Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 65
 17. desember 2005 LAUGARDAGUR40 Sumir einstaklingar eru fæddar stjörnur. Slíkt fólk fékk ekki einungis í vöggu- gjöf hæfileika til þess að sinna list sinni með afbrigðum vel heldur elskar það líka athygli. Það kann líka að meðhöndla frægð og kann að stjórna sam- talinu þegar fjölmörg augu eru límd á þeim. Claire Danes er ekki ein af þessum manneskjum og þarf því að hafa meira fyrir stjörnuskini sínu. Nýtti ekki tækifærin Hún lítur út fyrir að vera mik- ill hugsuður. Svipað gáfuð og falleg, en á það eflaust til að draga sig inn í skel sína þegar hún þráir einveru. Það var a.m.k. hennar eigin ákvörðun að láta sig hverfa eftir að stjarna hennar skaust upp á himinn eftir að hún lék í stórkostlegri útgáfu Baz Luhrman á Rómeó og Júlíu. Mótleikari hennar þar, Leonardo DiCaprio, henti sér aftur á móti beint í djúpu laugina, tók að sér aðalhlutverkið í Titanic og varð einn frægasti og eftirsóknasti ungi leikari Hollywood. Claire Danes hafði öll sömu tækifæri, en kaus að nýta sér þau ekki. Núna virðist hana langa til þess að komast aftur í sviðsljós- ið. Síðasta stóra hlutverkið henn- ar var á móti ríkisstjóra Kali- forníu, Arnold Schwarzenegger, í þriðju Terminator-myndinni. Núna fær hún tækifæri til þess að sýna hvað hún getur á leik- sviðinu, með öllu alvarlegra hlutverki í gamanmyndinni The Family Stone. Þar leikur hún systur og eina trúnaðarvin Söruh Jessicu Parker sem er að fara úr stór- borginni til sveitabæjar unnusta hennar að hitta afar sérvitra fjölskyldu hans í fyrsta skiptið. Það er vel valið í öll hlutverk, en mest fer fyrir Söruh og stórleik- konunni Diane Keaton sem leik- ur mömmuna, sem er hjarta fjöl- skyldunnar. Þetta er á endanum dramatísk en fyndin jólamynd sem ætti að fylla flesta, sem hafa hjarta, að vellíðan. Listin að láta sig hverfa Þegar Claire trítlar inn í hótel- herbergið þar sem viðtalið fer fram er augljóst að hún er þreytt. Þetta er síðasta viðtal dagsins og hún hefur líklegast þurft að svara sömu spurningunum frá því eldsnemma um morguninn. Þegar hún sest niður tekur hún af sér háhæluðu skóna og kross- leggur fæturna í stólnum. Hún er öll á iði og nuddar stöðugt á sér hægri ilina. Ertu alveg búin á því? spyr ég í von um að hún opni sig meira við snertu af samúð. „Já, ég er búin að drekka um sjö kaffi- bolla,“ segir hún um leið og hún leitar að þægilegustu stöðunni til þess að sitja í. „Ég er búin að gefa viðtöl núna stanslaust í mánuð og var að koma úr kynn- ingarferð um Bandaríkin.“ Og er öll þessi vinna þess virði? „Já, vegna þess að ég elska að leika. Sérstaklega þegar maður er svo heppin að vinna með handrit sem er svona vel skrifað. Líka að vinna með leik- stjóra sem er svona skapandi og þegar samstafsfólk manns er svona hæfileikaríkt og gefandi. Það eru svona hlutir sem halda manni bjartsýnum. En ég hef líka lent í hræðilegum aðstæð- um.“ Nú, segðu mér frá því. „Hehe. Nei, ég held ekki. En svoleiðis gefur manni ennþá meiri ástæðu til þess að vera þakklátur fyrir svona verkefni, þegar þau loksins koma.“ Vandarðu þá valið á handrit- um vel? „Já, ég geri það núna. Þegar ég var yngri læt ég oft aðra hjálpa til við svoleiðis ákvarð- anir. Ég hafði ekki eins gott nef fyrir því hvað væri gott fyrir mig. Þá gerði ég mér heldur enga grein fyrir því hversu dýrkeypt það getur verið að velja rangt verkefni. Maður eyðir miklum tíma í hverja mynd. Yfirleitt fer um mánuður í undirbúning, þrír í tökur og mánuður í kynningu. Öll verkefni hafa mikil áhrif á líf mitt. Ég verð aftengja mig frá hversdagslífi mínu og vinum. Maður fær yfirleitt ágætlega borgað fyrir svona hluti en ef þeir eru ekki gefandi taka þeir mjög mikið á, andlega.“ Var það ástæðan fyrir því að þú ákvaðst að láta þig hverfa? „Já, ég fór í skóla í tvö ár og lék ekkert í heil þrjú ár. Ég er búin að vera í þessum bransa svo lengi. Byrjaði tólf ára og þetta tók alveg yfir líf mitt. Ég var líka með mjög barnalegar hugmyndir um hvernig kvikmyndabransinn virkaði. Allt í einu hafði ég glás af tækifærum og ég hafði ekki hugmynd um hvernig ég ætti að spila úr þeim.“ Hverjir voru draumar þínir þá og hverjir eru þeir núna? „Þá var þetta mjög einfalt. Mig langaði bara að vera leik- kona og hoppaði á flest sem bauðst. Núna langar mig að eyða tíma mínum í að gera kvikmynd- ir sem ég get verið stolt af. Mig langar til þess að leika í mynd- um sem hafa eitthvert gildi fyrir fólk og okkar menningu, hvort sem það er bara í formi þess að bjóða upp á góða skemmtun eða eitthvað annað. Þetta er erfið- ara en maður heldur. Núna er ég fullorðin og þetta er vinna mín. Ég er búin að skapa mér líf sem ég verð að rækta og vernda. Það tekur tíma. Þess vegna get ég ekki unnið eins og brjálæðingur, eins og ég gerði. Því þá mun ég ekki eiga neitt líf. Það tók mig smá tíma að átta mig á þessu.“ Þú hlýtur að hafa verið mjög ákveðinn krakki. „Já, ég held það. Frá því ég var fimm ára vissi ég upp á hár hvað ég vildi gera í lífinu. Ég hef ekki hugmynd af hverju. Fyrsta minning mín af leiklist var frá því að ég var þriggja ára. Ég var í leikskóla og fóstrurnar skipuðu öllum að leggja sig. Ég vildi það ekki því ég gat aldrei sofnað. Þess vegna var ég staðráðin í að leika á fóstruna, þannig að hún héldi að ég væri sofandi. Ég mundi eftir því að ég hafði séð mömmu mína kippast til einhvern tím- ann þegar hún svaf, þannig að ég apaði það eftir henni. Ég var mjög stolt af mér yfir því að hafa náð að plata hana. Síðan þá hef ég haft gaman af því að þjálfa ímyndaraflið og apa eftir hegðun annarra. Stundum nýt ég þess þegar fólk horfir á mig, en stundum ekki. Mér finnst að minnsta kosti ekki erfitt að vera berskjölduð frammi fyrir fólki. Stundum er það ógnvekjandi en stundum spennandi. Ég fæ hvöt til þess að gera það annað slagið og ég hef alltaf haft hana.“ Hvernig leið þér eftir að þú dróst þig úr sviðsljósinu? „Skringilega, þetta var mjög erfitt. Fyrsta árið var ég mjög þakklát, því ég var að borga allt of háa skatta og var orðin lang- þreytt. Svo byrjaði ég að finna fyrir því að ég þurfti á leiklist- inni að halda andlega. Ég kláraði aldrei skólann sem ég var í. Ég skemmti mér þó vel, bjó á skóla- svæðinu, lærði sálfræði, ensku og tölvuvísindi og tók mikinn þátt í öllu félagslífi.“ Södd af Mexíkó og DiCaprio Claire Danes fangaði fyrst athygli áhorfenda þegar hún lék í sjónvarpsþáttunum My So Called Life sem Ríkissjónvarp- ið sýndi fyrir rúmum tíu árum síðan. Þar lék hún taugastrekkta unglingsstúlku sem var að glíma við þær erfiðu þrautir sem flest okkar neyðast til þess að fara í gegnum á kynþroskaaldrinum. Hún var mjög sannfærandi og það er ekki erfitt þegar maður situr á móti henni að finna brot af þeirri stúlku. Í The Family Stone er hún í hlutverki fallegu góðhjörtuðu stelpunnar, eða öllu heldur konu sem kemur til þess að hjálpa taugastrekktri eldri systur sinni að takast á við