Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 28
 17. desember 2005 LAUGARDAGUR28 Fyrir mörgum, ef ekki flest-um, koma jólin klukkan sex á aðfangadag þegar kirkju- klukkur klingja um allt land. Ása- trúarmenn taka hins vegar forskot á sæluna og blóta árs og friðar á vetrarsólstöðum, hinn 21. desem- ber, sem í þeirra huga markar fæðingu sólarinnar. „Jólablótið er það stærsta af höfuðblótunum sem marka sólstöður og jafndægur,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson allsherj- argoði. „Það er gömul hefð og útbreidd að halda upp á sólstöður og í flestum samfélögum á flest- um tímum hefur verið haldið upp á það þegar sól hækkar. Reyndar finnst sumum ásatrúarmönnum sumardagurinn fyrsti heilagasti dagur ársins, enda er það sterkt í Íslendingum, til dæmis gaf fólk gjafir á sumardaginn fyrsta en ekki á jólum í gamla daga.“ Orðið jól kemur úr heiðnum sið, en Jólnir var eitt af nöfnum Óðins. Að sögn Hilmars nær jólahaldið langt aftur í heiðnum sið. „Eftir að gregoríska dagatalið var tekið upp hefur það verið á nokkru reiki hvenær jólin voru haldin á ólíkum landsvæðum; hvert þeirra var kannski með sitt viðmið um það hvenær sól færi að rísa, en víða er hægt að finna steinahringi og viðmið í fjallaskörðum sem ganga út á að merkja vetrardægur og sólstöður. Fólk hefur því alltaf haft merkilega góða hugmynd um hvenær daginn fer að lengja á ný og hefur sjálfsagt tekið mið af því.“ Fleiri tækifæri til að gleðjast Í heiðni var jólahaldið ekki bundið við einn ákveðin dag, heldur telja menn að þær hafi staðið í þrjá til tólf daga. „Og þetta hafa sjálfsagt ekki verið neinar stúkusamkomur í þá daga,“ segir Hilmar og kímir. „Blót ganga út á samveru, þar sem fólk kemur saman til að borða og drekka og njóta samvista. Kannski er það veisluhaldið sem laðar suma að ásatrúnni, aðrir vilja við- halda ákveðnum menningarlegum arfi en í þessu er vissulega líka trúarleg dýpt ef menn vilja skoða það og margir blóta af hreinni og beinni trú.“ Hilmar telur að ásatrú eigi sér ákveðinn samhljóm meðal þjóðar- innar, sem eigi sér meðal annars skýringar í gömlum venjum. „Við þekkjum til dæmis það að menn drekka sólarkaffi á Vestfjörðum. Þetta eru ákveðnar menjar, sem eru ekki kannski ekki beint úr heiðni. Hækkun sólar er náttúru- fyrirbæri sem nær út fyrir hefð- bundnar kennisetningar, til dæmis kristninnar; þetta er eitthvað sem við finnum á okkur.“ Nú er að vaxa upp kynslóð sem hefur heiðið jólahald en flestir ásatrúarmenn sem hann þekk- ir halda líka aðfangadag hátíð- legan og sjálfur er hann engin undantekning. „Flestir ásatrúar- menn eru lausir við kreddur og umburðarlyndir gagnvart þeim sem aðhyllast aðrar trúarskoðan- ir og ég vil til dæmis deila mínum jólum með öðru fólki og tilbúinn að gangast inn í þeirra jólahald og hlakka mikið til aðfangadags. Ásatrúarmenn eru enda veislu- gjarnt fólk og því fleiri tækifæri til að gleðjast því betra,“ segir hann og hlær. Trúin speglar veruleikann Hilmar var á fermingaraldri þegar hann fann að í ásatrú fælist sú lífssýn sem hentaði honum best. Sextán ára gamall steig hann skrefið til fulls og gekk í ásatrúar- félagið og hefur ekki litið til baka síðan. „Ég var alinn upp á trúuðu heimili í íslenskum skilningi þess orðs, það er að segja að fólk var opið fyrir nýjum hugmyndum. Sem drengur fór ég alltaf í Dóm- kirkjuna á aðfangadag og hóstaði í kór við aðra kirkjugesti,“ segir hann og hlær. Að hans mati endurspegla öll góð trúarbrögð líkamlegan og andlegan veruleika og það finnst honum eiga sérstaklega við um ásatrúna. „Við vitum til dæmis hvaða áhrif árstíðirnar hafa á fólk og hvernig ljósleysið leggst í menn. Ásatrúin bjó sér því til fimmta höfuðblótið á þorranum, sem er ágætlega staðsett í árinu þegar við erum búin að bagsa í myrkrinu. Á jólum blóta ásatrú- armenn til árs og friðar, en friður er í merkingunni frjósemi sem felur í sér bón um að jörðin verði frjósöm sem og mannfólkið. Þetta eru trúarbrögð sem byggja, að ég tel, bæði á líffræði og sálarfræði og þau kallast mjög á við hring- rás lífsins. Það er fæðing, vöxtur, hnignun og dauði og við sjáum það metafórískt í árinu.“ Tranar trú sinni ekki fram Það fer talsverður tími í það að sinna skyldum allsherjargoða, að sögn Hilmars. „Það er mikil vinna í kringum þetta, sérstaklega um þessar mundir þar sem við erum á spennandi tímamótum, því við erum að ráðast í byggingu hofs í Öskjuhlíð þar sem við höldum sólstöðublótin að öllu jöfnu, og vonandi getum við blótað í hofinu eftir tvö ár.