Fréttablaðið - 22.12.2005, Síða 47

Fréttablaðið - 22.12.2005, Síða 47
FIMMTUDAGUR 22. desember 2005 9 Sérstakt útlit JP Chenet- flöskunnar vekur óneitan- lega mikla athygli. Hún sker sig úr í hillum vínbúð- anna þar sem háls flösk- unnar hallar ofurlítið til hliðar. Þótt útlit flöskunnar sé það sem fyrst vekur athygli er það innihaldið og verð vín- sins sem ræður úrslitum um vinsældir þess. JP Chenet-vínin þykja einkar mild, þægileg og hentug við flest tækifæri. Vínið JP Chenet Cabernet/Syrah var fyrsta vín fyrirtækisins sem kom á markað og það sem fallið hefur íslenskum neytendum hvað best í geð. Vínið er fáanlegt í flestum vínbúð- um og er til í þremur stærðum. Þetta vin- sæla rauðvín er gert úr þrúgunum cabernet sauvignon 60% og syrah 40%. Liturinn er ríflega meðaldjúpur og plómurauður. Vínið er meðalbragðmikið og ljúft. Helst má greina kirsuber, dökk ber, pipar og krydd í bragði þessa heillandi víns. Hentar vel með flestum mat en ekki síst lambakjöti, kalkúni og ostum. Verð í vínbúðum 397 kr. í 250 ml flöskum, 1.070 kr. í 700 ml flöskum og 3.440 kr. í 3 lítra kössum. Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari fer ávallt norður til mömmu og pabba um jólin. Í ár verður hamborgarhryggur en Friðrik segir að iðulega sé svínakjköt haft í matinn á jólunum. ,,Það er alltaf svín en bara spurn- ing hvernig það er matreitt,“ segir Friðrik en hann segist ekki alveg viss um hvort búið sé að kaupa jóla- steikina enda fer hann ekki norður fyrr en á Þorláksmessu. Friðrik segist ekki ætla að breyta þeirri hefð að fara norður til fjölskyldu sinnar um jólin, að minnsta kosti ekki í bráð. Auk Friðriks koma til mömmu hans og pabba, tvær syst- ur hans og börnin þeirra. ,,Þannig að það verður mikið stuð.“ Það sem Friðriki finnst uppá- halds á jólunum er salat mömmu hans. ,,Hún býr alltaf til salat á aðfangadag með jólasteikinni sem er hryllilega gott. Þetta er reynd- ar mjög venjulegt salat en það er bara eitthvað svo sérstakt við það. Það er svo sérstakt að ég hef gefið út plötu sem heitir Jólasalat og er skírð eftir þessu salati,“ segir Friðrik og hlær. Friðrik Ómar segir að það skemmtilegasta við að fara heim til fjölskyldu sinnar sé að koma norður. ,,Þar eru hvít og falleg jól, ekki svona rauð eins og í Reykja- vík. Ég hef reyndar ekki verið í Reykjavík á aðfangadag en mér finnst miklu skemmtilegri jóla- stemning úti á landi. Hún er ein- hvern veginn meira sönn. Það er samt bara mín tilfinning,“ segir hinn brosmildi Friðrik Ómar að lokum. steinthor@frettabladid.is Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, heldur, eins og aðrir landsmenn, upp á jólin með pomp og prakt. Fjölskylda hennar hlakkar alltaf sérstak- lega mikið til forréttarins og eftirréttarins sem Sólveig ber fram hvert aðfangadagskvöld. „Jólin eru yndislegur tími og mik- ilvægt að eiga góðar stundir með fjölskyldunni við kertaljós og greniilm. Það eru margvíslegar hefðir sem hafa skapast á mínu heimili sem mitt fólk er fastheld- ið á. Eitt af því er jólamaturinn,“ segir Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis. Sólveig ber fram heimalagaða aspassúpu á aðfangadag, sem í felst mandlan, auk hefðbundins hamborgarhryggs. Í eftirrétt býr hún svo alltaf til ís eftir uppskrift Sjafnar Kristinsdóttur heitinnar, tendgamóður Sólveigar. Aspassúpa Sólveigar „Ég bý til aspassúpuna úr soði af heilu lambalæri sem ég steiki síðan og nota sem kalt álegg yfir jólin. Súpan er bökuð upp með smjöri og hveiti, þessu soði og aspassoði, og síðan bragðbætt með kjötteningum, rjóma og þurru sérríi, og ber ég hana svo fram með súpurúnnstykkjum,“ segir Sólveig og bætir við að hún býr alltaf til ríflegan skammt af súpunni, því hún er góð upphituð í hádeginu á jóladag við lestur jóla- bókanna. Jólaís Sjafnar 2 pelar rjómi 150 grömm sykur 4 eggjarauður 3 egg vanilludropar eftir smekk 1-2 stykki suðusúkkulaði saxað Egg, eggjarauður og sykur eru hrærð vel saman, og vanillan sett út í. Rjóminn þeyttur og blandað varlega saman við. Suðusúkul- aðinu bætt út í og hrært saman með sleif. Svo er ísinn settur í form og frystur. Sólveig nýtir oft eggjahvíturn- ar fjórar til þess að búa til mar- engskökur sem hún ber fram með ísnum. smk@frettabladid.is Jólaísinn vinsælastur Sólveig Pétursdóttir í jólaskapi. Svínakjöt og sérstakt salat Friðrik Ómar Hjörleifsson hlakkar til að kíkja norður yfir jólin þar sem dýryndis jólaham- borgarhryggur verður væntanlega á boðstólnum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL JP CHENET: Mest seldu frönsku vínin í heiminum 500 g gulrætur salt 500 g parísarkartöflur 75 g smjör 4 msk. hlynsíróp 1-2 tsk. sætt sinnep Gulræturnar flysjaðar eða skafnar, skornar í 1 cm þykkar sneiðar og soðnar í saltvatni þar til þær eru rétt meyrar. Þá er látið renna af þeim í sigti og þeim blandað saman við kartöflurnar. Smjörið brætt á pönnu og kartöflur og gulrætur látnar krauma í því í 2-3 mínútur. Hlynsír- ópi og sinnepi blandað saman, hellt jafnt yfir, hrært vel og látið krauma í nokkrar mínútur í viðbót. Hrært oft á meðan. uppskrift } Gljáðar gulrætur og parísarkartöflur MEÐLÆTI MEÐ VILLIBRÁÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.