Tíminn - 05.12.1976, Blaðsíða 14

Tíminn - 05.12.1976, Blaðsíða 14
14 tiMiliK Sunnudagur 5. desember 1976 Island er ekki lengur ein- angrað. Strax þegar frelsið gaf þjóðinni olnbogarúm, kom stór- hugurinn og framtakið eins og þruma úr heiðskiru lofti. Ham- skipti islenzku framsóknaraldar- innar ná til allra hluta, andlegra og verklegra. Aðeins á einu sviði var þessi þeysireiö frjálsborinna athafna og trúar merkt slævandi andófi um að „biða og sjá hvað setur”. Aðeins handritamálið var tengt þeirri afturvirku sveiflu, sem einkennir eldri menn, sem dagsverkin falla þungt, af þvi að þeir eru farnir að þreytast. En meðan aldraðir, islenzkir höfðingjar flikuðu fyrirætlunum undanhaldsins, eins og t.d. hug- myndinni um handritin sem is- lenzk-danska sameign, unnu danskir hugsjónamenn meö full- um krafti aö þvi aö losa handritin undan dönskum yfirráðum. Sá merkasti á þessu sviði, og sá einasti, sem lagði persónulegar hagsbætur i sölurnar fyrir okkar land, er rithöfundurinn Jörgen Bukdahl.Mér er það ljóst, að þeir sem tengja öll nýstárleg tiðindi við æðstu embættismenn, myndu fyrst og fremst nefna Jörgen Jörgensen ráðherra. En án þess aö draga úr verðskuldaðri þökk til hans, verð ég þó aö nefna, að innreiö hans i fylkinguna hefst fyrst eftir margra ára strit og starf þeirra manna, sem hlóðu vigið. Hann markaði enga stefnu með þvi að ýta við morgunsvæf- um mönnum og upplýsa danska alþýðu um málið. En hann hafði aö baki sér langt samstarf við danska lýöháskólamenn, sérstak- lega i skólamálum, og hann var það samangróinn sjónarhring þeirra, að þegar til þjóðþingsins kom, fundust honum allar aðrar skoðanir i sambandi viö handritin óráðshjal. Enginn gat sannfært hann gm það gagnstæða. Hann er sá stjórnmálamaður sem sá um, að langferðamennirnir höfðu ekki rutt veginn til einskis. Langferðamaðurinn — eða sá persónuleiki, sem gerðist frum- kvöðull danskra átaka við þau öfl, sem neituðu aö skila íslandi handritunum, er Jörgen Bukdahl. Og. honum tókst að veita furðulegu frjómagni inn I þjóðarvitund Dana um málefni, sem enginn þekkti skil á og engum var ætlað að fást við nema fornfræðingum. Fyrstu árin átti hann öflugan fylgismann i hinum viðkunna, danska skóla- manni, C.P.O.Christiansen, skólastjóra i grundtvigska lýðhá- skólanum við Hilleröd. Hann hafði barizt fyrir norrænni sam- vinnu og norrænum félagsskap i mörg ár, ekki bara i orði heldur einnig á borði, og hann fylgdi þeirri stefnu þvi sem næst eins og ástriðuþrungnu ákalli. Þegar striðið skall á drógu islenzk mál- efni þessa menn til sin á sérstæð- an hátt. Þó að Danmörk væri hernumin, skoöuðu þeir dönsku þjóðina sem fylkingu varðmann- anna á múrnum gegn þeim, sem fótumtroöa réttinn og rjúfa sátt- málana. En þegar þeir voru að benda á mismun hinna pólitisku lifshátta utan og innan múrsins, var engu likara en þeir gætu ekki sætt sig við að tala um norrænt bræðralag án þess að Danmörk tæki ákveðið spor gagnvart ís- landi. Island hafði gert ráöstafan- ir um handritaheimt á Alþingi 1930 og aftur 1938. Að venju var ekki mikiö talað um þá hluti i Danmörku, sem aðeins var skrif- að eða rætt um á islenzku máli. En þessir norrænu fullhugar höfðu tekið eftir þvi, og þeir héldu ekki margar ræöur þar sem þeir reyndu að varpa af Dönum áhrif- um nazismans, án þess samtimis að risa gegn dönsku afturhaldi og krefja þannig reikningsskil milli okkarþjóða, að þaðyröi ekki neitt hálfverk. Það er enginn efi, að þessi logi kveikti þau áform að sameina dönsku lýðháskólana gegn danska