Fréttablaðið - 22.12.2005, Side 82
22. desember 2005 FIMMTUDAGUR62
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti 70
Sími 553 0003
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070
Fiskbúðin Árbjörg
Hringbraut 119
Sími 552 5070
Skata Skata
Verð frá 399,-
Ekta góður saltfiskur
Hnoðmör hamsatólg
kartöflur
Elstu heimildirnar um bjór-drykkju ná aftur til Súmera, en samkvæmt steintöflum
sem varðveittar eru í British
Museum var bjór bruggaður í
Súmer fyrir 6.000 árum. Svo virð-
ist sem hann hafi verið fundinn upp
á sama tíma og brauðið. Mögulega
er hann ein helsta ástæða þess að
menn tóku sér fasta búsetu og
byrjuðu að plægja akra.
Á dögum Babylóníumanna
var hann bruggaður af konum,
sem gegndu einnig hlutverki
presta í þeirra samfélagi, löngu
áður en Jesús breytti vatni í vín.
Hammúrabí Babýlóníukonung-
ur, sem fyrstur manna lét skrá-
setja lög, kom einnig með fyrstu
áfengislöggjöfina. Í reglugerð-
inni var tekið fram að ef bar-
þjónn skammtaði minni bjór í
glas en lög gerðu ráð fyrir skyldi
honum samstundis drekkt, eitt-
hvað sem mætti vera til eftir-
breytni á okkar dögum.
Samkvæmt vínlista sem varð-
veist hefur og er nú til sýnis í Metr-
opolitan-safninu í New York sull-
uðu Babýlóníumenn ekki í hverju
sem var, heldur buðu upp á marg-
ar tegundir af bjór. Á listanum er
gerður greinarmunur á dökkum
bjór og ljósum, og bjór með froðu
og án, svo eitthvað sé nefnt. Bjór-
inn var drukkinn með rörum, og
þegar konungurinn sjálfur kíkti í
kollu átti drakk hann með gullröri
sem náði frá hásætinu og yfir í
risavaxið bjórílát.
Bjór í Biblíunni
Á assýrískri töflu sést að bjór hafi
verið ein af þeim matvörum sem
Nói tók með sér í örkina. Ætla má
að hann hafi orðið vel hífaður ein-
hverja þeirra 40 daga og nótta sem
hann var staddur á sjó, því fyrsta
Mósebók lýsir honum sem einkar
drykkfelldum.
Það fyrsta sem hann gerði
þegar hann kom í land var að
rækta vínvið, og var hann þá
væntanlega löngu búinn að klára
allar birgðir á hafi úti. Þegar
svo uppskeran varð tilbúin datt
hann ærlega í það, og lá sam-
kvæmt ritningunni afvelta og
afklæddur í tjaldi sínu. Sonur
hans, Ham, gekk inn á hann þar
sem hann lá nakinn og kallaði
til bræðra sinna. Þeir Sem og
Jafet náðu í slopp handa föður
sínum og gengu afturábak inn í
tjaldið svo þær sæju ekki nekt
karlsins þegar þeir komu honum
í flíkina.
Þegar Nói svo rankaði við sér
þunnur og úrillur og frétti af því
sem gerst hafði bölvaði hann Ham
og öllum afkomendum hans fyrir
afskiptasemina, en Ham varð ætt-
faðir Kanaaníta. Ham skyldi sam-
kvæmt boðorði föðurins verða
þræll Sems, og þar sem Sem varð
forfaðir Ísraela, og Kanaan er þar
sem nú er Palestína, má kannski
rekja átök Ísraela og Palestínu-
manna til þessa þynnkubömmers
Nóa.
Bjór í gröfina
Forn-Egyptar drukku bjór stíft,
bæði sem meðal, sem sakramenti
og sér til ánægju. Af 700 lyfjaupp-
skriftum sem varðveist hafa inni-
halda um 100 bjór. Og á kvöldin
hittist fólk á bjórhúsum sem svo
hétu til að þjóra.
Bjórdrykkjan endaði ekki með
andláti drykkjumanns, því yfir-
leitt var bjór látinn fylgja með
í gröf hins látna. Og þegar fólk
skálaði á bjórhúsunum skálaði
það gjarnan fyrir draug hins
látna.
