Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 18
 17. desember 2005 LAUGARDAGUR18 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Komdu í spennandi heim afþreyingar og upplýsinga Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar. 24.900 kr. MOTOROLA V3 RAZR SÍMI Íslandsbanki áformar að opna skrifstofu í Shanghai í Kína snemma á næsta ári. Með því vilja stjórnendur bankans veita viðskiptavinum, meðal annars frá Noregi og Íslandi, nauðsynlega þjónustu í Asíu. Mörg fyrirtæki séu eða hyggj- ast vera með starfsemi í þeirri heimsálfu. Áhersla verður lögð á að koma á viðskiptasamböndum við viðskiptavini sem eru í matvæla- framleiðslu, skipaiðnaði og orku- iðnaði. Eins á að styðja við bakið á þeim sem vilja sækja inn á nýja markaði. Fastur starfsmaður verð- ur á skrifstofunni. Auk þess er vinnuaðstaða fyrir starfsfólk Íslandsbanka sem fer utan til tímabundinna verkefna, meðal annars af fyrirtækja- eða fjár- festingasviði. Magnús Bjarnason fram- kvæmdastjóri leiðir starf Íslandsbanka í Asíu og Ameríku. - bg BJARNI ÁRMANNSSON Aukinn fjöldi fyrir- tækja hefur í hyggju að koma á starfsemi í Kína og Asíu, segir forstjóri Íslandsbanka. Íslandsbanki opnar í Kína Yfirtökunefndin hefur óskað eftir að sjá afleiðusamninga sem Baugur og Hannes Smárason gerðu við Landsbankann þegar þeim var gert að minnka hlut sinn í FL Group á miðvikudaginn. Ekki er ætlunin að endurfjármagna erlend lán ríkisins að andvirði 19 millj- arða króna heldur greiða þau að fullu á næsta ári. Ástralska flugfélagið Qantas hefur náð samningum við Boeing-verkmiðjurnar um kaup á 115 787 Dreamliner-flugvélum. Félag sem heldur utan um eign Björ- gólfsfeðga í Landsbankanum ætlar að sækja sér tíu milljarða króna með sölu skuldabréfa í desember. Mosaic Fashion tilkynnti í gær um sölu skuldabréfa fyrir sex milljarða. MARKAÐSFRÉTTIR Að loknu hlutafjárútboði til fag- fjárfesta verður Avion Group skráð í Kauphöll Íslands 20. janúar næstkomandi. Þá verða liðin tvö ár frá skrán- ingu íslensks félags í Kauphöll Íslands. Í millitíðinn hafa félögin Mosaic Fashions og Atlantic Pet- rolium verið skráð í Kauphöllina. Avion er fjárfestingarfélag á sviði flutningastarfsemi. Eignir félagsins skiptast í þrennt: Flug- vélaleigu og stoðgreinar hennar, en undir þá starfsemi heyrir flug- félagið Atlanta. Leiguflug, miðlun flugsæta og almenn ferðaþjón- usta, en þar er viðamikil starf- semi á Bretlandi gegnum flugfé- lagið Excel og ferðaskrifstofuna Travel City Holding. Þriðja stoð- in er Eimskipafélagið sem sinn- ir alhliða flutningastarfsemi og hefur unnið að uppbyggingu á hitastýrðum flutningum matvæla á alþjóðavísu. Í janúar verða boðnir til kaups hlutir fyrir um sex milljarða króna á genginu 34,3 til 38,3 og eru lág- markskaup fyrir fimm milljónir króna. Markaðsvirði félagsins við skráningu verður því á bilinu 58 til 63 milljarðar króna sem þýðir að félagið verður í hópi verðmætustu félaga í Kauphöll Íslands. Magnús Þorsteinsson, stjórn- arformaður og aðaleigandi Avion, segir ástæðu þess að almenningi séu ekki boðnir hlutir í útboðinu sé að við kaupin á Eimskip hafi verið gert ráð fyrir að Straumur – Burðarás muni greiða hluthöf- um sínum arð í formi bréfa í Avion Group. „Almennir hluthafar verða því 22 þúsund talsins eftir nokkra mánuði.“ Starfsemi Avion er á 85 stöðum um allan heim og eru starfsmenn á fimmta þúsund. Reksrarhagnaður Avion fyrir afskriftir (EBIDTA) nam 119 milljónum dollara eða 7,4 milljörðum króna. Áætlanir gera ráð fyrir að rekstrarhagnaðurinn aukist í 165 milljónir dollara eða rúma tíu milljarða króna á næsta ári. haflidi@frettabladid.is Fyrsta skráningin ís- lensks fyrirtækis í tvö ár Stefnt er að skráningu Avion Group í Kauphöll Íslands 20. janúar næst- komandi. Félagið mun erfa hluthafa úr Burðarási sem með því eignast á ný hlut í Eimskipafélaginu sem er eitt félaga Avion. HIMINN OG HAF Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips, Magnús Þorsteinsson, stjórnarfor- maður og aðaleigandi Avion Group, og Hafþór