Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 90
LAUGARDAGUR 17. desember 2005 65 Ekki gott að fá vírus svona rétt fyrir jólin. Trend Internet Security er málið. Alhliða vírusvörn sem tryggir þig fyrir vírusum, ruslpósti, tölvuþrjótum og fl eiru VÍRUSVÖRN 4.990 ÖRUGG VÍRUSVÖRN • Fullkomin vírusleitarvél • Bætt vörn gegn Spyware • Stöðvar upplýsingaþjófnað • Stjórnun á heimaneti • Vörn gegn netinnbroti • Öfl ugur eldveggur • Sjálfvirkt öryggismat OPNUNARTÍMAR 17 Desember 10-21 18 desember 13-18 19-21 Des. 9-19 22-23 Des. 9-22 24 Desember Lokað LANDSINS MESTA ÚRVAL AF TÖLVUM OG TÖLVUBÚNAÐI FÓTBOLTI Egypski framherjinn Mido var ekki að vinna sér inn marga punkta í gær þegar hann lýsti því yfir að hans gamla félag, Ajax, væri stærra en núverandi félag hans Tottenham. „Enska úrvalsdeildin er stærri og betri en hollenska deildin en Ajax er stærri klúbbur en Spurs. Það er mun meiri saga og hefð hjá Ajax,“ sagði Mido sem er í láni hjá Tottenham frá ítalska félag- inu Roma. Hann tók síðan fram í kjölfarið að hann væri mjög sátt- ur og í raun hamingjusamur hjá Tottenham. - hbg Egyptinn Mido: Ajax er stærra en Tottenham MIDO Enn hrifinn af Ajax. KÖRFUBOLTI Stjórn körfuknatt- leiksdeildar Breiðabliks hefur ráðið Thomas Fjoldberg sem þjálfara meistaraflokks karla en hann þjálfar einnig meistaraflokk kvenna og mun því sinna báðum störfum út veturinn. Fjolderg tekur við starfinu af Jói Arnari Ingvarssyni sem var rekinn á dögunum. ■ Körfuboltalið Breiðabliks: Thomas tekur við af Jóni SUND Allt er vitlaust í Ástralíu þessa dagana eftir að upp komst um heragann sem ástralskt sund- fólk æfir við. Það náðust nefnilega myndir af þjálfara beina byssu að höfði sundfólksins er það var að æfa en krakkar allt niður í 16 ára máttu þola aga sem eingöngu er beitt þegar verið er að þjálfa hermenn. Það var reyndar um að ræða leikfangabyssu en tilgangur- inn var sá sami. Þjálfarinn sem sást beita þess- um óvenjulegu vinnubrögðum baðst afsökunar á athæfinu og sagðist ekki ætla að nota leikfanga- byssurnar aftur. Hann neitaði aftur á móti að segja af sér. - hbg Ástralskt sundfólk: Beitt heraga FÓTBOLTI Franski framherjinn Dji- bril Cisse gerir sitt besta þessa dagana til þess að eyða orðrómi þess efnis að hann vilji komast frá Liverpool en ástæða sögusagn- anna er sú að hann á ekki fast sæti í liði Evrópumeistaranna. „Ég elska Liverpool. Hér á ég frábæra vini, góða félaga og svo er ég nýbúinn að kaupa mér hús. Einnig má ekki gleyma því að ég er nýgiftur og hamingjusam- ur. Hvers vegna ætti ég að vilja fara?“ sagði Cisse. ■ Djibril Cisse: Ég elska Liverpool DJIBRIL CISSE Hamingjusamur hjá Liver- pool. FÓTBOLTI Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, og Jose Ant- onio Reyes, leikmaður liðsins, eru sammála um að lið þeirra sé betra en Chelsea, en þessi stórlið Lund- úna mætast einmitt á sunnudag- inn í ensku úrvalsdeildinni. Reyes segir að slök byrjun Arsenal á tímabilinu megi rekja til óheppni og að hann og félagar hans séu að leika undir stjórn fróðasta þjálfara heims. „Hann þekkir fótbolta betur en nokkur annar. Það skiptir ekki mestu máli að eiga endalausa peninga eins og Chelsea. Ég tel að með þeim leikmannahópi og þjálfara sem Arsenal hefur núna muni liðið ná að vinna titla. Við þurfum aðeins að fá meiri tíma,“ segir Reyes og bætir við að hóp- urinn hjá Arsenal sé ekki síðri en sá hjá Chelsea. „Við erum alveg jafn góðir, ef ekki betri. Eini mun- urinn er sá að við erum ennþá að aðlagast lífinu án Patricks Vieira,“ segir Reyes. Wenger segir einnig að Arsen- al vanti bara meiri tíma. „Ég trúi því að við verðum betri en Chel- sea eftir stuttan tíma. Við höfum það sem til þarf. Við erum að vinna samkvæmt langtímaáætlun og gengur vel,“ segir Wenger. - vig Arsene Wenger og Jose Antonio Reyes hjá Arsenal: Við erum betri en Chelsea WENGER OG REYES Gera lítið úr Chelsea fyrir leik liðanna í úrvals- deildinni á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.