En það var ekki bara almúga-
fólk sem drakk bjór. Ef einhver
vildi giftast dóttur Faraós var
ætlast til þess að hann gæfi föð-
urnum tunnu af bjór til að fá hann
til að hugsa málið. Þökk sé sigr-
um kvenréttindabaráttunnar er
áfenginu nú hellt beint í dótturina
frekar en í tilvonandi tengdaföð-
ur, svo eitthvað hefur nú breyst í
þessum efnum.
Ekki einu sinni almættið
hélst edrú. Guðirnir vildu líka fá
sitt, og var yfir 100.000 lítrum
af bjór fórnað til þeirra árlega.
Náttúrugyðjan Ísis var einnig
bjórgyðja, og hið opinbera skip-
aði starfsmann að sjá til þess að
gæði bjórsins væru henni þóknan-
leg. Einnig er minnst á bjór í Bók
hinna dauðu, sem innihélt helstu
töfraþulur Forn-Egypta jafnt sem
bjóruppskriftir.
Heilagur bjór
Forn-Grikkir lærðu að brugga af
nágrönnum sínum, Forn-Egyptum.
Þeir voru þó hrifnari af víni, og
hinn forni bjórguð Díonýsis varð
að vínguðinum Díonýsos. Sumir
dásömuðu þó enn bjórinn, svo sem
leikritaskáldið og hófsemdarmað-
urinn Sófókles, en hann lagði til að
undirstaða mataræðis væri brauð,
kjöt, grænmeti og bjór.
Rómverjar lærðu svo brugg-
listina af Grikkjum. Þegar Sesar
hafði farið hina örlagaríku ferð
yfir Rúbíkonfljót og lýst því yfir
að teningnum væri kastað skálaði
hann við herforingja sína í bjór.
Frá Rómverjum breiddist brugg-
listin til Bretlandeyja og Þýska-
lands, og var henni tekið fagnandi
í báðum löndum, þó að bæði Germ-
anir og Keltar tækju að öðru leyti
hraustlega á móti innrásarliðinu.
Með kristninni stórjukust
vinsældir bjórsins. Þessa þróun
mátti rekja til klaustranna. Sam-
kvæmt reglunum máttu munk-
ar einungis borða eina máltíð
á dag, en drekka allt að fimm
lítra, þannig að það var freist-
andi að ráðstafa þeim með því að
drekka svo mettandi vökva sem
bjór er. Munkarnir brugguðu
því grimmt og ráku þar að auki
nokkurs konar hótelþjónustu, þar
sem ferðamönnum var boðið upp
á mat, bjór og gistingu. Trúin og
tárið urðu svo nátengt að allt að
því 20 dýrlingar í kaþólsku hafa
verið verndardýrlingar bjórsins.
Bjórdýrlingurinn Nikulás
Einn af þeim var Heilagur Nik-
ulás frá Mýra, en hann er í dag
kallaður St. Nick eða Santa Claus.
Þjóðsaga nokkur segir frá því að
hann hafi verið á ferð um hérað
þar sem ríkti mikil hungursneyð.
Hann stoppaði á krá þar sem var
engu að síður boðið upp á kjöt.
Þetta fannst honum grunsamlegt
og fór inn í bakherbergið þar sem
hann sá lík þriggja ungra manna
liggjandi til maríneringar í bjór.
Hann vakti þá aftur til lífsins og
varð upp frá því dýrlingur bjór-
drykkjumanna.
Annar dýrlingur bjórsins var
írski munkurinn Columbanos,
sem reyndi að breiða út kristna
trú í Þýskalandi á 6. öld. Rakst
hann á hóp af Óðinsdýrkendum,
sem voru við það að fara að fórna
tunnu af bjór til Guðs síns. Munk-
urinn stöðvaði þá og sagði þeim að
Guð kristinna manna kysi frekar
að bjórinn væri drukkinn í hans
nafni. Tóku margir trú þar og þá.
Hefur bjórinn því átt sinn hlut í
að breiða út kristnina, jafnt sem
siðmenninguna.
valurg@frettabladid.is
Er siðmenningin óhugsandi án bjórs?
Valur Gunnarsson skoðar sögu drykkjarins og uppgötvar að jólasveinninn er dýrlingur bjórsins.
HEILAGUR NIKULÁS Margfaldar byggbirgðir í Mýru. Hann var einn af dýrlingum bjórsins, en
hefur seinna verið notaður til að auglýsa aðra drykki.
NÓI FULLUR Sem, Kam og Jafet reyna að
forðast að sjá ölvun föður síns