Fréttablaðið - 17.12.2005, Side 77
MAÐURINN „Ég er Stefán Svan,
útskrifaðist sem fatahönnuður
síðasta vor og vinn núna í verslun-
inni Kronkron á laugavegi. Ég er
í smá hléi núna frá hönnuninni en
er samt með stúdíó með þremur
öðrum fatahönnuðum.“
TÓNLISTIN „Ég hlusta á flestallt,
án þess þó að vera alæta á tónlist
því það er margt sem ég þoli ekki.
Ég kann vel við Depeche Mode,
Trabant og finnst líka gaman að
hlusta á Manowar.“
FATASTÍLLINN „Er frekar sportí í
klæðaburði. Geng mikið í galla-
buxum og peysum en fíla líka
fallegar peysur og skyrtur. Ég hef
gaman af því að vera fjölbreyttur
í fatastíl og geta mætt einn daginn
mjög fínn og þann næsta ekki jafn
fínn. Samt reyni ég að vera oftast
frekar smekklegur þar sem ég
vinn nú í fataverslun.“
MORGUNNINN „Ég vakna kort-
eri áður en ég á að mæta í vinnu.
Reyni að sofa sem lengst fram
eftir, ligg svo uppi í rúmi og ákveð
hvaða fötum ég ætla að vera í þann
daginn. Klæði mig svo og stekk út,
gríp jafnvel kaffibolla á leiðinni í
vinnuna.“
ÞRÍR HLUTIR SEM EINKENNA STEFÁN
„Smá kaos, ég borða ekki fisk og
svo held ég að ég sé kannski svo-
lítið skemmtilegur og fyndinn.“
BÚÐIR „Augljóslega eru Kronkron
og Kron í uppáhaldi. Ég fíla líka
Adam og Evu og finnst að fólk ætti
að leggja leið sína þangað. Einnig
finnst mér Ígulker frábær búð.“
BANNAÐ „Það er bannað að fylgja
fjöldanum og gleyma sjálfstæðri
hugsun.“
ÞRÁHYGGJA „Ég er með þrá-
hyggju sem einkennist af því
að ég kaupi stundum sama hlut-
inn tvisvar ef ég er sérstaklega
heillaður af viðkomandi hlut.
Gæti til dæmis keypt sama disk-
inn tvisvar ef ég sé hann á til-
boði og finnst hann frábær. Ég
er þó farinn að standast þetta
stundum.“
SKARTGRIPIR „Ég nota ekki mikið
af skartgripum en nota stundum
tvö hálsmen. Ef ég er að fara út á
kvöldin þá á ég það til að setja á
mig skartgripi. Ég nota samt ekki
hringa en hef gaman af því að
skreyta mig með hálsmenum eða
nælum.“
RAKSPÍRI „Ég nota eiginlega þrjá.
Thirry Muglier og svo nota ég
gamalt kölnarvatn sem heitir 4711
og er búið að vera til í fimmtíu
ár eða eitthvað. Svo nota ég líka
stundum Issey Miyaki.“
HÁRIÐ „Ég reyni nú bara að gera
sem minnst við það. Er reyndar
nýbúinn að fara í fína klippingu
en ég er frekar mikill lúði þegar
kemur að hárinu, vil helst hafa
það bara frekar eðlilegt.“
FRÍ „Mig langar í frí og er eigin-
lega sama þótt ég færi til Kanarí-
eyja. Langar bara að slappa af og
hafa ekkert til að hugsa um. Mig
langar líka að heimsækja vinkonu
mína í New York og er reyndar
að fara að hitta systur mína sem
býr rétt hjá London, ætla að eyða
jólunum hjá henni.“
GRÆJUR „Dagsdaglega nota ég
græjur eins og síma, kaffivél,
iPod og tölvuna mína sem ég nota
sennilega langmest.“
HEIMA „Ég var að kaupa mér íbúð
og er búinn að búa þar í svona þrjá
mánuði. Ég er alltaf á leiðinni að
gera hana alveg frábærlega flotta
en hún lítur alltaf út eins og ég sé
nýfluttur inn.“
HIÐ FULLKOMNA KVÖLD „Þá væri
ég staddur einhvers staðar í Vín
að dansa Vínarvals ásamt fjöl-
skyldu og vinum. Ég kunni nú einu
sinni að dansa vínarvals og langar
ógurlega mikið að læra það aftur
eftir að ég sá sjónvarpsþáttinn So
you think you can dance.“
BARINN „Ég fer mikið á Sirkus
vegna þess að þangað fara flestir
vinir mínir og kunningjar. Einnig fer
ég mikið á 101 bar. Þangað er gott að
fara eftir vinnu og fá sér kaffi og svo
er maturinn þar frábær.“
DRYKKURINN „Martini extra dry.
