Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 95

Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 95
 17. desember 2005 LAUGARDAGUR70 SKATA saltfiskur siginn fiskur OPIÐ ALLA LAUGARDAGA 10-14 HRÓSIÐ ...fær Barnaheill sem stóð fyrir fjáröflunarkvöldverði og uppboði til styrktar barna- og unglinga- geðdeild og börnum með hegðun- arörðugleika eða geðraskanir. FRÉTTIR AF FÓLKI Síðasti þátturinn af Popppunkti verður sýndur á Skjá einum annað kvöld. Þar eigast við Geirfuglarnir og Milljóna- mæringarnir og verður væntanlega hart barist. Í tilefni af þessum síðasta þætti mun Spaugstofan gera grín að þeim Felix Bergssyni og Dr. Gunna í þætti sínum í kvöld. Verður Örn Árnason í hlutverki doktorsins en Felix mun leika sjálfan sig. NÚNA BÚIÐ Jólaglimmer. Nú er aldeilis árs- tíminn til að glitra. Shine on. Appelsínugulur litarháttur. Þetta er það sem Bretar kalla „Chav“ og það er ekki gott, Megaplebbalegt. Fallegir borðsiðir. Sýndu nú hvað þú ert vel upp alin/n. Fölur litarháttur. Hefðarfólk og fyr- irmenn vildu einu sinni vera svona. Þau hljóta að hafa haft eitthvað fyrir sér í því. Olnboginn uppi á borði. Mjög ókurteist að gera svona. Meira að segja Bubbi sást borða svona í Jóa Fel. Skamm! Að vera með húfur inni. Ok, þær eru töff, en það er alveg fáranlegt að vera með þær á skemmtistöðum eða í boðum. Eyþór Guðjónsson fór fyrir rúmri viku til Bandaríkjanna og tók þar þátt í kynningarstarfi fyrir hryll- ingsmyndina Hostel sem leikstýrt er af Eli Roth og framleidd af Quentin Tarantino. Myndin verð- ur frumsýnd hér landi í upphafi næsta árs. Var förinni fyrst heitið til Los Angeles þar sem Tarantino hélt forsýningu fyrir vini og vel- unnara en svo var haldið til Boston. Eyþór er nýkomin heim úr þessari kynningarferð og var sáttur með ferðalagið. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt,“ segir leikar- inn en tekur þó fram að hann hafi eingöngu gist á „venjulegum“ hót- elherbergjum en ekki svítum eins og þegar tökur stóðu yfir. Hópurinn heldur áfram til Tor- onto og kynnir myndina en fyrir- tækin Sony og Lions Gate standa straum af þessari markaðssetn- ingu. „Mér skilst að þeir séu að eyða í kringum 20 milljónum dala í þessa herferð,“ útskýrir Eyþór en það er rúmur einn og hálfur milljarður íslenskra króna. Þrátt fyrir að hafa viljað kynna Ísland á erlendum vettvangi segir Eyþór að hann hafi lagt megináherslu á að myndin skipti mestu máli. „Þú verður alltaf að passa þig á því að það er hún sem þú ert að auglýsa,“ segir hann. Landið bláa fékk þó að vera með í farteskinu því Eyþór fór með nokkrar bækur út til að gefa Eli og Tarantino en sá síðastnefndi er sem kunnugt er væntanlegur aftur hingað í lok ársins. „Ég gaf þeim stóra bók með öllum helstu víkingasögunum, fræðibók um lifnaðarhætti þeirra og svo ljós- myndabók um náttúru landsins,“ segir Eyþór sem undirbjó komu þeirra hingað í þrjár vikur og lagði megináherslu á það að kynna fyrir þeim íslenska menningu, söguna og náttúruna. Þessar gjafir hafa eflaust vakið mikla kátínu enda eru leikstjórarnir báðir miklir áhugamenn um þessa fornu garpa. Eyþór segir fjölmiðla hafa sýnt landi og þjóð áhuga og þótt ótrú- legt megi virðast þá sé þessi hryll- ingsmynd góð landkynning. „Þess- ar myndir eiga sér mjög breiðan og traustan aðdáendahóp þarna úti og Hostel á eflaust eftir að skila góðum árangri fyrir Ísland.