Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 96

Fréttablaðið - 22.12.2005, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 edda.is „Erlendur klikkar ekki.“ Þórarinn Þórarinsson, Fbl. „Vetrarborginni verður örugglega víða fagnað.“ Páll Baldvin Baldvinsson, DV „Fléttan er þétt og vandlega unnin ... Arnaldur sýnir hér mikla hæfni í sköpun andrúmslofts og stemmningar og minnir að því leyti á Mýrina og Grafarþögn.“ Gunnþórunn Guðmundsdóttir, bokmenntir.is Tilnefndur til IMPAC verðlaunanna 2005 Martin Beck verðlaunin 2005 THE CWA Gold Dagger Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason er mest selda bók ársins 2005. Á þessu ári hefur Arnaldur að auki hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal Gullrýtinginn, virtustu glæpasagna- verðlaun heims, og fest sig í sessi sem alþjóðlegur metsöluhöfundur. 1. sæti Allar bækur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 14. – 20. des. 1. sæti Allar bækur Metsölulisti Mbl. 6. – 12. des. Vinsælasta bók ársins���������� ���������� Nú eru jólin framundan. Því miður eru þau frekar stutt að þessu sinni, bara ein helgi, en jól engu að síður. Að halda jólin hátíðleg er ævaforn siður á norðurhveli jarðar. Forfeður okkar fögnuðu sigri sólarinnar og ljóssins yfir myrkrinu í þeirri fullvissu að nú tæki daginn að lengja og bráðum kæmi vorið. Enginn veit hvenær fólk byrjaði að gera þetta en það var löngu áður en Ísland byggðist. JÓLIN ERU hátíð ljóssins. Þau eru hátíð kærleikans. Á jólunum drögum við fram það fallegasta í fari okkar, bæði í klæðavali og innræti. Jólin hafa í rauninni ekkert með trúarbrögð að gera. Það er enginn sem á jólin, hvorki kristnir eða æsir eða Gyðingar. Það er ekki hægt að eiga kærleika, ekki nema gefa hann. Og þess meira sem maður gefur af honum, þess meira á maður af honum sjálfur. FYRIR MÉR eru jólin heilög. Það er vegna þess að á jólunum minnist ég þess að Guð minn fæddist hér á jörðu fyrir rúmum 2000 árum síðan í Jesú kristi. Ég trúi því að Guð hafi orðið maður. Hann varð eins og við í þeirri von að við vildum verða eins og hann. Það eru ekki allir sem trúa því en það er falleg trú samt. ÞAÐ ER mest um vert að trúa á kærleikann. Hann er það dýrmætasta sem til er í heiminum. Sá sem á kærleika í hjarta sínu er réttlátur fyrir Guði, hvort sem hann trúir á hann eða ekki. Og trú okkar, hver sem hún er, kemur ekki fram í því hvernig við tilbiðjum Guð okkar heldur hvernig við komum fram við meðbræður okkar. Kristinn maður sem sýnir öðru fólki lítilsvirðingu og hroka er miklu verr staddur en kærleiksríkur trúleysingi. Lykillinn að himnaríki fæst aðeins með því að gefa öðrum hann. ÉG BIÐ Guð minn, sem er sonur ljóssins, að blessa alla Íslendinga. Ég bið fyrir einingu allra manna, óháð trúarskoðunum og stjórnmálum, húðlit og þjóðerni og þjóðfélagsstöðu. Ég bið fyrir ljósi inn í líf þeirra sem búa í myrkri. Ég bið fyrir því að kærleikurinn megi sigra í lífi sem flestra. Ég bið fyrir því að einfeldni, sakleysi og þjónusta fái meiri virðingu í þjóðfélagi okkar. ÉG ÓSKA lesendum mínum gleðilegra jóla. Takk fyrir að hlusta á mig. Guð blessi ykkur og verndi ykkur í kærleiksríkum faðmi sínum. Namaste. Marana ta. Jólakveðja

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.