Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 49
[ ]
Kringlunni • Sími 533-2290
20%
afsláttur
af öllum
dömufatnaði
fram að jólum
Make it better.
Ljósköflótt frá Lacoste.
Dáleiðandi
köflótt
kápa frá
Wolf-
gang
Joop.
Það er ekki bara veggfóðrið sem
verður köflótt næsta vor. Á helstu
tískusýningum sem haldnar voru
fyrir vor- og sumartískuna bar
mikið á þessu skemmtilega munstri.
Þar voru köflótt föt allt frá nettum
og kvenlegum yfir í pönkaraleg og
hálf geðveikisleg.
Köflótt veröld
Hönnuðir hafa tekið upp á köflóttu munstri fyrir vor-
og sumartískuna.
Bláköflótt pils frá Richard Chai.
Falleg kápa frá vorlínu Ashish N Soni.
,,Köflótt bætti sveitarómantík inn í fata-
línuna mína,“ segir Zac Posen. ,,Auk þess
passar það við alla skó!“
Skartgripaverslunin Gullkúnst
var opnuð í nýju húsnæði að
Laugavegi 13 hinn 1. desember
síðastliðinn. Helga Jónsdóttir,
gullsmiður og eigandi verslun-
arinnar, er mjög ánægð með
nýja húsnæðið.
Skartgripaverslunin Gullkúnst
var áður að Laugavegi 45 en þar
sem til stóð að rífa það hús varð að
flytja verslunina um set.
„Þetta er mörgum sinnum
stærra húsnæði og við erum núna
stærsta gullsmíðaverslunin á
Íslandi,“ segir Helga, sem er mjög
ánægð með flutninginn.
Gullsmíðaverkstæðið er á jarð-
hæðinni á bak við verslunina.
„Við erum tveir smiðir starfandi
hérna, ég og Sveinn Guðnason,
og svo erum við með stúlkur sem
vinna í búðinni,“ segir Helga.
Helga hefur starfað sem gull-
smiður í þrettán ár og Sveinn
hefur unnið með henni í rúmt ár.
„Ég hef alltaf verið með annan
smið með mér þar sem það er of
mikið að gera fyrir einn smið á
Laugaveginum.“
Það er mikið að gera í Gull-
kúnst og sérstaklega núna fyrir
jólin. „Það er alltaf ákveðinn
hópur fólks sem vill láta sérsmíða
skartgripi fyrir sig fyrir jólin. Oft
vill fólk láta smíða við hluti sem
það lét smíða fyrir sig í fyrra eða
hitteðfyrra. Þá vill það kannski
láta smíða hálsmen við eyrna-
lokka sem voru smíðaðir áður.“
Helga segir að eftir að versl-
unin flutti komi miklu fleira fólk
inn. „Verslunin er sett þannig upp
að hún líkist í raun og veru gall-
eríi meira en verslun og það er
mikið um að fólk sem er að ganga
framhjá komi inn til þess að
skoða. Útlendingar eru til dæmis
oft ekki alveg vissir um það hvort
þetta er verslun eða gallerí.“
Helga finnur mikinn mun á
staðsetningunni og er mjög sátt.
„Það er ekki hægt annað en að
vera sáttur á flottasta horni í
bænum,“ segir hún og hlær.
Á flottasta horninu í bænum
Skartgripir eru alltaf í tísku. Það er mjög sniðugt að gefa ein-
hverjum sem manni þykir vænt um fallegan skartgrip í jólagjöf.
Glæsileg jólatilboð
fyrir dömur og herra
í þessum frábærum merkjum
Gullbrá Nóatún 17 s. 562-4217
Helga Jónsdóttir gullsmiður.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA