Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 39
[ ]
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Staflarar
einnig úrval af pallettutjökkum
• Lágmúli 9 / 108 Reykjavík
• Sími: 533 2845 / GSM: 896 0515
• www.sturlaugur.is
Almennar bílaviðgerðir
BÍLSTJÓRAR - HÆTTIÐ AÐ PRÍLA!
RAFSTÝRÐAR YFIRBREIÐSLUR
FYRIR VÖRUBÍLA, VAGNA OG GÁMA
G.T. ÓSKARSSON EHF
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000 • www.islandia.is/scania
Bensínstöðvar bjóða flestar upp á ódýrara bensín ef fólk dælir sjálft. Það er ekki erfitt
að setja bensín á bíl og sparnaðurinn er tölverður því það safnast þegar saman kemur.
SG bílasala í Reykjanesbæ á
glæsilega Volkswagen-bjöllu
með blæju.
„Við félagarnir vorum bara á
rúntinum í bænum og sáum þenn-
an bíl í innkeyrslu. Bönkuðum
upp á hjá manninum og föluðum
gripinn,“ segir Grétar Ólason,
bílasali hjá SG bílasölu í Reykja-
nesbæ. „Það var tannlæknir sem
átti bílinn og hafði tekið hann
með sér heim frá Svíþjóð. Hann
var tilbúinn að selja okkur hann.
Bíllinn var í þokkalegu ástandi,
krómið var farið að ryðga svolítið
á honum og eitt bretti var ónýtt.
Við skiptum um krómið kring-
um ljósið, stefnuljós, stuðara og
spegla. Tókum vélina upp og sett-
um nýtt púst. Þetta er Volkswag-
en 1303 og ég veit ekki betur en
þetta sé eini blæjubíllinn sinnar
gerðar á landinu.“ ■
Sumarlegur bíll í meira lagi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Eina bjallan með blæju
Arctic Cat M7 var valinn verklegasti
sleðinn á Vetrarsportsýningunni,
sem haldin var nýlega á Akureyri. Að
sögn Helgu Guðrúnar Jónasdóttur,
kynningarstjóra B&L, er framboðið
af góðum vélsleðum mikið og því
ánægjulegt að M7 hreppti titilinn.
„Hann þykir jafnframt einn athygl-
isverðasti brekku- eða klifursleðinn
í dag og hefur sem slíkur hlotið þó
nokkrar viðurkenningar.“
Vetrarsportsýningin er haldin árlega
og er óhætt að segja að hún sé
hápunkturinn í kynningu á þeirri
vöru og þjónustu sem er í boði á
þessum vaxandi markaði. Undan-
farin ár hafa gestir sýningarinnar
meðal annars valið auk verklegasta
sleðann, flottasta sýningarbásinn,
sem reyndist að þessu sinni vera á
vegum Toyota á Akureyri.
M7 verklegasti
sleðinn
AÐ MATI GESTA VETRARSPORTS
2005
M7 er margverðlaunaður sleði. Nýjasta
fjöðrin í hattinn bættist við á Vetrar-
sport 2005.
vetrarsport }
Toyota Aygo er svo sannarlega
smábíll sem stendur undir nafni.
Þetta er fjögurra manna bíll og
nettur á alla enda og kanta, hann
er meira að segja lítill við hlið
venjulegra smábíla.
Ökumaður finnur líka fyrir
því að hann situr undir stýri í
smábíl. Bíllinn hreinlega smýgur
allt, bæði vegna smæðar sinnar
og vegna þess hversu lipur hann
er í stýrinu og ekki síst með afar
skemmtilega góðan beygjuradí-
us. En Toyota Aygo er líka býsna
snarp ur og tekur vel við sér, sé
svolítið stigið á bensíngjöfina.
Hann er því borgarbíll eins og þeir
gerast þægilegastir. Sparneytinn
er hann líka,uppgefin eyðsla ekki
nema 4,6 lítrar á hundraðið.
Að innan er bíllinn afar lag-
legur. Innréttingin hefur vandað
yfirbragð og hönnunin er nútíma-
leg. Allt er ákaflega vel í seiling-
arfæri bílstjórans eins og nærri
má geta í svona nettum bíl. Sætin
eru þægileg, líka aftursætin, og
mesta furða hvað fótarýmið er
mikið þar, jafnvel þótt rúmt sé
um fætur í framsæti og áklæðið
er vandað eins og innréttingin.
Glasahaldaldarar eru á sínum
stað og ágæt hilla farþegamegin.
Skottið er að sjálfsögðu ekki stórt
en rúmar þó algerlega nokkra
innkaupapoka eða annað það sem
fólk kann að vera að skjótast með
milli húsa. Einangrun bílsins er
kannski það sem helst mætti finna
að, það heyrist talsvert í þessari
litlu vél inn í bílinn þegar henni er
gefið vel inn.
Markhópur Toyota Aygo virð-
ist fyrst og fremst vera ungt fólk.
Bíllinn hentar þó vel öllum þeim
sem fyrst og fremst ferðast um
innanbæjar og kjósa neyslugrann-
an og lipran bíl. Þar er hann val-
kostur sem sker sig úr fjöldanum
vegna þess hversu lítill hann er
en um leið snarpur og verulega
skemmtilegur farkostur. Aygo er
sem sagt áhugaverð viðbót fyrir
þá sem ánetjast hafa smábílum
en þeim virðist fara fjölgandi á
sama tíma og stórum bílum fjölg-
ar einnig. steinunn@frettabladid.is
Raunverulegur smábíll
Aygo er nýr bíll frá Toyota, minni en sá minnsti hingað til, Yaris. Aygo er sannarlega lítill, nærri því
svo nettur að hægt sé að leggja honum þversum í stæði eins og frændur okkar gera í stórborgum
suður í Evrópu.
Toyota Aygo 1.0 VVT-i 68 hestöfl
3 dyra 1.230.000
5 dyra 1.299.000
Toyota Aygo er bíll sem sker sig úr fjöldanum, ekki bara vegna þess hvað hann er lítill
heldur einnig vegna þess að hann er nútímalegur og um leið fallegur.
Skottið rúmar nokkra innkaupapoka eða
smávegis farangur og aðgengi í það er
ágætt.
REYNSLUAKSTUR
1. Hönnunin á miðjustokknum er afar vel
heppnuð og baklýsingin á miðstöðinni
gefur sterkan svip.
2. Baksvipurinn er sterkur með svartri
umgjörð afturrúðunnar.
3. Útsýni bílstjóra er gott.
4. Afturhurðirnar eru ekki stórar en það er
mesta furða hvað plássið er þó gott í
aftursætunum.
1 2
3
4