Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.12.2005, Qupperneq 85

Fréttablaðið - 17.12.2005, Qupperneq 85
Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni Mjódd • Smáratorgi M IX A • fí t • 5 1 0 1 7 [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Nýjasta plata System of a Down er örlítið seigur biti að kyngja. Samt er allt til staðar sem góð metal plata á að hafa. Geðsjúkur gítar- leikur Charles Manson-aðdáandans Darons Malakian er enn nægilega beittur til þess að skera heilabú hlustenda í tvennt. Söngur hans og Serj Tankian er ennþá heillandi, og lögin góð. Hypnotize er þannig séð ekkert síðri en síðustu tvær breið- skífur, Mesmorize eða Steal this album! Ég myndi enn skrifa undir þá yfirlýsingu á staðnum að System of a Down sé án efa besta metalsveit okkar tíma. SoaD virðast hafa fullkomnað stíl sinn og eru sáttir við að staðna, eins lengi og þeir eru enn mörgum fetum framar en aðrar sveitir. Þeir virðast líka vera svo frjóir að þeir hljóðrita alltaf tvær breiðskífur í einu. Ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki betri hugmynd að gefa bara út eina skothelda plötu, í stað þess að hafa tvær sæmilegar þarna úti sem hljóma líka nákvæmlega eins? Þeir þyrftu þá aðeins að skera út svona 6-7 lög, og gætu gefið út eina feita 17 laga metalbombu sem myndi slá heiminn hressilega utan undir. Á þessum tveimur plötum þeirra á þessu ári, hafa bókað verið lög sem hefðu alveg eins mátt missa sín. Ef þeir hefðu gert eina plötu, hefðum við líklegast séð þá á list- um yfir bestu plötur ársins, núna verður það varla. Það er bara of þungur hnífur að fá tvo svona pakka á ári, og verður þess valdandi að maður verður þeim mun minna spenntari fyrir nýju Soad afsprengi. En svo auðvitað þegar maður rennir plötunni í gegn, er ekki mikið út á hana að setja. Annað en að sveitin hefur mjög einhæfan stíl sem getur orðið svolítið þreytandi til lengdar. Og sá stíll er alveg bókað ekki nægilega áhugaverður til þess að geta þolað tvær plötur á hálfu ári. Sama þó að Soad sé besta metalsveit okkar tíma. Ég er orðinn þreyttur á því að sjá þá alltaf spriklandi um á sama staðnum, næst vil ég heyra plötu þar sem þeir róa inn á ný mið á vit nýrra ævintýra. Þegar maður fær tvær svona yfirhlaðnar máltíðir, þá er ekki hægt annað en að leifa af disknum sínum. Birgir Örn Steinarsson Of stór máltíð SYSTEM OF A DOWN: HYPNOTIZE Niðurstaða: Nýja System of a Down er góð, en bara allt of keimlík plötunni sem þeir skil- uðu af sér fyrir sex mánuðum síðan. Hefði ekki verið betri hugmynd að gera eina stóra plötu. Hljómsveitirnar Benni Hemm Hemm og Reyjavík! munu leiða saman hesta sína í kvöld og halda jólatónleika í Stúdentakjallaranum. Benni Hemm Hemm hefur getið sér gott orð undanfarið og vakti hljómsveitin mikla athygli á Airwa- ves-hátíðinni. Einnig hefur fyrsta plata sveitarinnar vakið mikla athygli. Var hún m.a. tilnefnd til þrennra íslenskra tónlistarverð- launa. Platan mun koma út í Japan 29. janúar næstkomandi. Umslag plötunnar verður öðruvísi en á íslensku útgáfunni auk þess sem textarnir verða þýddir yfir á jap- önsku. Sigurður Magnús Finnsson, hristuleikari í Singapore Sling, sér um þýðinguna. Benni Hemm Hemm mun fara í tónleikaferð um Japan til að fylgja plötunni eftir auk þess sem nokkrir tónleikar verða haldnir í Bandaríkj- unum. Benni segist ekki hafa búist við svona góðum viðtökum við plöt- unni. „Ég hef ekki reynslu af neinu öðru en að selja 200 eintök og síðan að fara að gera eitthvað annað. Þannig að þetta er alveg frábært,“ segir hann. Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 22.00 og er aðgangseyrir 700 krónur. ■ Jólatónleikar Benna Hemm Hemm BENNI HEMM HEMM Benedikt Hermann Hermannsson er forsprakki Benna Hemm Hemm. Brain Police og Dikta troða upp á Lækjartorgi í kvöld á götutón- leikum Aygo. Brain Police kom nýverið heim eftir tónleikaferð erlendis og er því sjóðheit um þessar mundir. Dikta gaf fyrir skemmstu út plötuna Hunting for Happiness, sem hefur fengið góðar viðtökur. Tónleikarnir verða á milli 22 og 24 í kvöld og verður Aygo-hjól- hýsið á staðnum með heitt á könn- unni og bakkelsi með. Brain Police og Dikta á Lækjartorgi DIKTA Rokksveitin Dikta spilar á Lækjar- torgi í kvöld ásamt Brain Police. HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 2 og 5.20 B.i. 12 ára ��� -MMJ Kvikmyndir.com Sýnd kl. 2 og 5.20 ��� - HJ MBL ��� -L.I.B. Topp5.is Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára ��� - SK DV ��� - topp5.is ��� - SV MBL Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Jólamynd í anda Bad Santa Frá leikstjóra Groundhog Day og Analyze This Það gerðist á aðfangadagskvöld Hættulegir þjófar á hálum ís! Kolsvartur húmor! Missið ekki af þessari! ���� - ÓÖH DV Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 Sýnd í Lúxus kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Jólamyndin 2005 Hún er að fara að hitta foreldra hans ...hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára Sara Jessica Parker tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna ���1/2 - MMJ Kvikmyndir.com SÍMI 551 9000 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára Jólamynd í anda Bad Santa Frá leikstjóra Groundhog Day og Analyze This Það gerðist á aðfangadagskvöld Hættulegir þjófar á hálum ís! Kolsvartur húmor! Missið ekki af þessari! Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára ���� - ÓÖH DV Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR ��� - SK DV ��� - topp5.is ��� - SV MBL Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Jólamyndin 2005 Hún er að fara að hitta foreldra hans ...hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn Sara Jessica Parker tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna ���1/2 - MMJ Kvikmyndir.com
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.