Mér finnst líka gott að drekka
Hyleblomst sem er danskur safi.
Ég smakkaði hann fyrst úti í Dan-
mörku og núna sendir vinkona mín
mér reglulega birgðir af honum.“
BÆKUR „Er búinn að vera að lesa
reyfara og glæpasögur eftir Arn-
ald Indriðason og Dan Brown.
Núna er ég líka að lesa bók eftir
Haruki Murakami sem heitir
Underground. Svo gríp ég þess
á milli í spendýrabókina eftir
David Attenborough en ég bý yfir
óstöðvandi áhuga á dýrum.“
TÍMARIT „Mér leiðast tískutímarit
þó stundum sé gaman að glugga í
þau. Skemmtilegast þykir mér að
lesa slúðurtímarit eins og OK og
svo les ég líka stundum Lifandi
vísindi.“
TÍSKUFYRIRMYND „Hmmm...ég
veit ekki hvort ég á einhverja. Ég
veit samt að ég á alveg eins jakka
og Lalli Johns. Ég held í rauninni
að tískufyrirmynd mín sé blanda
af mörgum aðilum.“
BORGIN „Uppáhaldsborgin mín
er eiginlega París. Ég hef kynnst
henni einna best af þeim borgum
sem ég hef heimsótt. Hún er falleg
og skemmtileg og og þar er mann-
lífið svo fjölbreytilegt og áhuga-
vert. En mér finnst Reykjavík líka
alveg frábær borg sem hefur upp
á margt að bjóða.“
BOÐORÐ „Að reyna að skilja fólk
áður en maður dæmir það og að
gefa stefnuljós.“
FRAMTÍÐIN „Mig langar að búa
hérna í Reykjavík en einnig langar
mig að ferðast og vinna erlendis.
Væri mjög til í að vinna tengt tísku
eða stíl. En svo gæti ég líka tekið
upp á einhverju allt öðru og farið
að rannsaka seli einhvers staðar á
norskri dýraskoðunarstöð.“
STEFÁN SVAN Fatahönnuður.
NÆLA Þessi var keypt í Kóreu.
Hann er útskrifaður sem
fatahönnuður og starf-
ar í ofursvölu fatabúð-
inni Kronkron. Hann
drekkur danskan djús
á meðan hann hlustar
á Trabant og lætur sig
dreyma um störf í tísku-
heimum fjarlægra landa.
Borghildur Gunnarsdóttir
fékk að vita meira um
Stefán Svan.
KRONKRON Vinnustaður fatahönnuðarins.
Komdu í spennandi heim
afþreyingar og upplýsinga
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, farðu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
06
37
12
/2
00
5
KOMDU Í SPENNANDI HEIM
AFÞREYINGAR OG UPPLÝSINGA
14.900 kr.
NOKIA 6020
SÍMI
STÍLLINN HANS...STEFÁNS
KÖLNARVATNIÐ „4711 hefur verið til í
fimmtíu ár eða eitthvað.“
PARÍS Er eftirlætisborg Stefáns.
TRABANT „Ég kann vel
við Depeche Mode,
Trabant og Manowar.“