitt að segja. Þá
er á vefnum hægt að lesa flest öll
blöð sem 365 prentmiðlar gefa
út. ■
Vefmiðillinn Vísir.is:
Aldrei mælst
fleiri innlit
KJÖRKASSINN
Á að afnema innflutningshöft á
landbúnaðarvörur?
Já 75%
Nei 25%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Mun friður komast á í Írak
nú eftir að búið er að kjósa til
þings?
�������������������������������
��������������������������������������
��
��
��
���
��
��
��
��
��
�
�����������������������
�������������������
����������� �������������
������� �������������
����������������������
�������������������
�������������������
����������������������
����� �������������
���������������������
�������������������
�������������
LANDBÚNAÐUR Sigurgeir Þor-
geirsson, framkvæmdastjóri
Bændasamtaka Íslands, segist
ekki skilja orð utanríkisráðherra
á ráðherrafundi Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar svo að orðið hafi
viðsnúningur í landbúnaðarstefnu
stjórnvalda hér.
„Eftir því sem ég skil ráðherra og
stjórnvöld þá hefur stefnumörkun
þeirra ekkert breyst. Hér halda
þau við sína fyrri afstöðu,“ segir
Sigurgeir og telur utnríkisráð-
herra bara lýsa því sem samning-
arferlið ytra hnígur að. „Að stuðn-
ingsgreiðslur verði lækkaðar og
tollar fari lækkandi. Þetta hefur í
sjálfu sér alltaf legið fyrir, spurn-
ingin er bara hversu langt verður
gengið í þetta skiptið.“
Sigurgeir er staddur úti í Hong
Kong og fylgist þar með ráðherra-
fundinum. „Hér er ég nú bara á
eigin forsendum og til að setja
mig inn í hlutina.“ Hann segir
landbúnaðarsamninga Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar ganga
út á að takmarka rétt ríkja til að
styrkja og vernda landbúnað, en
á ekki von á mikilli niðurstöðu af
fundinum sem nú stendur. „Lík-
urnar eru engar á að hér náist
eitthvert endanlegt samkomulag
og hér um bil útilokað að komnar
verði nokkrar tölur inn í samn-
ingstexta á þessum fundi þannig
að sjá megi hversu langt verði
gengið í samkomulaginu. Þetta
verða bara orð um aðferðafræði
og svo verður síðar tekist á um
hvað á að taka stórar sneiðar.“
- óká
Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna fylgist með fundi í Hong Kong:
Stærð sneiða ákveðin seinna
SIGURGEIR ÞORGEIRSSON Framkvæmda-
stjóri Bændasamtakanna á ekki von á
mikilli niðurstöðu á ráðherrafundinum sem
stendur í Hong Kong.
LÖGREGLA Maður hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
23. desember eftir fíkniefnafund
lögreglunnar í Hafnarfirði.
Í fyrradag fann lögregla ríf-
lega 100 grömm af amfetamíni,
rúm 100 grömm af hassi og 200
skammta af LSD í húsi í Hafnar-
firði. Við leitina fundust einnig
ýmis skotvopn, sprengiefni og
hnífar ásamt ýmsum raftækjum
sem talin eru vera þýfi.
Þegar húsleitin var gerð
voru þrír menn staddir í húsinu
og voru þeir allir handteknir.
Tveimur var sleppt að loknum
yfirheyrslum en sá þriðji situr í
gæsluvarðhaldinu.
Tveimur tímum síðar gerð leit
í húsi í Reykjavík, en þar fund-
ust rúmlega 40 grömm af hassi.
Einn íbúi hússins var handtek-
inn við húsleitina og færður til
yfirheyrslu. Honum hefur verið
sleppt úr haldi og telst það mál
upplýst, samkvæmt upplýsingum
Hafnarfjarðarlögreglunnar.
Aðgerðin var á forræði lög-
reglunnar í Hafnarfirði, en við
hana naut hún aðstoðar frá sér-
sveit ríkislögreglustjóra, lög-
reglunni í Kópavogi, lögreglu í
Reykjavík og Tollgæslunnar í
Reykjavík. - æþe
Fíkniefni og vopn fundust í húsleitum lögreglu:
Einn í varðhaldi
að Þorláksmessu
VIÐSKIPTI Stoðir, fasteignafélag í
eigu Baugs á í viðræðum um kaup
á danska fasteignafélaginu Atlas
ejendomer. Eignir Atlas eru metn-
ar á um þrjátíu milljarða króna.
Fyrir á Baugur hlut í tveimur
fasteignafélögum, Keops og Nor-
dicom, sem bæði eru skráð í kaup-
höllinni í Kaupmannahöfn. Ekki
er ósennilegt að stefnt sé að sam-
einingu þessara félaga. Bæði fast-
eignafélögin hækkuðu á markaði
í gær, Keops eftir gott uppgjör
en talið er að hækkun Nordicom
megi rekja til væntinga um slík-
ar fyrirætlanir. Keops er metið á
um 46 milljarða króna, en Baugur
á þrjátíu prósenta hlut í því. Nord-
icom er metið á um 27 milljarða
króna, en hlutur Baugs í félaginu
er um ellefu prósent.
Danska blaðið Börsen birti í
gær frétt um slíkar fyrirætlanir.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
framkvæmdastjóri Norðurlanda-
fjárfestinga Baugs, vildi ekki
tjá sig um viðræður um kaup á
Atlas ejendomer, né orðróm um
að danskur fasteignarisi væri í
burðarliðnum. Einnig hefur verið
nefnd sameining við íslenska fast-
eignafélagið Stoðir, en líklegra er
að Stoðir verði fremur stór eig-
andi að dönskum systurfélögum.
Fleiri íslenskir fjárfestar hafa
sýnt áhuga á að kaupa Atlas ejen-
domer, en samkvæmt heimildum
eru samningaviðræður við Stoðir
langt komnar og jafnvel talið að
samningar takist í næstu viku. - hh
Stoðir í viðræðum um þrjátíu milljarða kaup:
Danskur fasteignarisi í smíðum
Á STRIKINU Baugur hyggst bæta enn í
fasteignasafn sitt í Kaupmannahöfn, en
margar álitlegar fasteignir eru nú þegar í
eigu félaga sem Baugur er stór hluthafi í.