Fréttablaðið - 17.12.2005, Page 46
LAUGARDAGUR 17. desember 2005
Full búð
af frábærum jólagjöfum
Húfur, trefill
og vettlingar
1.990 kr.
1.200 kr./stk.
Barnapeysa
með hettu
3.950 kr.
2.900 kr.
Kjölur dömu,
Wind Pro
8.990 kr.
5.900 kr.
Kjölur dömu
7.990 kr.
5.500 kr.
Askja light
11.990 kr.
7.900 kr.
Faxafeni 12, opið föstudag 10-20, laugardag 10-20, sunnudag 11-17
Tindur
Technical
15.990 kr.
9.900 kr.
Skógræktarfélög landsins standa
fyrir jólatrjáasölu í ár eins og
endranær. Víðsvegar er fjölskyld-
um boðið að koma í skógana og
velja sér tré í fallegu umhverfi.
Enn fremur geta viðskiptavinir
sums staðar fengið að höggva
tré sín sjálfir. Jólatrjáasalan er
ein helsta tekjulind félaganna og
fyrir hvert keypt tré er hægt að
gróðursetja 30-40 ný í staðinn.
Skógræktarfélög Íslands verða
með sölu á eftirfarandi stöðum í
dag og á morgun:
Höfðaskógur hjá Selinu
í Hafnarfirði
Kl. 10-18 í dag.
Kl. 10-16 á morgun.
Hamrahlíð í Úlfarsfelli
Kl. 10-16 í dag og á morgun.
Hægt að velja og höggva eigið tré.
Fossá í Hvalfirði
Kl. 11-15 í dag og á morgun.
Hægt að velja og höggva eigið tré.
Daníelslundur í Borgarfirði
Kl. 11-16 í dag og á morgun.
Hægt að velja og höggva eigið tré.
Kjarnaskógur og Glerártorg
í Eyjafirði
Kl. 10-18 alla daga fram að jólum.
Eyjólfsstaðaskógur á Austurlandi
Kl. 12-16 í dag og á morgun.
Hægt að velja og höggva eigið tré.
Boðið verður upp á kakó í Blönd-
alsbúð.
Jólatrjáahátíð í Heiðmörk
Kl. 11-15 á morgun.
Hægt að velja og höggva eigið tré.
Haukafell í Austur-Skaftafells-
sýslu
Kl. 11-16 á morgun.
Hægt að velja og höggva eigið tré.
Grunnskólinn í Stykkishólmi
við Borgarbraut
Kl. 11-16 í dag og á morgun.
Nánari upplýsingar
á www.skog.is
Jólatrén í
skóginum
Víða er hægt að kaupa jóla-
tré um helgina og sumstaðar
má höggva trén sjálfur.
Jólatrjáakaup geta verið skemmtileg
fjölskyldustund.
Tinna Gunnarsdóttir er hönnuður
frumlegs snaga sem fæst í versl-
un Þjóðminjasafnsins og Epal.
Starkaður er snagi úr steyptu áli
sem fór í framleiðslu síðastlið-
ið sumar. Formið tekur hann frá
hvaltönn sem Tinna kveðst hafa
fengið gefins í tilefni af opnun á
Gallerí Greip árið 1993. „Þarna
mætast tvö eldheit efni sem eru
hvalurinn og álið,“ segir hún
kankvís. Hún upplýsir að snag-
inn hafi fyrst verið sýndur í fyrr-
nefndu galleríi árið 1996 á sýning-
unni Snagar þar sem 50 snagar
eftir myndlistarmenn og hönnuði
voru sýndir. Margir þeirra hafi
síðan lifað áfram í einhverju
formi. „Starkaður er tileinkað-
ur franska hönnuðinum Philippe
Starck sem notaði mikið lífræn
form og hornlaga á níunda ára-
tugnum,“ segir Tinna og telur að
hvaltennur gætu allt eins komið
úr smiðju hans. ■
Starkaður er úr steyptu áli
Starkaður er náttúruleg-
ur snagi sem minnir á
nautshorn eða hvaltönn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI