Fréttablaðið - 17.12.2005, Síða 62

Fréttablaðið - 17.12.2005, Síða 62
LAUGARDAGUR 17. desember 2005 HVAÐ ER ÞAÐ MERKILEGASTA SEM FORNLEIFAFRÆÐINGAR HAFA FUNDIÐ? Fornleifafræðingar myndu flestir segja að allar fornleifar séu merki- legar og að ekki sé hægt að gera upp á milli þeirra – hver einasti gripur og bygging séu mikilvæg til að hjálpa okkur að skilja fortíðina. Það er rétt svo langt sem það nær en hinsvegar hafa fornleifar oft meira gildi en bara sem einingar í rökræðu vísindamanna um fortíð- ina. Sumar fornleifar öðlast frægð og fá tilfinningalegt og táknrænt gildi fyrir hópa fólks. Hér á Íslandi myndum við til dæmis getað bent á Valþjófsstaðarhurðina eða Kon- ungsbók Eddukvæða sem mikil- væga forngripi fyrir íslenska þjóð- erniskennd. Sögulegir staðir eins og Þingvellir geta líka haft þannig táknrænt gildi. Sumir staðir „merkilegri“ en aðrir Frægir gripir og staðir eru aðeins örlítið brot af öllum fornleifum í heiminum. Þeir eru samt mikil- vægir því athygli almennings bein- ist að þeim og athyglinni fylgir fjármagn. Því sinna vísindamenn slíkum fornleifum meira en hinum sem ekki hafa orðið frægar. Á Heimsminjaskrá UNESCO – menn- ingarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna – er úrval fornleifastaða (og raunar náttúruminjastaða líka) sem alþjóðasamfélagið hefur skil- greint sem merkilegri en aðra. Þingvellir eru eini íslenski staðurinn á þessari skrá en íslensk stjórnvöld hafa líka friðlýst um 700 staði. Þessar friðlýsingar eru komnar nokkuð til ára sinna og nokkuð umdeildar, en þær byggja að minnsta kosti á þeirri hugmynd að sumir staðir séu merkilegri en aðrir. Ekki eru til sambærileg skil- greiningakerfi fyrir forngripi en þeir eru undantekningalítið varð- veittir á opinberum söfnum sem hvert um sig leitast við að hafa á sýningum sínum þá gripi sem þykja merkastir. Mikilfengleg mannvirki Frá fornöld hafa menn talað um sjö undur veraldar. Þetta voru allt stór- fenglegar byggingar í Austurlönd- um nær og við Miðjarðarhaf. Um margar þeirra eru engin ummerki lengur en aðrar, til dæmis pýram- íðinn mikli í Giza, standa enn til vitnis um forn verkfræðiafrek. Mikilfenglegar mannvirkjaleifar eins og pýramíðarnir, Kínamúr- inn og Stonehenge eru líklega það sem fólki dettur fyrst í hug þegar talað er um merkilegustu fornleif- ar heims. Mannvirki af því tagi eru líka ótvírætt merkileg af því að þau eru óvenjuleg og af því að menn hafa spáð í þau nánast frá því að þau voru reist; reynt að skilja tilgang þeirra, hvernig þau voru byggð og hvað þau segja um fortíðina. Þau hafa þannig mótað söguna og skilning okkar á henni. Æsilegir fornleifafundir Margir fornleifafundir eru æsi- legir og fá mikla kynningu því þeir veita skyndilega innsýn inn í fortíðina. Staðir eins og Pompei og gröf Tut ankh amons eru í þess- um flokki, einnig ísmaðurinn Ötzi, en líka staðir eins og L‘anse aux Meadows – búsetuleifar norrænna manna á Nýfundnalandi – sem í sjálfu sér geta ekki talist æsileg- ir, en virðast staðfesta kenningar sem áður höfðu verið dregnar í efa. Fornleifar sem breytt hafa hug- myndum Önnur nálgun er að benda á þær fornleifar sem mest hafa komið á óvart og mestu hafa breytt fyrir skilning okkar á