háskólavaldinu, sem fram á þennan dag hafði gert all- ar tilraunir um handritaskilun fremur magnlitlar. Aðalátakið hófst árið 1947 þegar allir lýðhá- skólarnir sendu áskorun til danska þjóðþingsins um að skila handritunum. Það var C.P.O. Christiansen, sem safnaði undir- skriftum félaga sinna, skólastjór- anna við lýöhaskólana. Þess- vegna hefur lýðháskóla-hergang- an að miklu leyti verið tileinkuð honum. En mér er vel kunnugt um það, hvernig jarðvegurinn Bjarni M. Gíslason: Hugsjóna- maður við þröskuld níunda tugarins Danski rithöfundurinn Jörgen Bukdahl er einn af þeim Dönum, sem barðist lengst og bezt fyrir réttlátri lausn handritamálsins. Þann 8. desember verður hann áttræður. í þvi tilefni hefur Timinn beðið Bjarna M. Gislason, sem þekkir hann manna bezt, að rita um hann. Grein Bjarna hyllir hinn aldraða heiðursmann, en gefur öðrum þræði upplýsingar um upphaf og markmið baráttunnar meðal dönsku ís- landsvinanna. skiptin yrðu ekki of smásálarleg. En jafnvel þó einhverjum hafi fundizt það ráðlegt að stilla rausn hans i hóf, réttlætir það á engan hátt, að bjargarráðið, gjafartil- lagan, sé tileinkuð einhverjum öðrum. Gervimennskan getur aldrei orðiö guðsneisti. Of ef ein- hver skyldi halda, að Danir pukri með stórhug Bukdahls eins og óvelkomið kapp, sem hafi tekið fram fyrir hendur höfðingjanna, ættu þeir að lesa nýútkomna bók eftir hann hjá Gyldendal, „To spor”. I formálanum gerir Erik Vagn Jensen það að engu leyndarmáli, að gulini þráðurinn I ákvörðunum danska þjóöþingsins viðvikjandi handritunum, hafi ekki verið akademisk einhæfni heldur viðsýni Jörgens Bukdahls. var plægöur áður en efnt var til átaka við afturhaldsöflin. Jörgen Bukdahl átti ekki minnstan þátt i þvi. Þegar þessi áskorun lýðháskól- anna kom fram ráku andstæðing- ar afhendingar handritanna upp öskur. Og lengi áttu menn erfitt meö að átta sig á fúkyrðunum, inntaki þeirra. Þau komu að mestu frá akademiskum topp- mönnum, og almenningur hafði ekki gert sér i hugarlund, að slikir menntamenn liktust hávaða. - sömum hrossabrestum. Þessi há- vaði var I rauninni ekkert annað I sjálfu sér enn gamalt fyrirbæri 19. aldarinnar, þegar sjálfskip- aðar höföingjaklikur ráku sig á ólærða alþýðumenn sem allt i einu fóru að skipta sér af opinber- um málum. En spurningin er bara ,hvort menningarastandið hafi verið öðruvisi á Islandi, þar semmáliðvarþókallað þjóðmál? Stýröu höfðingjarnir þar minna eftir tóngefandi, akademiskri hefð en eftir þeim stjörnum vits og þjóðlegs réttlætis, sem ein- kenndi dönsku alþýðubaráttuna? A meðan á handritamálinu stóð, sá ég að einstakir menn álitu sig kallaða til að upplýsa Islenzku þjóðina um gang málsins, en ég minnist ekki margra greina, sem ekki minntu ótrúlega mikið á gömlu hirðsalafrúrnar, sem i sin- um hefðarpilsum læddust á tánum kringum allt, sem ekki var hægt að tengja smettinu á em- bættishrauknum. Ekki veit ég, hvort það er af- sprengi af þessari frjóu önn em- bættislegrar einhæfni, að Stefán . Jóhann Stefánsson tileinkar Bent A. Koch gjafártillöguna I Minningum sinum? Eða hvort það er Daninn sjálfur, sem hefur álitið sig skrautlegra umferöar- merki á hinum sögulega áfanga en vissa aðra landa sina? En mér er ómögulegt að sjá, að dönsku eða íslenzku þjóðinni sé það sér- stakur viröingarauki, að ekki sé sagt satt og rétt frá i þessu tilfelli. Gjafartillagan er Jörgen Buk- dahls verk. Þegar hún var lögð fyrir danska þjóöþingið árið 1957 var gjafarhugmyndin að visu engin nýjung fyrir hann. Ég minni á það, að áskorun