Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 84

Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 84
Fiskbúðin Hafrún Skipholti 70 Sími 553 0003 Fiskbúðin Vör Höfðabakka 1 sími 587 5070 Fiskbúðin Árbjörg Hringbraut 119 Sími 552 5070 Stór humar Risarækja hörpuskel KVIKMYNDIR [UMFJÖLLUN] Fátt er jafn skelfilegt í hugum margra og að hitta verðandi tengdafjölskylduna í fyrsta sinn. Þær hafa enda ófáar kvikmynd- irnar verið gerðar um þessa hrylli- legu hlið hins verðandi maka. Kvikmyndin The Family Stone fjallar einmitt um þessa hrikalegu þraut. Meredith Morton ákveður að fara með kærasta sínum, Everett Stone, til að dveljast með fjöl- skyldu hans um jólin. Stone-fjöl- skyldan er heldur óvenjuleg, frek- ar frjálsleg í fasi og á því erfitt með að meðtaka hið stífa viðmót Morton. Áður en langt um líður hefur stúlkukindin málað sig út í horn en þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. The Family Stone fer ekki í sögubækurnar sem besta jólamynd allra tíma. Hún verður heldur ekki færð til bókar sem einhver tengdafjölskyldusnilld á borð við Meet the Parents. Hún er hins vegar kærkomin gjöf handa þeim sem langar í bíó en vilja ekki ærast vegna hávaða. Leikkonan Diane Keaton á sér marga dygga aðdáendur og þessi mynd svíkur engan. Luke Wilson er stórskemmtilegur sem hinn hæfilega kærulausi Ben Stone og þá er Rachel McAdams einkar fín sem hin kvikindislega systir Amy. Craig T. Nelson og Dermot Mulroney hafa aldrei verið hátt skrifaðir og komast ekkert hærra með þessari mynd auk þess sem Claire Danes virðist alltaf vera gráti næst, alveg sama hvert til- efnið er. Sarah Jessica Parker ber þó höfuð og herðar yfir aðra sem hin ofursnobbaða Meredith þótt leikur hennar hafi kannski ekki gefið tilefni til Golden Globe tilnefningar. The Family Stone er algjörlega áreynslulaus jólamynd uppfull af væmnum atriðum sem ganga eflaust fram af einhverjum. Líkt og hryllingsmyndir eru ekki fyrir viðkvæma þá er The Family Stone ekki fyrir harðhausa. Freyr Gígja Gunnarsson THE FAMILY STONE LEIKSTJÓRI: THOMAS BEZUCHA Aðalleikarar: Diane Keaton, Luke Wilson, Claire Danes og Sarah Jessica Parker. Niðurstaða: The Family Stone er algjörlega áreynslulaus jólamynd uppfull af væmnum atriðum sem ganga eflaust fram af einhverj- um. Líkt og hryllingsmyndir eru ekki fyrir viðkvæma þá er The Family Stone ekki fyrir harðhausa. Jólamyndin fyrir hina væmnu Draumalandið eða Midsummer Dream er eina teiknimyndin sem frumsýnd verður um jólin. Hún er byggð á gamalli þjóðsögu sem greinir frá því að á Jónsmessunótt geti mannfólkið kynnst heimi álfa og trölla af eigin raun. Helena er ung dóttir hertogans Þeseifs sem trúir ekki á svona bull og rugl. Þegar líf föður hennar er að veði neyðist hún hins vegar til að brjóta odd af oflæti sínu og leita að álfadrottningunni Títaníu sem býr í Draumalandinu en þar verður hún að sigrast á tortryggni sinni til að komast af í heimi ævintýranna. Fjöldi þekktra íslenskra leikara hefur lagt myndinni lið til að hún geti verið sýnd með íslensku tali en helstu leikarar eru Inga María Valdimarsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason. Jónsmessu- nótt í teikni- mynd HELENA Þarf að berjast við óvætti til að lifa af í Draumaheiminum. FRUMSÝNDAR Á ANNAN Í JÓLUM DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM The Chronicles of Narnia: Internet Movie Database 7,5 / 10 Metacritic.com 7,8 / 10 Rottentomatoes.com 74% / Fersk A Little Trip to Heaven Internet Movie Database 6,6 / 10 Just Friends Internet Movie Database 5,7 / 10 Metacritic.com 7,0 / 10 Rottentomatoes.com 43 % / Rotin Draumalandið Internet Movie Database 5,8 / 10 Tenórinn ungi, Garðar Thór Cort- es, fékk í gær afhenta platínuplötu fyrir sína fyrstu sólóplötu, Cortes. Athöfnin fór fram í Kringlunni. Platan hefur selst í vel yfir tíu þúsund eintökum og telur Einar Bárðarson, sem gefur plötuna út, að hún muni enda í um sautján þús- und eintökum áður en jólavertíðin er úti. Á plötunni syngur Garðar Thór klassísk sönglög og var hann á dögunum tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem efni- legasti söngvarinn. Útgáfutón- leikarnir sem Garðar hélt nýver- ið í Grafarvogskirkju verða á dagskrá Stöðvar 2 á jóladag. Stúlknasveitin Nylon fékk jafn- framt afhenta gullplötu í Kringl- unni í gær fyrir aðra plötu plöt- una Góðir hlutir. Hún hefur selst í fimm þúsund eintökum, rétt eins og fyrsta plata sveitarinnar, 100% Nylon gerði fyrir síðustu jól. Tvö endurunnin lög, Dans, dans, dans og Einskonar ást, eru á plötunni. Hin lögin eru samin af þekktum innlendum og erlend- um höfundum á borð við Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson, Magnús Kjartansson og Anthony Griffiths. ■ Garðar Thór Cortes og Nylon fengu platínu og gull GARÐAR THÓR OG NYLON Garðar Thór Cortes og Nylon voru að sjálfsögðu hæstánægð með platínu- og gullplöturnar sínar. Þóra og Björgólfur Vilja heitan pott og lystihús í garðinn DV2x10 21.12.2005 19:44 Page 1 HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 5.20 B.i. 12 ára ��� -MMJ Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.20 ��� - HJ MBL ��� -L.I.B. Topp5.is Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára ��� - SK DV ��� - topp5.is ��� - SV MBL Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Jólamynd í anda Bad Santa Frá leikstjóra Groundhog Day og Analyze This Það gerðist á aðfangadagskvöld Hættulegir þjófar á hálum ís! Kolsvartur húmor! Missið ekki af þessari! ���� - ÓÖH DV Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Sýnd í Lúxus kl. 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Jólamyndin 2005 Hún er að fara að hitta foreldra hans ...hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára Sara Jessica Parker tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna ���1/2 - MMJ Kvikmyndir.com ��� - Topp5.is SÍMI 551 9000 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára Jólamynd í anda Bad Santa Frá leikstjóra Groundhog Day og Analyze This Það gerðist á aðfangadagskvöld Hættulegir þjófar á hálum ís! Kolsvartur húmor! Missið ekki af þessari! Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára ���� - ÓÖH DV Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR ��� - SK DV ��� - topp5.is ��� - SV MBL Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Jólamyndin 2005 Hún er að fara að hitta foreldra hans ...hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn Sara Jessica Parker tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna ���1/2 - MMJ Kvikmyndir.com ��� - Topp5.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.