Fréttablaðið - 17.12.2005, Page 49

Fréttablaðið - 17.12.2005, Page 49
[ ] Kringlunni • Sími 533-2290 20% afsláttur af öllum dömufatnaði fram að jólum Make it better. Ljósköflótt frá Lacoste. Dáleiðandi köflótt kápa frá Wolf- gang Joop. Það er ekki bara veggfóðrið sem verður köflótt næsta vor. Á helstu tískusýningum sem haldnar voru fyrir vor- og sumartískuna bar mikið á þessu skemmtilega munstri. Þar voru köflótt föt allt frá nettum og kvenlegum yfir í pönkaraleg og hálf geðveikisleg. Köflótt veröld Hönnuðir hafa tekið upp á köflóttu munstri fyrir vor- og sumartískuna. Bláköflótt pils frá Richard Chai. Falleg kápa frá vorlínu Ashish N Soni. ,,Köflótt bætti sveitarómantík inn í fata- línuna mína,“ segir Zac Posen. ,,Auk þess passar það við alla skó!“ Skartgripaverslunin Gullkúnst var opnuð í nýju húsnæði að Laugavegi 13 hinn 1. desember síðastliðinn. Helga Jónsdóttir, gullsmiður og eigandi verslun- arinnar, er mjög ánægð með nýja húsnæðið. Skartgripaverslunin Gullkúnst var áður að Laugavegi 45 en þar sem til stóð að rífa það hús varð að flytja verslunina um set. „Þetta er mörgum sinnum stærra húsnæði og við erum núna stærsta gullsmíðaverslunin á Íslandi,“ segir Helga, sem er mjög ánægð með flutninginn. Gullsmíðaverkstæðið er á jarð- hæðinni á bak við verslunina. „Við erum tveir smiðir starfandi hérna, ég og Sveinn Guðnason, og svo erum við með stúlkur sem vinna í búðinni,“ segir Helga. Helga hefur starfað sem gull- smiður í þrettán ár og Sveinn hefur unnið með henni í rúmt ár. „Ég hef alltaf verið með annan smið með mér þar sem það er of mikið að gera fyrir einn smið á Laugaveginum.“ Það er mikið að gera í Gull- kúnst og sérstaklega núna fyrir jólin. „Það er alltaf ákveðinn hópur fólks sem vill láta sérsmíða skartgripi fyrir sig fyrir jólin. Oft vill fólk láta smíða við hluti sem það lét smíða fyrir sig í fyrra eða hitteðfyrra. Þá vill það kannski láta smíða hálsmen við eyrna- lokka sem voru smíðaðir áður.“ Helga segir að eftir að versl- unin flutti komi miklu fleira fólk inn. „Verslunin er sett þannig upp að hún líkist í raun og veru gall- eríi meira en verslun og það er mikið um að fólk sem er að ganga framhjá komi inn til þess að skoða. Útlendingar eru til dæmis oft ekki alveg vissir um það hvort þetta er verslun eða gallerí.“ Helga finnur mikinn mun á staðsetningunni og er mjög sátt. „Það er ekki hægt annað en að vera sáttur á flottasta horni í bænum,“ segir hún og hlær. Á flottasta horninu í bænum Skartgripir eru alltaf í tísku. Það er mjög sniðugt að gefa ein- hverjum sem manni þykir vænt um fallegan skartgrip í jólagjöf. Glæsileg jólatilboð fyrir dömur og herra í þessum frábærum merkjum Gullbrá Nóatún 17 s. 562-4217 Helga Jónsdóttir gullsmiður. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.