Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 81

Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 81
Lúsíuhátíðinni í Svíþjóð var fagnað á þriðjudaginn var. Kristján Hjálmarsson fylgdist með þessari kristnu hátíð í bænum Jönköping, sem Svíar nefna gjarnan Litlu-Jerúsalem. Lúsíuhátíðinni er fagnað í Sví- þjóð þann 13. desember ár hvert. Hátíðin er haldin til heiðurs Lúsíu, verndardýrlingi blindra og sjón- skertra, en hátíðin er mikil helgi- stund þar sem ljós og söngur eru í aðalhlutverki, enda þýðir nafn dýrlingsins ljós. Á hátíðinni syngja Lúsía og þernur hennar jólalög og bera fram kaffi og bollur með saf- frani, svokallaða Lúsíuketti. Lúsía ber hvítan kufl með rauðan mitt- islinda en á höfði ber hún kerta- krans með lifandi ljósum. Heilög Lúsía kemur frá Ítalíu en tilbeiðsla hennar breiddist út um alla Evrópu á miðöldum, þar á meðal til Norðurlandanna. Hún hefur verið persónugervingur sólstöðuhátíða á Norðurlöndum þar sem helgidagur liggur svo nálægt vetrarsólstöðum. Kosið um Lúsíu Bærinn Jönköping í Svíþjóð hefur stundum verið nefndur Litla Jer- úsalem og nágrennið biblíubelti Svíþjóðar vegna þess hversu margar kirkjur eru í og við bæinn og vegna þess öfluga starfs sem rekið er þar. Þar var Lúsíuhátíð- inni að sjálfsögðu fagnað í öllum kirkjum bæjarins, þar á meðal í Sófíukirkjunni, sem er stærsta kirkja Smálanda. Í biblíubeltinu í Svíþjóð er spennan í kringum Lúsíuhátíðina slík að síðustu vikur fyrir hátíð- ina sjálfa keppist fólk við að baka Lúsíuketti, piparkökur og æfa söngva. Leikskólar bæjarins æfa upp dagskrá þar sem stúlkurnar klæðast búningi Lúsíu en dreng- irnir jólasveina- eða piparkarla- búningum. Það þykir mikill heiður að fá að vera sjálf Lúsía í Sófíukirkj- unni og er meira að segja kosið á milli nokkurra stúlkna um það hver fái að bera kertakransinn á höfðinu. Kosningin minnir um margt á fegurðarsamkeppni en veggspjald af stúlkunum hangir í miðbæ Jönköping þar sem íbúar bæjarins geta virt þær fyrir sér og kosið um hver eigi að túlka Lúsíu. Þétt skipuð kirkja Sófiukirkjan er afar tignarleg að sjá þar sem hún teygir sig hátt til himins í miðbæ Jönköping. Það er nýbúið að taka kirkjuna í gegn svo spennan hjá bæjarbúum var að vonum mikil fyrir sjálfri Lúsíuhá- tíðinni, að sjá hvernig til hefði tek- ist með kirkjuna, að berja Lúsíuna augum og heyra söngvana sem sungnir eru á hátíðinni. Það var heldur ekki að vonum að spyrja, hvert einasta sæti í kirkjunni var þétt skipað og þurftu margir að gera sér það að góðu að standa. Fólk á öllum aldri lagði leið sína í kirkjuna, þó mun færri börn en fullorðnir. Hátíðin gekk vel í alla staði og var ljósadýrðin mögnuð upp með því að slökkt var á rafmagns- ljósum en um hundrað lifandi kerti lýstu upp kirkjuna. Söngur þernanna, sem voru af báðum kynjum, var einstakur en náði þó ekki að skyggja á sjálfa Lúsíuna, verndardýrling blindra og sjón- skertra. ■ Verndari blindra og sjónskertra PIPARKÖKUKARLPiparkökukarlarnir eru flottir, þó var minna um þá en litla jólasveina. LITLAR LÚSÍUR Á leikskólum í Svíþjóð er Lúsíuhátíðinni einnig fagnað. Þá klæðast stúlkurnar Lúsíubúningum en drengirnir í jólasveina- eða piparkarlabúninga. LÚSÍA Kosið var um Lúsíustúlkuna í Jönköping í ár en það telst mikill heiður að fá að bera kertakransinn. Hljómsveitin Buff gaf nýverið út plötuna Selfoss. Platan, sem er önnur í röðinni frá sveitinni, var tekin upp á löngu tímabili þó svo að upptökurnar sjálfar hafi aðeins staðið yfir í fjórtán daga. „Þetta er svo upptekin hljómsveit að hún hafði bara smá tíma til að fara í stúdíó. Platan var tekin upp „live“. Menn settust bara í hring og síðan var talið í,“ segir Hannes H. Friðbjarnarson, trommari í Buff. „Ef hljómsveitir gátu gert þetta sextíu og eitthvað þá hlýtur það að vera hægt í dag. Hitt tekur allt of mikinn tíma.“ Buff var stofnuð árið 2000 þegar hún var ráðin til að spila sem húshljómsveit í þættinum Björn og félagar. Eftir að þátturinn lagði upp laupana hélt Buff áfram að spila og í dag hefur hún meira en nóg að gera. „Í dag er þetta fimm manna band sem spilar gríðarlega mikið,“ segir Hannes. „Við höfum aldrei verið í sveitaballapakkanum, þó að þetta sé fyrst og fremst ballband fyrir fólk frá 10 ára og upp í nírætt. Við höfum aldrei farið í þetta hark og í raun aldrei þurft því að við höfum alltaf nóg að gera.“ Hannes segir að erfitt hafi verið að finn nafn á nýju plötuna. „Við vorum lengi búnir að velta fyrir okkur nafninu. Það er álíka erfitt að finna nafn á plötu og nafn á hljómsveit. Síðan sá Pétur framan á „box- setti“ fyrir Dallasþættina og fannst myndin fyndin. Myndin á plötunni er eftirlíking af Dallas. Við ákváðum að búa til Selfoss í staðinn og fórum til Selfoss til að finna þetta hús sem er á umslaginu og tókum myndina þar. Pétur er líka alinn upp á Selfossi og við höfum farið oft þangað að spila. Þar er alltaf stuð.“ freyr@frettabladid.is Tóku plötuna upp á gamla mátann BUFF Hljómsveitin Buff er að gefa út sína aðra plötu sem ber heitið Selfoss. 17. desember 2005 LAUGARDAGUR56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.