fortíðinni. Þar undir eru ýmsir fundir á seinni hluta 19. aldar sem vörpuðu nýju ljósi á uppruna og þróun mannsins. Meðal þeirra eru beinafundurinn í Neanderthal 1856 og hellamálverk- in í Altamira á Spáni sem fundust 1879. Slíkir fundir hafa gerbreytt hugmyndum manna um mannkyns- söguna. Algengara er þó að hugmynd- irnar breytist smátt og smátt með mörgum fundum sem hver og einn lætur ekki mikið yfir sér en mynda nýjan skilning þegar þeir leggjast saman. Þannig hafa fáir heyrt um staði eins og El Wad, Azraq, ‚Ain Mallaha, WF16, Abu Hureyra eða Hallan Çemi Tepesi en rannsóknir á þeim og mörgum öðrum í Aust- urlöndum nær á undanförnum áratugum hafa þó gerbreytt hug- myndum okkar um upphaf land- búnaðar fyrir meira en tíu þúsund árum síðan. HVAR ER HÆGT AÐ LÆRA FORN- LEIFAFRÆÐI? Fornleifafræði er hægt að læra æði víða. Flestir Íslendingar sem starfa á þessu sviði hafa lært í Svíþjóð (Gautaborg, Uppsölum) og á Bret- landi (London), en einnig eru dæmi um að íslenskir fornleifafræðing- ar hafi sótt menntun sína til ann- arra landa, til dæmis Danmerkur, Noregs, Þýskalands, Frakklands, Ítalíu og Bandaríkjanna. Árið 2002 var sett á stofn námsbraut í forn- leifafræði við Háskóla Íslands og er greinin kennd til 60 eininga (2 ár) til BA-prófs og einnig til MA- prófs. Í flestum háskólum á Vest- urlöndum þar sem fornleifafræði er kennd til BA- eða BS-prófs tekur námið í heild þrjú ár en algengt er að menn taki aukafag með og fornleifafræðinámið sé þá tvö ár. Framhaldsnám í fornleifafræði getur tekið allt frá einu ári (meist- aranám í breskum skólum) og upp í 3-5 ár. Staðbundin fræðigrein Fornleifafræði er fremur stað- bundin fræðigrein og því sjald- gæft að menn leiti langt út fyrir eigið menningarsvæði til að læra hana. Íslensk fornleifafræði er hvergi kennd nema við Háskóla Íslands en líkar áherslur má finna í fornleifadeildum háskól- anna í Tromsö í Noregi og Árós- um í Danmörku. Þess má geta að meðal íslenskra fornleifafræð- inga eru nokkrir með sérmenntun í fornleifafræði annarra menn- ingarsvæða, til dæmis klassískri fornleifafræði og egyptólógíu, og íslenskir fornleifafræðingar hafa fengist við rannsóknir í Afríku og Austur-Asíu. Orri Vésteinsson, lektor í forn- leifafræði við Háskóla Íslands Merkilegar fornleifar Kínamúrinn telst með merkilegri fornleif- um. VÍSINDAVEFUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast. Að jafnaði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem glímt hefur verið við að undanförnu eru: Er guðlast bannað með lögum, hvernig myndast snjókorn, þekktist samkynhneigð á víkingatímanum, hvað er sjónblekking, eru samtöl (eigindlegar rannsóknir) vísindi, og hvað er og hvernig verkar penisillín? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is Bestu vextir sparireikninga bankans Verðtryggður reikningur Auðvelt og þægilegt að spara reglulega Bundinn þar til barnið verður 18 ára Þú færð Framtíðarreikning í næsta útibúi Íslandsbanka og á isb.is. *3.000 kr. lágmarksupphæð. Framtíðarreikningur fyrir hrausta krakka Flottur Latabæjarbolur í jólapakka fylgir Framtíðarreikningi* H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 4 8 0 0
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.