“ Hilmari hefur þó tekist að sam- eina starf sitt sem tónskáld við skyldur sínar sem allsherjargoði, þrátt fyrir að vera oft á faralds- fæti. „Ég hef alltaf getað komið því að vera hér heima á stærri blótunum. Mér finnst það alls ekki kvöð að púsla þessu saman, þvert á móti er ágætt að vera með hið veraldlega og hið geistlega í gangi á sama tíma en ekki annað á kostnað hins.“ Hilmar vinnur mikið erlendis en kveðst ekki verða mikið var við að menn reki upp stór augu þegar þeir komist að því að hann er ásatrúarmaður – og allsherjar- goði ofan í kaupið. „Sumir hafa þurft að spyrja mig út í þetta til að komast að því hvort mér er alvara eða ekki og sumir vilja vita hvað þetta felur í sér. En ásatrúarmenn hafa það fyrir sið að trana trú sinni ekki fram, enda er það ein af meginkennisetningum okkar að trúboð sé óþarft. Ég held að flestir líti bara á þetta sem einn hluta af mér og geta vonandi séð mig í senn sem ásartrúarmann og tónlistarunnanda.“ Skyldur Hilmars sem allsherjar- goða snúa ekki síst að safnað- arbörnunum og því tekur hann ekki af léttúð. „Ég get ekki leyft mér annað. Í starfi mínu felst sú ábyrgð að ég sé til staðar fyrir fólk á gleðistundum sem og á erf- iðum tímum og það kemur vissu- lega fyrir að fólk leitar til mín þegar erfiðleikar steðja að því. Þetta er ekki eitthvað sem maður getur gert með hangandi hendi og ég reyni að sinna því af eins mikl- um heilindum og ég get.“ ■ Hvað gerist þegar maðurinn deyr? Hér eru 27 frásagnir vina og ættingja, þjóðkunnra presta og einkasonar, sem fórst í bílslysi, af því hvernig var að „deyja“ og hvað við hafi tekið. Þar segir Runólfur, stjórnandi Hafsteins miðils, ítarlega frá sinni reynslu og sagt er frá stórmerkum sýnum Bjargar S. Ólafsdóttur miðils við dánarbeð. Þá er sagt frá enska miðlinum Horace S. Hambling og stórmerkum fyrirbærum. Árnesútgáfan Sími: 482 1567 GUÐMUNDUR KR ISTINSSON Framliðnir segja frá andláti sínu og lífinu fyrir handa n TIL ÆÐRI HEIMA Gerð er grein fyrir mismunandi boðskap þjóðkirkj- unnar um dauðann og annað líf á síðustu öld og áhrifum spíritismans á trúarskoðanir þjóðarinnar. Í starfi mínu felst sú ábyrgð að ég sé til staðar fyrir fólk á gleðistundum sem og á erfiðum tímum og það kemur vissulega fyrir að fólk leitar til mín þegar erfiðleikar steðja að því. Þetta eru trúarbrögð sem byggja, að ég tel, bæði á líffræði og sálarfræði og þau kallast mjög á við hringrás lífsins. Það er fæðing, vöxtur, hnignun og dauði og við sjá- um það metafórískt í árinu. Ásatrú þýðir bókstaflega „trú á Æsi“. Það er þó naumast réttnefni þar sem trúin miðast ekki við Æsi eina en tekur eins til Vana og annarra vætta. Vor siður er það sem margir kjósa fremur að nota enda gengur ásatrú meira út á lífsstíl og hegðun en tilbeiðslu guða, og byggist á hinni lifandi náttúru, sem er sá hluti alheimsins sem við sjáum og skynjum. Goðin gerðu ekki heiminn úr engu, heldur sköpuðu (formuðu) hann úr hinni eilífu orku alheimsins (Ginnungagaps), samkvæmt lögmál- unum (örlögunum) sem búa í Aski Yggdrasils. Sköpun og eyðingin eru enda- laust samspil. Hin endanlega sköpun heimsins fór ekki fram í árdaga, né verður endanleg eyðing heimsins allt í einu. Sköpun og eyðing eru eilíf hringrás, sem viðhalda tilverunni. Samkvæmt Ásatrúnni eru guð- irnir ekki stjórnendur heimsins held- ur hluti af honum og seldir undir lögmál hans nákvæmlega eins og við jarðneskir menn. Allir hlutir eru forgengilegir, alheimurinn, guðirnir, jörðin og mennirnir eru seldir undir hina endalausu hringrás. Í helgisiðum sínum taka Ása- trúarmenn mið af því sem skrifað var á fornar bækur. Mest er sótt til Eddukvæðanna og í heimsmynd og siðaboðskap vors siðar. Einnig er að sjálfsögðu tekið tillit til þess að við búum nú í borgarsamfélagi flest öll og hlýtur það að móta allar hugsanir okkar og athafnir. Ásatrúin á sér enga „biblíu“ eins og það er skilið í kristnum sið. Við tökum hins vegar mið af bæði Sæmund- ar- og Snorra Eddu, en þessar tvær bækur eru bestu heimildirnar um hinn forna átrúnað og reyndar svo einstakar að ef þær væru ekki til væri næsta lítið vitað um bæði íslenska og germanska heiðni. Tekið af vef Ásatrúarfélagsins. ÁSATRÚ Heiðnir fagna fæðingu sólar Sem drengur fór Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði alltaf í Dómkirkjuna á jólunum og „hóstaði í kór við aðra kirkjugesti“. Bergsteinn Sigurðsson komst að því að þótt Hilmar hósti ekki lengur í kirkju hlakkar hann engu að síður til jólanna. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.