Fréttablaðið - 22.12.2005, Síða 60

Fréttablaðið - 22.12.2005, Síða 60
 22. desember 2005 FIMMTUDAGUR40 Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jóhann Gauti Gestsson kafari, Hjallalundi 20, Akureyri, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum samúð og vinarhug. Edda Magnúsdóttir Vilborg Gautadóttir Hlynur Jónasson Magnús Gauti Gautason Hrefna G. Torfadóttir Elín Gautadóttir Steinþór V. Ólafsson Björgvin Örn Jóhannsson Sóley Hallgrímsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jóhanna Haraldsdóttir (Stella) til heimilis að Lindargötu 57, lést á Landspítalanum Fossvogi 19. desember sl. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni 28. desember kl. 15.00. Helga Bjarnadóttir Þóra Bjarnadóttir Erla Bjarnadóttir Hreiðar Svavarsson Haraldur Ág. Bjarnason Ólöf G. Ketilsdóttir Barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Katrín María Þórðardóttir Holtsbúð 103, Garðabæ, áður Stangarholti 24, lést á Landspítalanum 20. desember sl. Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju 29. desember kl. 13.00. Björg Haraldsdóttir Jóhann Petersen Halldór Þórður Haraldsson Ingibjörg Barðadóttir Ástbjörg Guðrún Haraldsdóttir Hreiðar Einarsson Friðrik Haraldsson Kristrún Zakaríasdóttir barnabörn og fjölskyldur. Stefán Jónsson, rithöfundur og barnaskólakennari, fædd- ist á Háafelli í Hvítársíðu 22. desember 1905. Stefán lauk kennaraprófi árið 1933 og kenndi upp frá því í Reykja- vík. Segja má að hann hafi helgað líf sitt börnum því barnakennsla var hans aðal- starf alla starfsævina og meðfram henni skrifaði hann bókmenntir fyrir börn; skáld- sögur, smásögur og kvæði. Um Stefán hefur verið sagt að hann hljóti alla tíð að hafa haft ríkari skilning á hug- arheimi barna en almennt gerist meðal fullorðinna, svo gott átti hann með að skrifa fyrir þau bókmenntir. Bækurnar um Hjalta eru hvað þekktustu verk Stef- áns en þær voru alls fjór- ar; Sagan hans Hjalta litla, Margt getur skemmtilegt skeð, Mamma skilur allt og Hjalti kemur heim. Sú fyrsta kom út 1948 en hin síðasta 1951. Meðal annarra þekktra barnabóka hans eru: Vinir vorsins, Skóladagar og Björt eru bernskuár. Nýrri bækur eiga frekar upp á pallborðið hjá börnum í dag og ekki víst að þau þekki sögur Stefáns Jónssonar. Á hinn bóginn er viðbúið að þau kannist við Aravísur sem enn eru raulaðar á mörg- um heimilum og við ýmis tækifæri. Orti Stefán raunar fjölmörg ljóð og kvæði um ævina. Leikrit gerði hann einnig nokkur og má þar nefna Grámann í Garðshorni og Verkfallið. Verk Stefáns voru sum hver þýdd á erlend tungumál, til dæmis rússnesku. Stefán Jónsson lést árið 1966. ■ STEFÁN JÓNSSON RITHÖFUNDUR: ÖLD ER LIÐIN FRÁ FÆÐINGU HANS Sendir Guð okkur jólin? STEFÁN JÓNSSON RITHÖFUNDUR OG KENNARI Aravísur og sögurnar um Hjalta eru meðal hans þekktustu verka. Hann Ari er lítill hann er átta ára trítill með augu mjög falleg og skær. Hann er bara sætur jafnvel eins er hann grætur og hugljúfur þegar hann hlær. En spurningum Ara er ei auðvelt að svara: Mamma, af hverju er himn- inninn blár? Sendir guð okkur jólin? Hve gömul er sólin? Pabbi, því hafa hundarnir hár? Bæði pabba og mömmu og afa og ömmu þreytir endalaust spurningasuð: Hvar er sólin um nætur? Því er sykurinn sætur? Afi, gegndu, hver skapaði Guð? Hvar er heimsendir, amma? Hvað er eilífiðin, mamma? Pabbi, af hverju vex á þér skegg? Því er afi svo feitur? Því er eldurinn heitur? Því eiga ekki hanarnir egg? Það þykknar í Ara ef þau ekki svara og þá verður hann ekki rór, svo heldur en þegja þau svara og segja: „Þú veist það er verðurðu stór.“ Fyrst hik er á svari þá hugsar hann Ari og hallar þá kannski undir flatt og litla stund þegir, að lokum hann segir: „Þið eigið að segja mér satt!“ AFMÆLI Gísli Pálsson prófessor er 56 ára. Þorvaldur Friðriksson fréttamað- ur er 53 ára. Hallgrímur Helgi Helgason rithöfundur er 48 ára. Martha Ernstsdóttir langhlaupari er 41 árs. Orri Vésteinsson fornleifafræð- ingur er 38 ára. Björn Friðrik Brynjólfsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráð- herra, er 33 ára. ARAVÍSUR ANDLÁT Jóhann Ingi Einarsson, Bæjargili 96, Garðabæ, andaðist á Landspít- ala Hringbraut sunnudaginn 18. desember. Jóhanna (Stella) Haraldsdóttir, til heimilis á Lindargötu 57, lést á Landspítalanum Fossvogi mánu- daginn 19. desember. Þóra Aradóttir, Grensásvegi 56, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 18. desember. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1858 Giacomo Puccini, ítalskt tónskáld. 1937 Eduard Uspensky, rússneskt skáld. 1945 Diane Sawyer, bandarísk fjölmiðlakona. 1949 Maurice Gibb, ástralskur tónlistarmaður. 1962 Ralph Fiennes, enskur leikari. 1967 Dan Petrescu, rúmenskur knattspyrnumaður. JARÐARFARIR 11.00 Arnkell Bergmann Guð- mundsson bókbandsmeist- ari verður jarðsunginn frá Áskirkju. 13.00 Hafrún Hafsteinsdóttir, Torfufelli 31, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju. 14.00 Bjarni Þorsteinsson frá Hurðabaki, Reykholtsdal, verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju. 15.00 Hrefna Lúthersdóttir, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju. GEORGE ELIOT (1819-1880) LÉST ÞENNAN DAG. „Ég neita því ekki að konur eru kjánalegar enda gerði guð almáttugur þær sambærilegar karlmönnum.“ Mary Ann Evans var breskur rithöfundur sem skrifaði undir dulnefninu Georg Eliot. Við sendum hugheilar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður og afa, Þórhalls Ásgeirssonar fv. ráðuneytisstjóra, Einimel 6. Lilly Ásgeirsson Sverrir Þórhallsson Inga Helgadóttir Dóra Þórhallsdóttir Magnús B. Einarson Ragna Þórhallsdóttir Flosi Kristjánsson Sólveig Þórhallsdóttir Gunnar Jóakimsson barnabörn og fjölskyldur þeirra. Á þessum degi árið 1972 fann flugher Chile fjórtán eftirlifendur flugslyss sem orðið hafði í Andesfjöllunum í Argentínu tveimur mánuð- um áður. Ekkert hafði spurst til þeirra 45 farþega sem voru um borð í flugvélinni fyrr en tveir menn, Roberto Canessa og Fernando Parrado, komust til að sækja hjálp eftir tíu daga göngu yfir fjöllin. Fokker Fairchild-flugvélin hafði horfið á leið sinni frá höfuðborg Úrúgvæ, Montevideo til Santiago í Chile, föstudaginn 13. október. Meðal farþega var heilt kaþólskt rúgbílið, vinir liðs- manna og fjölskylda. Þrátt fyrir mikla þrekraun kröfðust mennirnir tveir sem höfðu sótt hjálpina þess að fá að aðstoða við björgunina. Þeir sögðu að 25 hefðu lifað af brotlendinguna en átta lát- ist þegar snjóflóð lenti síðar á brakinu. Síðar kom í ljós að hópurinn, fyrir utan einn 36 ára mann, hafði lagt sér mannakjöt til munns. Saga um slysið og eftirlif- endur þess var síðar skrifuð af Piers Paul Read og kallast Alive. Kvikmynd með sama nafni átti miklum vin- sældum að fagna árið 1993. ÞETTA GERÐIST > 22. DESEMBER 1972 Bjargað eftir tvo mánuði á fjöllum MERKISATBURÐIR 1897 Nýrri klukku komið fyrir í turni Dómkirkjunnar. Klukkan, sem enn er í turn- inum, var gjöf frá Thomsen kaupmanni. 1919 Dómar eru kveðnir upp í Landsyfirétti í síðasta sinn. Rétturinn var fyrst settur 10. ágúst 1801. 1989 Brandenburgar-hliðið í Berlín er opnað í fyrsta sinn í nærri 30 ár. 1989 Ríkisstjórn Nicolaes Ceaus- escu í Rúmeníu er steypt af stóli. 1990 Lech Walesa er svarinn í embætti forseta Póllands. 2000 Halldór Laxness er maður aldarinnar samkvæmt könnun Gallup. Vigdís Finnbogadóttir var valin kona aldarinnar og Davíð Oddson stjórnmálamaður aldarinnar. Forseti Íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, fór í vikunni í heimsókn í Fjölskylduhjálp Íslands. Að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur hjá Fjöl- skylduhjálp Íslands er heim- sókn forseta landsins ein alstærsta gjöf sem líknarfé- lag getur fengið. „Forsetinn sýndi okkur þann heiður að koma í opin- bera heimsókn. Hann var hér í 45 mínútur og kynnti sér starfsemina. Það var ákaflega notalegt að fá hann í heimsókn, hann gefur þessum málefnum mikinn gaum,“ segir Ásgerður Jóna. Hún segir að starfsemi Fjöl- skylduhjálparinnar skeri sig svolítið úr svipaðri starfsemi því að þegar Fjölskylduhjálp- in hóf starfsemi þá hafi hún tekið við ýmsum jaðarhóp- um. „Til dæmis gátu karl- menn leitað þrisvar á ári til hjálparstarfs kirkjunnar en þeir geta leitað vikulega til okkar, þetta eru mikið for- sjárlausir feður og svo karl- menn sem hvergi geta hallað höfði sínu,“ segir hún. Búist er við um að 300 fjölskyldur sem ekki hafa efni á að kaupa jólagjafir komi í Fjölskylduhjálpina og fái um 1500 jólapakka sem starfsmenn þar útbýta. - sk Stór dagur hjá Fjölskylduhjálp Íslands: Forsetinn í heimsókn timamot@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.