“ Eyþór Guðjónsson er önnum kaf- inn maður. Hann rekur meðal ann- ars fasteignaþróunarfélag, paint- ball-fyrirtæki og hefur undanfarin ár verið undirbúa jarðveginn fyrir teiknimynd eftir Grettissögu. „Hostel-ævintýrið setti vissulega smá strik í reikninginn en opnaði á hinn bóginn einnig fyrir aðra möguleika,“ segir hann. freyrgigja@frettabladid.is EYÞÓR GUÐJÓNSSON: KYNNTI HOSTEL Í AMERÍKU Gaf Tarantino bók með Íslendingasögunum LÁRÉTT: 2 asni 6 í röð 8 rá 9 svif 11 samanburðartenging 12 glæsibíll 14 yndis 16 tveir eins 17 frjó 18 í viðbót 20 bor 21 kurra. LÓÐRÉTT: 1 fituskán 3 klaki 4 brjóst- himna 5 gæfa 7 járnkarl 10 beita 13 útdeildi 15 ánægju 16 efni 19 íþróttafé- lag. LAUSN 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Þann 29. desember verða styrkt- artónleikar haldnir í Austurbæ fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan. Þeir sem koma fram eru Leaves, Ske, Stebbi og Eyvi, Dúnd- urfréttir, Páll Óskar og Milljóna- mæringarnir, Jagúar, Brynhildur Guðjónsdóttir, Shadow Parade, Ragnheiður Gröndal, Pétur Ben., Helgi Rafn og Myst. Kynnir verð- ur Atli Þór Albertsson. Aníta Ólöf Jónsdóttir, tvítugur nemi í Menntaskólanum í Kópa- vogi, fékk hugmyndina að tónleik- unum eftir að hafa setið í áfanga um Mið-Austurlönd. „Við fengum það verkefni að skoða fréttagrein- ar og skrifa um þær. Við þurftum að grafa djúpt í fréttirnar og pæla í þeim til að geta skrifað góða rit- gerð,“ segir Aníta Ólöf sem varð sjokkeruð við fréttirnar. ,,Ég sá líka hvað það var búið að safnast lítið þannig að ég fann löngun til að gera eitthvað. Ég talaði við kennarann minn [Hjördísi Einars- dóttur] og hún tök mjög vel í þetta. Þannig að við ákváðum að demba okkur í þetta saman,“ segir Aníta. Hjördís er gríðarlega ánægð með framtak Anítu. „Það er frábært fyrir kennara að fá nemanda sem vill gera eitthvað án þess að vilja endilega fá einkunn fyrir. Þetta framtak sýnir það að ein mann- eskja getur skipt máli,“ segir Hjördís. „Mér hefði aldrei dottið þetta í hug sjálfri og svona hug- mynd gerir það vel þess virði að vera í þessu starfi.“ Landsbankinn, Kópavogsbær, VÍS, OgVodafone og KB banki eru styrktaraðilar tónleikanna, sem hefjast klukkan 21.00. Miðasala hefst á mánudag í Austurbæ og á midi.is. freyr@frettabladid.is Fann löngun til að gera eitthvað HJÖRDÍS OG ANÍTA Þær Hjördís og Aníta hafa undanfarið lagt hart að sér við undir- búning tónleikanna. FRÉTTABLAÐIIÐ/STEFÁN DEREK RICHARDSON, JAY HERNANDEZ OG EYÞÓR GUÐJÓNSSON Kvikmyndin Hostel er nú á mikilli kynningarferð um Bandaríkin og Kanada. Eyþór Guðjónsson leikur eitt aðalhlutverkanna í henni og er nýkominn heim frá Bandaríkjunum. LÁRÉTT: 2 fífl, 6 rs, 8 slá, 9 áta, 11 en, 12 kaggi, 14 unaðs, 16 tt, 17 fræ, 18 auk, 20 al, 21 urra. LÓÐRÉTT: 1 brák, 3 ís, 4 fleiðra, 5 lán, 7 stautur, 10 agn, 13 gaf, 15 sælu, 16 tau, 19 kr. [ VEISTU SVARIÐ ] 1 Fimm mánuði 2 Brussel 3 Indriði H. Þorláksson Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Ungfrú heimur og Ísland, kemur til landsins í dag og af því tilefni verður athöfn í Smáralindinni klukkan 17. Verður hún á ferðinni með Julie Morley, sem á þessa keppni, en Fegurðarsamkeppni Íslands skipuleggur viðburðinn. Unnur Birna er þriðja íslenska stúlkan sem hreppir þennan titil en áður höfðu þær Hólm- fríður Karlsdóttir og Linda Pétursdóttir tekið kórónuna með sér heim. Fram- undan er viðburðaríkt ár hjá fegurð- ardrottningunni en hún þarf að sinna ýmsum góðgerðarmálum á vegum keppninnar og ferðast til fjarlægra landa en talið er að Unnur Birna muni á næsta ári koma til yfir hundrað borga í öllum byggðum heimsálfum. Það virðist vera að skapast hefð fyrir sigurhátíðum í Smáralindinni því þegar landsliðið í handknattleik hreppti fjórða sætið á EM í Svíþjóð árið 2002 var mikilli veislu slegið upp fyrir íþróttakappana. Unnur Birna er víst einnig mikil keppnismann- eskja enda þarf sterkar taugar og bein í nefinu til að standa uppi sem alvöru sigurvegari í þessari miklu lífsþraut. Það hefur þó ekki alltaf gengið þrautalaust fyrir þá sem hafa fengið hlýjar mótttökur í versl- unarmiðstöðinni því það fór allt að ganga á afturfótunum hjá landsliðinu eftir þessa velgengni og þá er óþarfi að minnast á stjörnuhrap fyrstu Idol- stjörnunnar sem krýnd var í Vetrargarðinum fyrir tveimur árum. freyrgigja @frettabladid.is 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.