Tíminn - 28.11.1976, Qupperneq 18

Tíminn - 28.11.1976, Qupperneq 18
18 Sunnudagur 28. nóvember 1976 menn og málefni Hvað hefði Alþýðu- bandalagið gert? Vetrarstilla á Reykjavikurhöfn. Tíniamynd Gunnar. Af því súpum við seyðið nú Þegar rætt er um störf núver- andi rikisstjórnar, gleyma stjórn- arandstæðingar jafnan þvi, að hún tók við slæmu efnahags- ástandi, eða sem svaraði rúmlega 50% verðbólgu á árs grundvelli. Hins vegar er rangt að færa þetta erfiða ástand á reikning vinstri stjórnarinnar. I árslok ’73 var staða þjóðarbúskaparins og atv.veganna i bezta lagi, enda mjög hagstætt verzlunarárferði á árinu 1973. En fljótlega eftir ára- mótin 1973-1974 hófust erfiðleik- arnir vegna siversnandi viðskiptakjara og við það bættust svo hinir óraunsæju kjarasamn- ingar i febrúarmánuði 1974. Þá strax þurfti að veita öflugt viðnám, enda hófst ólafur Jóhannesson, sem þá var for- sætisráðherra, handa um það á myndarlegan hátt. Hann lagði mjög ákveðið viðnámstillögur fyrir þingið og hefðu þær verið samþykktar, væri ástand efna- hagsmála nú annað og betra en það er. Ingvar Gislason vék ný- lega að þessu i útvarpsræöu sinni á þennan hátt: „Vegna óeiningar og klofnings i þáverandi samstárfsf lokkum Framsóknarflokksins og vegna óbilgirni valda-og áhrifaafla utan, Alþingis og loks vegna óábyrgrar stjórnarandstöðu var komið I veg fyrir, að viðnámstillögur þáv. forsætisráðherra, Ólafs Jó- hannessonar, nægðu fram að ganga. Mátti segja, að á þessu timabili stæði Framsóknarflokk- urinn einn gegn öllum i því, að vilja stöðvun þeirrar holskeflu verðbólgu og dýrtiðar, sem blasti viö á næsta leiti. Þvi miður stóðst vinstra samstarfið ekki þessa erfiðu prófraun. Ef farið hefði verið eftir ráðum og vilja ólafs Jóhannessonar og Framsóknar- flokksins fyrri hluta árs 1974, þá hefði verðbólgu- og dýrtiöar- ástandið ekki komizt á það stig, sem var hér á landi, þegar núver- andi rikisstjórn tók við völdun siðsumars 1974. Verðbólguaukn- ingin 1974var53% sem er bæði ís- landsmet og Evrópumet i verð- bólgu á siðustu mannsöldrum. Þessi viðskilnaður i verðbólgu- og dýrtiðarmálum setti ævarandi blett á vinstra samstarfið 1971- 1974, og þess mætti Ragnar Arn- alds minnast manna helzt.” Vissulega mættu stjórnarand- stæðingar eins og Ragnar Arn- alds minnast þessa, en rétt er þó að geta þess, að á þessum tima var afstaða Alþýðubandalagsins miklu ábyrgari en hún er nú, en það studdi þá öll meginatriðin i tiliögum ólafs Jóhannessonar. En þær fengu samt ekki nægan stuðning og þvi fékkst ekki nægi- legt viðnám gegn hinni stórfelldu verðbólguöldu, sem var að risa. Af þvi súpum við seyöið nú. Sama takmark og úrræði Hiklaust má segja, að núver- andi rikisstjórn hafi i megin- dráttum fylgt svipaðri stefnu og vinstri stjórnin. Hún hefur lagt kapp á að tryggja næga atvinnu ogþróttmikla byggðastefnu. Hins vegar hefur aðstöðumunur þeirra verið mikill. Vinstri stjórnin bjó yfirleitt við batnandi viðskipta- kjör, en núverandi stjórn hefur lengstum búið við versnandi viðskiptakjör. Þetta hefur óhjá- kvæmilega haft áhrif á