Hafsteinsson, forstjóri flugvélaleigu og flugþjónustu Avion. Avion bætist í hóp stærstu skráðu félaganna í Kauphöll Íslands þann 20. janúar. Samson eignarhaldsfélag hagnað- ist um tæpa 3,8 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins sam- kvæmt tölum sem birtust í skrán- ingarlýsingu félagsins. Félagið var stofnað í kringum eignarhald á Landsbankanum og fer þar með um 40 prósenta hlut. Eigendur Samsonar eru feðgarn- ir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson. Eigið fé Samsons eignarhalds- félags nam um 15,7 milljörðum króna en eignir þess voru um 34 milljarðar króna. Þar af var eignarhlutinn í Landsbankanum bókfærður á 31 milljarð. - eþa Samson hagnast vel Eins og pylsuvagn Enn gustar í kringum hinn yfirlýsingaglaða Jan Petter Sissener, yfirmann Kaupþings í Noregi, sem hefur nú sagt að fyrirtækið hafi verið eins og pylsuvagn þegar hann tók við stjórnartaumunum í septemb- er. „Þegar ég kom til starfa leit staðurinn út eins og pylsuvagn sem vildi verða alvöru verðbréfafyrirtæki. Það vantaði sárlega ýmsar verklagsreglur.“ Eftir að Sissener var ráðinn hefur Kaupthing Norge eytt millj- ónum norskra króna í að „hreinsa til“ innanbúðar. Nýir verðbréfamiðlarar og sérfræðingar hafa verið ráðnir til starfa. Kaupthing Norge fékk harða áminn- ingu frá norska fjármálaeftirlitinu í sumar fyrir slæleg vinnubrögð og var forveri Sisseners látinn fara. Fyrirtækið hefur nú fengið bréf frá norsku kauphöllinni þar sem gerðar eru athugasemdir við störf starfsmanna félagsins sem hafa verið iðnir við að setja inn vitlaus tilboð í miðlunarkerfi kauphallarinnar. Um 7 af 30 mistökum, sem leiddu til viðskipta á þriðja ársfjórð- ungi, skrifast á reikning Kaupthings Norge. Keops gerir það gott Danska fasteignafélagið Keops hækkaði um tíu pró- sent í kauphöllinni í Kaupmannahöfn eftir að það birti ársuppgjör. Hagnaður Keops nam tæpum fimm milljörðum króna samanborið við 1,2 milljarða hagnað árið áður. Baugur á um 30 prósenta hlut í Keops. Hlutinn keypti félagið í júlí fyrir sex milljarða króna og hefur hluturinn meira en tvöfald- ast í verði frá kaupunum. Frá ára- mótum hefur gengi Keops hins vegar hækkað mun meira eða úr fjórum krónum á hlut í 26 krónur eða um 550 prósent. Peningaskápurinn... Kauphöllin hefur áminnt Íslands- banka opinberlega fyrir brot á aðildarreglum Norex. Við venjubundið eftirlit kom í ljós að starfsmaður bankans sem ekki hefur leyfi til miðlunar notaði auðkenni annars starfsmanns við viðskiptin. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka var um verklag við afleysingar í viðskiptum fjárstýr- ingar með ríkisskuldabréf að ræða. Það stóð í þrjá daga og var með þeim hætti að starfsmaður bankans átti viðskipti á auðkenni annars starfs- manns sem var í fæðingarorlofi. Farið hefur verið yfir verklag og tryggt að slíkt geti ekki endurtekið sig. Starfsmaðurinn sem átti við- skiptin var með útrunnið leyfi til viðskipta, en átti viðskiptin undir eftirliti samstarfsmanns með leyfi. Fram kemur í tilkynningu Kaup- hallarinnar að einnig hafi verið til- greindar tæknilegar ástæður sem hafist hafi verið handa við að ráða bót á. Miðlarinn sem að beiðni bank- ans lánaði auðkenni sitt fékk óopin- berlega áminningu fyrir vikið, en bankinn fékk opinbera áminningu frá Kauphöllinni. - hh Fær áminningu Kauphallarinnar Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.310 -0,10% Fjöldi viðskipta: 228 Velta: 1.677 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 49,20 -1,20% ... Bakkavör 51,20 -0,40% ... FL Group 17,40 -0,60% ... Flaga 4,90 +0,00% ... HB Grandi 9,50 +0,00% ... Íslandsbanki 17,10 -0,60% ... Jarðboranir 24,30 +0,00% ... KB banki 695,00 +0,10% ... Kögun 60,00 +0,00% ... Landsbankinn 24,20 +0,40% ... Marel 65,00 +0,00% ... SÍF 4,18 +0,70% ... Straumur-Burðarás 15,60 +0,70% ... Össur 114,50 -1,30% MESTA HÆKKUN SÍF +0,72% Straumur +,065% Landsbankinn +0,42% MESTA LÆKKUN Össur -1,29% Actavis -1,21% DAGSBRÚN -1,08%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.