Tíminn - 28.11.1976, Side 17
Sunnudagur 28. nóvember 1976
Nú geta allir eignast raðstóla ■ Komið og skoðið hina
handhægu og ódýru sænsku Zoom raðstóla
VERD AÐEINS KR. 14.600
RAÐ-STÓLAR
einskort
ins?
A meöan margt manna deyr ár-
lega af völdum próteinskorts I
þriðja heiminum, eru svin alin á
próteinum, sem framleidd eru
úr oliu.
Gifurlegur próteinskortur rikir
nú meðal fólks i hinum vanþró-
aða hluta heimsins, og deyr
margt manna þar árlega af
þeim sökum. Nokkur undanfar-
in árhafa verið gerðar tilraunir
með vinnslu próteina úr oliu og
hafa þær borið góðan árangur.
Hafa t.a.m. svin verið fóðruð á
oliupróteinum um alllangt skeið
og dafnað vel.
Petrómin, rikisoliufyrirtæki
Saudi Arabiu, hefur i samráði
við BP Protein Ltd. hafið rann-
sóknir með það fyrir augum að
kanna möguleika á að vinna
prótein úr oliu og framleiða úr
þeim húsdýrafóður.
Próteinúroliu geta þýttaukn-
ingu i matvælaframleiöslunni,
sérstaklega á þeim svæðum,
þar sem loftslag torveldar jarð-
rækt. Þegar hafa prótein verk-
smiðjur verið settar á laggirnar
i Englandi og Frakklandi, og á
Italiu er nú verið að reisa eina
slika.
Saudi Arabar útvega hráefnið
til fyrrgreindra rannsókna.
Beitarlönd i riki þeirra eru af
skornum skammti, og þurfa
þeir þvi að flytja mikið inn af
dýrafóðri. Það gæti orðið þeim
til mikilla hagsbóta, ef þeir
gætu farið að framleiða til eigin
þarfa, og þá minnkað innflutn-
inginn i samræmi við það.
Framleiðsluferill próteinanna
(sem hlotið hafa nafnið Topr-
ina) er afar flókinn, en i stuttu
máli þannig, að ákveðinn gerill
er ræktaður upp með þvi að
bæta i hann kolefnum úr oliu.
Afurðin, þ.e. próteinið, sem af
þessu sprettur, er ekki neitt
gerviefni, heldur árangur af
náttúrulegum, lifrænum
breytingum, sem verða við hag-
stæð skilyrði á lifsskeiði gerils-
ins. Aður en fullkominn árangur
náðist, þurfti langar og um-
fangsmiklar örverurannsóknir.
Finnst mörgum þessi prótein
hafa vissa kosti fram yfir venju-
legar landbúnaðarafurðir,
vegna þess hve mikið er notað
af tilbúnum áburði og alls kyns
eitri við jarðrækt i dag.
Það var fyrir fimmtán árum,
að visindamenn fóru að beina
athygli sinni að rannsóknum á
þessu viðfangsefni. Tilfellið var,
að á þeim tima þótti fyrirsjáan-
legt, að gifurlegur próteinskort-
uryrði i heiminum ekkisiðar en
upp Ur 1970, sérstaklega i
þróunarlöndunum. Einnig varð
samdráttur i iðnaði og minnk-
andi oliunotkun til þess að leita
varðað nýjum leiðumtil að nýta
oliuna.
Oliuborturn. Kemur olía frá honum til með að leysa próteinþörf-
ina?
Alfred Champagnat, leiðtoga
hóps franskra visindamanna,
datt i hug, að þetta gæti verið
lausn á báðum þessum vanda-
málum, vegna þess að áður-
nefndur geriil er rikur af stein-
-og^fjörefnum. Hann hóf rann-
sóknir, og árangurinn af starfi
hans varð svo góður, að ráðizt
var i að reisa tilraunaverk-
smiðju árið 1963. BP hefur i
hyggju að nota niðurstöður
Champagnats i gróðaskyni, en
forsvarsmenn þess segja að
nota megi próteinið sem hráefni
fyrirýmsar iðnaðargreinar, s.s.
til framleiðslu á dýrafóðri og ef
til vill seinna meir matvæla-
framleiðslu.
1 flestum löndum heims er
krafizt fullkomins öryggis fyrir
þvi, að ný efni, sem sett eru i
fæði mgnna og dýra, séu ekki
skaðleg. BP hefur þess vegna
einnigstundað rannsóknir á þvi
sviði,sem stjórnað er af viður-
kenndum visindamönnum. Eftir
meira en tiu ára rannsóknar-
starf, — sem er langtum lengra
en lágmarks prófunartimi, sem
krafizt er i svipuðum tilfellum,
hefur efnið alls engin neikvæð
áhrif haft á tilraunadýrin, sem
fóðruð hafa verið með Toprina.
Samhliða stöðugt aukinni
fólksfjölgun verður prótein-
skorturinn tilfinnanlegri. Sifellt
er verið að reyna að finna nýjar
leiðir i hinum hefðbundna land-
búnaði, en það er seinvirkt og
háð duttlungum náttúruaflanna.
Framleiðsla á Toprina er aft-
ur á móti óháð þeim. Sem stend-
ur virðist framleiðsia þess al-
gjörlega takmörkuö við fram-
leiðslu húsdýrafóöurs i stað
matvæla til manneldis. En vera
má, ef rétt er á spööum haldið,
að prótein úr oliu komi til meö
að leysa próteinskort mann-
kynsins. (Þýttog endursagt JB)
Sendum hvert á land sem er - Sérstaklega handhægar
pakkningar og þvi litill flutningskosnaður
Húsgagnavei'slun Reykjavíknr hí’
Brautarholtl 2 - Simi I-19-40
Klenimur I Klemmur Stuðgúmmí
Fjaðrablöð
Augablöð
Bílaeigendur:
Athugið:
Nú er i undirbúningi pöntun á fjöðrum og
fjaðrablöðum hjá okkur.
Þar eð afgreiðslutimi á pöntun er væntan-
legur i marz-april er æskilegt að pöntun
verði gerð hið fyrsta.
Mikið af þessari pöntun fer ekki á lager,
þvi er mjög æskilegt að þér hafið samband
við okkur varðandi þarfir yðar hið fyrsta.
®l
;
snai
Siðumúli 7-9 — Simi 8-27-22
Meinatæknir
Staða meinatæknis að Reykjalundi er laus
til umsóknar. Meinatæknirinn ætti að geta
hafið störf sem fyrst og ekki siðar en i jan-
úar n.k.
Umsóknir sendist yfirlækni sem veitir
jafnframt nánari upplýsingar um starfið.
Vinnuheimilið að Reykjalundi.
Mosfellssveit, simi 66-200