dönsku lýðháskólanna til danska þjóð- þingsins áriö 1974 hafði sem yfir- skrift: „Giv Island (gefið Is- landi!) sine skatte tilbage.” Þegar á þvi timabili og jafnvel mörgum árum fyrr var það rætt af fámennum hópi manna, hvern- ig bezt myndi vera að sniöganga allt hið lögfræðilega og visinda- lega þras, sem fram á þennan dag hafði haldið málinu I óvirkri sjálfheldu og þurrkað út öll veru- leg lausnaráform. Þessum mönn- um var það ljóst, að tsland gróf slna eigin gröf með þvi að halda málinu stöð- ugt til streytu á sama grund- velli og árið 1928, þegar sér- Jörgen Bukdahl fræðingum var falin forsjá lausn- arinnar. Danska andstaðan breiddi út allt lim sitt einmitt frá hinum akademiska toppi Dana, og hún gliðnaði ekki sundur, þó að hún sæi framan I islenzka forn- fræðinga. Þess vegna var bein parlamentarisk lausn nauðsyn- leg, ef ísland átti að fá einhver handrit. En bein parlamentarisk lausn var þvi aðeins möguleg, að danska þjóðin væri ekki alltof litilþægur áhorfandi, en þrýsti á þjóðþingið og gæfi þvi i hendur einhverja tillögu, sem gæti leyst vandann án gildandi hefðar há- skólavaldsins. Þessar skoðanir vorú hið upp- runalega frjómagn gjafartillög- unnar, sem öðrum þræði var háö þeim vanda, hvernig Island myndi taka þvi að fá sinn eigin þjóðararf sem gjöf. Auk þess var það lengi stór spurning, hverjum væri hægt að trúa fyrir þessu á þjóðþingi Dana. Slikur maður varð að starfa svo öruggt og æðrulaust, að honum fipaðist ekki þegar móðursjúkt hámenntaof- stæki færi að æpa sinar röksemd- ir. En áriö 1957 kom hinn öruggi maður I ráðherrastól, Jörgen Jörgensen, gamall samstarfs- maður lýöháskólanna. Og þá var Jörgen Bukdahl ekki seinn að grlpa pennann og punkta gjafar- tillöguna niður. Hann sendi mér hana fyrstum allra manna til yfirvegunar. Ég skal ekki leyna þvi á þessum merkisdegi gamla mannsins, að þegar hún kom frá hans hendi var ætlazt til þess, að tsland fengi öll handritin, hvert ein asta blaö. Þegar hann komst að þvi, að annar geðþótti hafði læðzt inn i áformin barðist hann fyrir þvi með oddi og egg i bréfum og simasamtölum til Hafnar, að Engin styrjöld, stór eða litil, hefur nokkru sinni veriö háð, án þess að rás viðburðanna verði krufin til mergjar siðar. Ég ætla ekki að gera neinar tilraunir til þess hér, að draga handritabar- áttuna inn á sjónarmiö sögunnar. En i stuttu máli sagt varð öllum það ljóst, þegar ekki lengur var hægt að hindra sigur aiþýðu- hreyfingarinnar dönsku, að mjaltakonum hins opinbera varö starsýnt á rjómann i fötunni. Ein- staka dönum fannst hann alltof smjörmikill og reyndu að þynna hann sem bezt þeir gátu. Islenzk- um forráðamönnum fannst hins vegar Ilátiö ekki nægilega skrautlegt. A tslandi var hand- ritabaráttan stöðnuð I eins konar sérfræðingatrúarbrögðum. Venjulegu fólki eða almennri skynsemi var ekki ætlað að ræða um slika hluti. Islenzku höfðingjunum kom það þess vegna algerlega á óvart, að dönsk alþýðuhreyfing gæti borið veru- leg lausnaráform eins langt og raun varð á. Og þar eö þeir höfðu sjaldan horft lengra frá sér en til þessarar fornfræði, sem þeir stööugt ráku nefið i, varð uppi fót- ur og fit til að reyna að láta það lita út eins og ekkert hefði komið fyrir annaö en þaö, að nokkrir velviljaðir Danir hefðu gerzt skó- sveinar þeirra. Handritastjá Gylfa Þ. Gislasonar hnigur að þvi, að setja þannig sjónhverfing- ar á svið. En það voru fleiri , sem fundu þörf á mikilli stássgöngu i sam- bandi við handritamálið, eftir að allt leit út fyrir að enda vel. Minningar Stefáns Jóhanns Stef- ánssonar eru ekki lausar við þess háttar tilburði. Svo fólk mis- skilji ekki á hvaða plani hann er staddur, lætur hann mikið bera á þvi, að hann hafi hitt ráöherra, og aö allir þessir ráðherrar hafi ver- ið einstakir dugnaöarmann i handritamálinu. Hann gengur svo mikið upp i sinni stórmennaupp- talningu, að hann lætur sér ekki nægja að skjalla þá sem eru á lifi heldur kallar til andagtar yfir hinum dauðu lika. Ef hann hefði sagt frá þvi, að þessir sömu ráð- herrar hrukku oft illilega upp af svefni, þegar kjósandinn fór að skella hurðum yfir seinagangi þeirra i handritamálinu, hefði enginn lágstéttarmaður þurft að kippa feimnislega i buxnastreng- inn. En það er engu likara en is- lenzka þjóðin hafi orðið þvilikrar blessunar aðnjótandi, þegar vald- ið og tignin kom i allri sinni dýrð að ekki megi hrella hana meö þvi að gefa henni hugboð um alþýðu- hreyfingu, sem hafði brotiö dönsku andstöðuna á bak aftur. Hjálparhellurnar verða að vera ráðherrar,' prófessorar, ambassadorar og þvi um likt. Hann nefnir ekki einn af aðal- mönnum skilunarhreyfingarinn- ar á nafn, C.P.O. Christiansen, — og Bukdahl að- eins i einni linu. Hins vegar getur hann ekki á sér setið að næla sér i örlitla flis úr brennistakki þess- ara sistritandi viðarhöggsmanna. Eða er það sjálfsánægja Danans, sem hefur fipað Stefán? Af bók- inni verður nefnilega ekki annað séð| en að hannhafihitt Bent A. Koch af einskærri tilviljun, og að þetta happ hafi leitt það af sér, sem útleggst undir einni af mynd- um bókarinnar á þennan hátt: „Við handritasamherjar, Bent A. Koch og höf.” Ég man þó ekki betur, en að ég hafi fylgt þessum unga manni til sendiherra, eftir að hann (B.A.K.), fyrir áhrif og tilstilii Jörgen Bukdahls, hafði tekið sér fyrir hendur, að gerast milliliður skilunarhreyfingarinn- ar til islenzkra yfirvalda. Ég hef ekki nefnt þetta til að vanþakka þeim forystumönnum danskra stjórnmála, sem Stefán nefnir i bók sinni. Þeir fundu mætavel gróandann I grasinu hjá þjóð sinni. Og án þeirrar slvax- andi sprettu hefðu þeir aldrei komið neinu I framkvæmd við- vikjandi lausn handritamálsins. En ég nefni það vegna þess, að mér finnst það algerlega óviðeig- andi, að islenzkir menn fari fram hjá höfuðpersónunum I barátt- unni fyrir okkar hönd vel vitandi, aö þeir gerðu ekkert sjálfir annað en það, að biða eftir áhrifunum af starfi þeirra. Allir vita, að það er algeng lágkúra i stjórnmálum, aö reyna að fá hlutina til að blasa þannig við, að hver einasti unninn fengur, jafnvel veðurbliðan og loðnutorfurnar, sé þeim að þakka sem sitja viö völd. En slikur ásetningsruglandi er alveg óvið- eigandi I þjóðmáli, og er þegar allt kemur til alls, helber móðgun gagnvart islenzku þjóðinni sjálfri. Það er engu likara en hún sé skoöuð sem nautheimsk lág- stétt, sem ekki hafi verið ætlaö annað hlutverk i þjóðmáli sínu, en að dilla sér af monti, þegar hátt- settir embættismenn fóru hönd^ um um snerilinn. Handritabaráttan var allt ann- að en tátylludans. Hún var strit og erfiöi þeirra manna, sem sáu að ekkert myndi vinnast án kynn- ingar á þvl máli, sem danska þjóðin skildi. Að nefna alla þá Is- landsvini, sem stóðu aö þessu kynningarstarfi I mörg ár, verður að biða annarra blaða. En þegar ég hugsa til þeirra, dettur mér oft i hug gamalt nytjastarf i fátæku sveitinni minni á Vestfjarða- kjálkanum. Þegar menn gengu á reka var um það bil allt álitið not- hæft, fjalir og viðarstubbar. En Frh. á bls. 39

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.