lífskjörin, sem ekki er með neinu móti hægt að ásaka núverandi stjórn um. Vegna hinna óhagstæðu viðskiptakjara, hefur hún þurft að beita mun róttækari aðgerðum en vinstri stjórnin til að tryggja rekstur útflutningsframleiðsl- unnar og atvinnuöryggið, en úr- ræöi hennar i þeim efnum hafa ekki verið neitt frábrugðin þeim, sem vinstri stjórnin beitti undir svipuðum kringumstæðum (gengislækkun, takmörkun visi- tölubóta, hækkun söluskatts). Glöggt dæmi Hvergi sést það þó skýrar en á sviði landhelgismálsins að báðar rikisstjórnirnar hafa fylgt sömu meginstefnunni. Vinstri stjórnin hófst handa um útfærslu fisk- veiðilögsögunnar eftir langt að- gerðarleysi viðreisnarst jórn- arinnar. Með útfærslunni i 50 mil- ur var stigið stærsta sporið i land- helgisbaráttunni, þar sem flest mikilvægustu fiskimiðin og uppeldisstöðvarnar eru innan 50 milna markanna. Þessi útfærsla kostaði nýtt þorskastrið við Breta, sem lauk með þvi, að þeir drógu stórlega úr veiðum sinum. Aðrar þjóðir virtu 50 mílna mörk- in. Núverandi rikisstjórn fylgdi þessari einbeittu stefnu fast fram. Þróun hafréttarmála, eink- um þó á- sviði hafréttarráðstefn- unnar, skapaði möguleika til að færa fiskveiðilögsöguna út i 200 milur. Segja má, að núverandi rikisstjórn hafi gripið fyrsta tæki- færi, sem gafst til að færa fisk- veiðilögsöguna út i 200 milur. Enn kom til þorskastyrjaldar við Breta, en henni lauk með fullum sigri tslendinga. Islendingar hafa ekki aðeins fengið hina nýju fisk- veiðilögsögu viðurkennda i reynd heldur hefur þetta frum- kvæði þeirra haft mikil áhrif á allan gang hafréttarmála og flýtti stórlega fyrir almennri viður- kenningu á 200 milna reglunni. Framgöngu þessara tveggja rikisstjórna i landhelgis- baráttunni mun þvi lengi lof- samlega minnzt. Holl áhrif Hjá þvi verður ekki komizt, þegar ræddir eru þessir mikil- vægu þættir landhelgisbaráttunn- ar að minna sérstaklega á þátt Framsóknarflokksins I þeim. Framsóknarflokkurinn var eini flokkurinn, sem átti fulltrúa i báðum þessum rikisstjórnum og i bæði skiptinhvildi mesta starfið á utanrikisráðherranum, sem stjórnaði baráttunni út á við, og dómsmálaráðherranum, sem stjórnaði i baráttunni inn á við, þ.e.a.s. i landhelgisgæzlunni. Störf þeirra Einars Agústssonar og Ólafs Jóhannessonar i sam- bandi við þessar útfærslur hafa enn ekki verið metin sem skyldi. Hjá þvi verður heldur ekki kom- izt, að minna á, að Sjálfstæðis- flokkurinn sýndi verulega tregðu i sambandi við útfærsluna i 50 milur, svo ekki sé meira sagt, enda var hann þá utan stjörnar. Alþýðubandalagið sýndi svipaða tregðu i sambandi við útfærsluna i 200 milur, enda var flokkurinn þá utan stjórnar. Framsóknar- flokkurinn stóð hins vegar fast með báðum útfærslunum. Það reið baggamuninn. Landhelgis- málið er gott dæmi um holl áhrif Framsóknarflokksins i báðum umræddum rikisstjórnum. Kaupgjald og viðskiptakjör Þjóðviljinn reynir af miklum móði að kenna rikisstjórninni um þá kjaraskerðingu, sem hér hefur orðið, og miðar þá jafnan við 1. marz 1974, þegar kaupgjald var orðið miklu hærra en ráðherrar