afar sérvitra fjölskyldu unnusta hennar. Hún hefði án efa aldrei fengið hlut- verkið ef hún væri ekki svona auðveld fyrir augað. Hún veit þetta og gerir sér grein fyrir því hversu miklu máli útlit og ímynd skiptir í hennar bransa. „Já, en maður getur aldrei unnið. Ég er mjög mjó frá náttúrunnar hendi. Stundum fæ ég ekki hlutverk sem mig langar í út af því að ég er of mjó, eða vegna þess að ég er ekki með nægilega miklar línur. Það er alltaf hægt að finna eitthvað að öllum, sem þeir þurfa að afsaka sig fyrir. Svona er þessi miðill bara og fólki líkar að horfa á myndvæna leikara. Það er svo sem allt í lagi, en það er ekki ástæðan fyrir því að ég lifi og starfa í þessum heimi. Ég velti slíku ekki fyrir mér þegar ég er að leika og ég vil trúa því að ég sé ekki bara þekkt vegna þess að ég sé sæt. Þetta er samt atriði í bransanum í dag. Sér- staklega vegna slúðurblaðanna. Maður verður bara að horfa framhjá því.“ Þér hefur tekist að halda einkalífi þínu mjög prívat. Það hlýtur að vera erfitt? „Ég er alltaf að uppgötva hversu mikilvægt það er að skilja vinnuna að frá einkalíf- inu. Þetta er mjög erfitt fyrir mig því ég hef alltaf verið mjög opin, og eiginlega aldrei með skjöld uppi. Ég er að reyna að vernda mig meira núna en ég hef gert áður.“ Gastu tengt þig eitthvað við persónu þína í myndinni? „Hún er svo góð stelpa. Síðan hefur engin persóna sem ég hef leikið átt jafn góða innkomu og hún. Það fyrsta sem hún gerir er að detta á hausinn úr rútu. Að sjá fólk detta er og verður alltaf fyndið. Ég þurfti að eyða hálfum degi í það að fljúga á hausinn.“ Líður þér eins og þú fáir hlut- verk sem eru lík þeirri ímynd sem fólk hefur á þér? „Nei, og ég hef aldrei áður fengið að leika skynsömu stúlk- una. Ég er alltaf stelpan sem er flókin og keyrð áfram af andleg- um þjáningum. Þarna fæ ég að vera ljóshærð, viðkunnanleg og andlega heilbrigð.“ Sem er ekki góð lýsing af þér þá? „Nei. Einstaka sinnum næ ég að vera andlega heilbrigð. Ég er ekki oft ljóshærð... en viðkunn- anleg? Jú, ég á mínar stundir.“ Eitt að lokum, er það satt að þú hafir upphaflega átt að leika aðalhlutverkið í Titanic á móti Leonardo DiCaprio? „Já, en ég var nýbúin að eyða hálfu ári í það að leika í ást- arsögu á móti Leonardo sem var tekin í Mexíkó, þannig að mér fannst það hálf undarlegt og afþakkaði. Titanic var líka tekin í Mexíkó, hefði tekið aðra sex mánuði og ég hefði verið að vinna með sama mótleikara. Ég er ótrúlega ánægð að Kate Wins- let hafi fengið það hlutverk, því hún var algjörlega fullkomin fyrir það. Ég var komin með nóg af Leonardo og Mexíkó í bili. Ég elska bæði, en var bara orðin södd.“ biggi@frettabladid.is Komdu í spennandi heim afþreyingar og upplýsinga Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 06 37 12 /2 00 5 KOMDU Í SPENNANDI HEIM AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA 19.900 kr. NOKIA 6101 SÍMI Skynsama stúlkan Gamanmyndin The Family Stone er mönnuð stórskotaliði á nánast öllum sviðum. Myndin markar líka endurkomu Claire Danes í alvarleg hlutverk, því hún hélt sig frá myndavélunum í þó nokkurn tíma. Birgir Örn Steinarsson hitti hana í London og talaði við hana um myndina og sviðsljósið. FAMILY STONE Nýjasta mynd Danes nefnist Family Stone og er dramatísk og fyndin jólamynd. CLAIRE DANES Danes tók sér þriggja ára frí frá leiklistinni á sínum tíma eftir að hafa leikið síðan hún var tólf ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.