Fréttablaðið - 22.12.2005, Síða 4
4 22. desember 2005 FIMMTUDAGUR
KJARAMÁL Steinun Valdís Óskars-
dóttir borgarstjóri hefur ákveðið að
hafna launahækkun sem á að ná til
æðstu embættismanna.
Samkvæmt úrskurði kjaradóms
ættu laun borgarstjórans að hækka
um 75.000 krónur á mánuði frá ára-
mótum og þá yrðu þau 990.000 eftir
hækkun. Steinun sagðist hafa tekið
þessa ákvörðun meðal annars vegna
ummæla sinna um kjaramál. - jse
Laun embættismanna:
Steinunn neitar
launahækkun
KJARADÓMUR Ólíklegt er að launa-
hækkun kjaradóms til handa helstu
embættismönnum þjóðarinnar hafi
áhrif á kjaradeilu tíu félaga innan
BHM sem eru með lausa samninga
við Reykjavíkurborg. Kjaradeilan
er komin til ríkissáttasemjara.
Halldóra Friðjónsdóttir, for-
maður BHM, segir að hækkanir
háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna fyrr á árinu hafi væntan-
lega haft áhrif á ákvörðun kjara-
dóms nú og því komi hækkunin
ekki á óvart.
„Það hefur stundum verið
úrskurðað þannig hjá kjaranefnd
að það er nánast eins og kjara-
nefnd leiði launaþróunina, fylgi
henni ekki,“ segir hún. - ghs
Formaður BHM um Kjaradóm:
Kemur ekki
á óvart
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR BORGAR-
STJÓRI Steinunn Valdís hefur ákveðið að 75
þúsund króna launahækkun nái ekki til sín.
ÍRAK Við réttarhöldin yfir sér í
gær kvaðst Saddam Hussein,
fyrrverandi einræðisherra
Íraks, hafa sætt barsmíðum af
hendi Bandaríkjamanna. Bráða-
birgðaniðurstöður úr þingkosn-
ingunum fyrir viku benda til
að þjóðin sé klofnari en nokkru
sinni fyrr.
Málflutningur hélt áfram í
réttarhöldum yfir Saddam og
sjö samstarfsmönnum hans í
gær en þeir eru sakaðir um að
hafa staðið á bak við fjöldamorð
á 143 sjíum í bænum Dujail árið
1982.
Framan af degi hlýddi Sadd-
am þögull á vitnisburð þeirra
sem kallaðir voru fyrir réttinn
en svo tók hann til við að rífast
við saksóknara og dómara. „Við
höfum allir verið lamdir og pynt-
aðir af Bandaríkjamönnum,“
sagði hann æfur. „Já, hver blett-
ur á líkama mínum hefur verið
barinn. Förin eru ennþá sjáan-
leg.“ Saksóknarinn sagði þá við
hann að ef meðferðin væri svo
grimmileg yrði að færa hann í
hendur íröskum lögreglumönn-
um. Ekki er víst að Saddam hafi
litist á það.
Á meðal þeirra sem leidd-
ir voru fyrir réttinn í gær var
maður sem var á unglingsaldri
þegar fjöldamorðin voru fram-
in. Sjö bræður hans voru á meðal
þeirra sem teknir voru á lífi en
sjálfur var hann settur í fangelsi
leynilögreglunnar þar sem hann
var pyntaður linnulítið í rúma
tvo mánuði. Maðurinn lýsti á
nákvæman hátt skelfilegum
barsmíðum og pyntingum með
rafmagni og eins sagði hann frá
því þegar bráðið plast var látið
leka á handlegg sinn og það svo
rifið af þegar það var storknað
þannig að húðin fór með.
Fyrstu niðurstöður úr þing-
kosningunum fyrir viku benda
til að heittrúarhreyfingum
sjía og súnnía hafi vaxið fisk-
ur um hrygg á meðan flokkum
sem eru meira veraldlega þen-
kjandi vegnaði illa. „Á tveimur
og hálfu ári hefur George Bush
tekist að setja tvö ný talibana-
samfélög á fót í Írak,“ segir
stjórnmálaskýrandinn Ghass-
an Attiyah í viðtali við breska
blaðið Independent í gær.
Fólk virðist hafa kosið eftir
þjóðarbrotalínum í stað þess að
greiða þeim flokkum atkvæði
sitt sem leggja mesta áherslu
á einingu írösku þjóðarinn-
ar, til dæmis fékk Sameinaða
sjíabandalagið nánast engin
atkvæði utan þeirra svæða þar
sem sjíar búa. The Independent
heldur því fram að írönsk áhrif
muni aukast í Írak, réttindi
kvenna muni snarminnka og
ekkert lát verði á uppreisninni
í landinu. Draumur Bandaríkja-
manna um að Írak verði lýðræð-
isríki að vestrænum hætti sé því
að snúast upp í martröð.
sveinng@frettabladid.is
Saddam kveðst hafa
sætt misþyrmingum
Saddam Hussein sakaði Bandaríkjamenn um að hafa barið sig í varðhaldinu
þegar hann tók til máls við réttarhöldin í gær. Vitni sem komu fyrir dómstólinn
greindu frá skelfilegum pyntingum sem þau hefðu verið beitt.