Alþýöubandalagsins i vinstri stjórninni töldu viðráðanlegt. Þvi er jafnan sleppt i þessum skrifum Þjóðviljans, að viðskiptakjör þjóðarinnar versnuðu um 10% á árinu 1974, miðað við næsta ár á undan, og á árinu 1975 versmuðu þau um 15% miðað við árið 1974. Hið stórfellda áfall, sem fylgdi þessu fyrir þjóðarbúið, hlaut að leiða til kjaraskerðingar. Vegna aðgerða núverandi rikisstjórnar hefur kjaraskerðingin orðið minnien óttast mátti, eins og sést á þvi, að kaupmáttur ráðstöf- unartekna verkamanna var næst- um hinn sami á árinu 1975 og 1972, sem var annað valdaár vinstri stjórnarinnar. Þetta hefur hins vegar orsakað viðskiptahalla og erlenda skuldasöfnun, sem ráða verður bót á, þegar viðskiptaár- ferði fer batnandi. Reynslan svarar í umræddum skrifum Þjóðvilj- ans er jafnan vikizt undan að gera grein fyrir þvi, hvað Alþýðu- bandaiagið heföigert, ef þaö hefði verið i sporum núverandi rikis- stjórnar. Raunar er þetta heldur ekki nauðsynlegt, þvi að af fenginni reynslu er auðvelt að átta sig á þvi, hvað Alþýðubanda- lagið hefði gert, ef það hefði átt aðild að rikisstjórn á undanförn- um tveimur árum. Það hefði staðið að gengisfellingunni, sem var gerð sumarið 1974. Foringjar þess lýstu sig reiðubúna til að fallast á hana, ef vinstri stjórnin héldi áfram. Alþýðubandalagið hefði einnig staðið aö gengisfell- ingunni, sem gerð var veturinn 1975, ef það hefði þá átt aðild að rikisstjórn. Þetta má bezt dæma af þvi, að helzti fjármálamaður Alþýðubandalagsins og aðal- fulltrúi þess i Seðlabankanum, Guðmundur Hjartarson, greiddi atkvæði með henni. Hinn fulltrúi Alþýðubandalagsins hjá Seðla- bankanum, Ingi R. Helgason, sat hjá við atkvæðagreiðsluna, og má vel ráða af þvi, að hann hefði greitt atkvæði á sama veg og Guðmundur, ef Alþýðubanda- lagið hefði verið i stjórn. Þá hefði Alþýðubandalagið reynt að sporna gegn kauphækkunum, eins og foringjar þess gerðu i sambandi við kjarasamningana veturinn 1974 þótt þeir yrðu þá að lokum að beygja sig vegna yfir- boða þáverandi stjórnarandstæð- inga. Þá hefði Alþýðubandalagið ekki siður verið fúst til þess en vorið 1974 að lögfesta bindingu á dýrtiðarbótum og hækkun grunn- launa, sem færi yfir ákveðið mark. Ábyrg afstaða Allt það, sem hér hefur verið nefnt, er byggt á staðreyndum varöandi afstöðu Alþýðu- bandalagsins, þegar það hefur átt þátt istjórn. Þetta er síður en svo sagt þvi til hnjóðs heldur hið gagnstæða, þvi að Alþýðubanda- lagið myndi hafa talið það skyldu sina, alveg eins og núverandi stjórnarflokkar, að tryggja rekst- ur atvinnuveganna, þvi að stöðv- un þeirra hefði leitt til margfalt meiri kjaraskerðingar en þeirrar, sem fylgdi umræddum ráðstöfun- um. Þetta sýnir einnig, að það verð- ur enginn vandi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn að ná samkomulagi við Alþýðubandalagið, ef hann vildi fallast á þá „sögulegu málamiðl- un”, sem foringja þess dreymir nú svo ákaft um. Neikvæð andstaða Enn er full ástæða til að minna á útvarpsumræðurnar um stefnu- ræðu forsætisráðherra. Þær leiddu i ljós meiri málefnafátækt og úrræðaleysi hjá stjórnarand- stæðingum en hægt er að finna dæmi um. Ræðumenn þeirra deildu á stjórnina fyrir næstum allt, sem miður fer og helzt mátti álykta af málflutningi þeirra, að stjórnin væri skipuð illviljuðum mönnum, sem vildu gera hlut alls almennings sem minnstan og verstan, en hlúa þeim mun betur að auðmönnum og atvinnu- rekendum. Þá væri haldið vernd- arhendi yfir hvers konar spillingu i þjóðfélaginu. Þegar þessum lestri lauk, og menn fóru að biða eftir þvi að heyra hvernig stjórnarandstæð- ingar hygðust leysa hin ýmsu vandamál, sem nú er glimt við, reyndust þeir ekki hafa upp á neitt að bjóða, nema það, að allt myndi breytast og batna ef flokkar þeirra fengu aðild að rikisstjórninni! En um það var ekki eitt orð, hvernig þeir hygðust gera það. Um ræður þeirra stjórnarand- stæðinga má þvi segja með sanni, aðþærséu gottdæmium, hvernig stjórnmálaumræður eigi ekki að vera. Þær voru frá upp- hafi til enda nei- kvætt raus, þar sem ekkert var viðurkennt nýtilegt af þvi, sem rikisstjórnin hafði gert, og reynt var að mála allt ástand efnahagsmála og þjóðmála sem dekkstum litum. Hvergi örlaði á þvi, að eitthvað hefði verið vel gert eða tekizt betur en horfur höfðu verið á, eða að eitthvað væri að finna, sem horfði til betri veg- ar. Það er slikur ræðustill stjórn- málamanna, sem meira en nokkuð annað grefur grunninn undan áliti þeirra, og veikir trú almennings á stjórnarháttum lýðræðis og þingræðis. Með þessum hætti er verið að undir- búa jarðveginn fyrir Glistrup- isma. Hafi nokkrir haft ástæöu til að fagna yfir þessum máttlu'tn- ingi stjórnarandstæðinga i út- varpsumræðunum, voru það afturhaldsöflin i Sjálfstæðis- flokknum, sem gefa út Dagblaðið, þvi betri stuðning við niðurrifs- áróður þeirra var tæpast hægt áð hugsa sér. Viðurkenna ber það, sem vel er gert Vissulega má benda á sitthvað, sem miður fer og ýmislegt hefur tekizt verr en skyldi. Sjálfsagt er að benda á það. En það á lika að viðurkenna, sem vel hefur verið gert. Það er skylt að viðurkenna þann mikla árangur, sem rikis- stjórnin hefur náð i landhelgis- málunum. Það er skylt, að viður- kenna að hér hefur verið næg at- vinna, meðan stórfellt atvinnu- leysi hefur verið i flestum nálæg- um löndum. Það er skylt að viðurkenna, að áfram hefur verið haldið hinni þróttmiklu byggða- stefnu, sem hafin var i stjórnartið Olafs Jóhannessonar. Það er skylt að viðurkenna þær endur- bætur á löggæzlunni, sem stefnt er að með tillögum nefndar þeirrar, sem ólafur Jóhannesson skipaði fyrirþremur árum, og nú liggja fyrir Alþingi. Alveg sér- staklega er rétt að minnast þessa, þegar gerður er samanburður við árin 1967-1970, þegar einnig var erfitt efnahagsástand. Þá varð hér stórkostlegt atvinnuleysi. stórfelld verkföll, mikill landflótti og verðbólguvöxtur þrefalt meiri en annars staðar. Sem betur fer hefur ekki slik raunasaga endur- tekið sig nú. En eftir þennan neikvæða mál- flutning stjórnarandstæðinga, er þjóðin þó þeirri reynslu rikari, að þeir búa ekki yfir úrræðum til að leysa vandann. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.