SADDAM Í SJÓNVARPINU Sumir hlutar orðaskipta Saddams við saksóknara voru klipptir út
úr sjónvarpsútsendingu frá réttarhöldunum í gær. Þessi kona fórnaði höndum þegar hún
sá forsetann fyrrverandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bandaríkjadalur 63,2 63,5
Sterlingspund 110,66 111,2
Evra 75,08 75,5
Dönsk króna 10,065 10,123
Norsk króna 9,314 9,368
Sænsk króna 7,962 8,008
Japanskt jen 0,5395 0,5427
SDR 90,64 91,18
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 21.12.2005
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 63,2 63,5
Sterlingspund 110,66 111,2
Evra 75,08 75,5
Dönsk króna 10,065 10,123
Norsk króna 9,314 9,368
Sænsk króna 7,962 8,008
Japanskt jen 0,5395 0,5427
SDR 90,64 91,18
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
105,6835
Bíllinn dró hann til dauða Ölvaður
maður ók á gangandi vegfaranda í
Milwaukee og var ástand ökumannsins
slíkt að hann dró vegfarandann nokkra
tugi metra á eftir sér án þess að verða
nokkurs var. Það var ekki fyrr en hann
sneri bílnum við og ók yfir manninn að
hann uppgötvaði hvað gerst hafði en þá
var vegfarandinn látinn.
BANDARÍKIN
Öflugur jarðskjálfti Jarðskjálfti af
stærðinni 6,3 varð 185 kílómetra úti af
eynni Sulawesi í Indónesíu í gær. Ekki
er talið að tjón hafi orðið á mönnum
eða munum og engrar flóðbylgju varð
vart. Engu að síður greip um sig nokkur
skelfing á meðal eyjarskeggja.
INDÓNESÍA
BRUNI Vaktmaður á eftirlitsferð
tilkynnti um minniháttar bruna
til Slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins klukkan 18:50 í gærkvöldi
eftir að hann sá reyk í mannlausu
verksmiðjuhúsi Ísfells við Óseyr-
arbraut 4 í Hafnarfirði.
Allar fjórar slökkviliðssveitir
höfuðborgarsvæðisins voru mann-
aðar og settar í viðbragðsstöðu í
upphafi vegna stærðar hússins, en
Hafnarfjarðardeild Slökkviliðs-
sins var fyrst á vettvang.
Sigurður A. Jónsson stöðvar-
stjóri Hafnafjarðardeildarinn-
ar segir að það hafi tekið þá 25
slökkviliðsmenn sem fyrst komu
á vettvang um 20 mínútur að ráða
niðurlögum eldsins, sem var
viðráðanlegur og á afmörkuðu
svæði.
Að sögn Sigurðar virðist sem
að kviknað hafi í netadræsum.
Slökkviliðið beitti froðu og vatni
við slökkvistarfið.
Þegar blaðamann bar að garði
var slökkvistarfi lokið og verið að
reykræsa húsnæðið. Ekki er hægt
að meta skemmdir á húsinu að svo
stöddu, en þær virðast óveruleg-
ar. Eldsupptök eru ókunn. - æþe
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að verksmiðjuhúsi í Hafnarfirði í gærkvöldi:
Eldur kom upp í mannlausri verksmiðju
FRÁ BRUNASTAÐ
Eldurinn reyndist minni en á horfðist
og gekk vel að slökkva hann.
BRETLAND Staða Íhaldsflokksins
hefur vænkast verulega eftir
að David Cameron var kjörinn
formaður hans.
Í dagblaðinu Independent í
gær er sagt frá „könnun kannan-
anna“, greiningu John Curtice,
stjórnmálafræðiprófessors við
Strathclyde-háskólann, á skoðana-
könnunum YouGov, MORI, ICM og
Populus undanfarnar vikur. Vegið
meðaltal þeirra sýnir að íhalds-
menn fengju 37 prósent atkvæða,
væri kosið nú, Verkamannaflokk-
urinn 35 prósent og frjálslyndir
demókratar tuttugu.
Íhaldsmenn hafa ekki leitt
„könnun kannananna“ síðan 1992,
ef stutt tímabil árið 2000 er undan-
skilið. ■
Greining á könnunum:
Íhaldsmenn
styrkjast enn
DAVID CAMERON Nýr formaður
Íhaldsflokksins þykir um margt líkur Tony
Blair. FRÉTTABLAÐIÐ/AP