Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 2
2 2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
STÓRIÐJA „Ég vara við því, sem ég
hygg að allir séu sammála um og
komið hefur fram í máli iðnaðar-
ráðherra, að við getum ekki tekið
of stór skref í einu. Það eru að
minnsta kosti þrír aðilar að sækj-
ast eftir því að stækka eða reisa
nýjar álverksmiðjur hér,“ segir
Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins.
Hann segir að framkvæmdum
verði að raða þannig að þær valdi
ekki þenslu á hverjum tíma. „Við
verðum að gæta þess að brotlenda
ekki þegar álversframkvæmdum
lýkur á Austurlandi. Þá gæti hent-
að að setja í gang einhverja fram-
kvæmd en sjá til þess að þensluá-
hrifin verði ekki skaðvænleg.“
Norðlendingar hafa gagnrýnt
iðnaðarráðherra og telja það
svik verði aðeins talið rými fyrir
stækkun álversins í Straumsvík.
Flokksþing Framsóknarflokks-
ins lagði í fyrra sérstaka áherslu
á að næsta stóriðja yrði staðsett
á Norðurlandi og var samþykkt
ályktun þar að lútandi.
„Nú hefur sú breyting orðið að
menn horfa til uppruna orkunnar
og vilja síður flytja rafmagnið
um langan veg. Annað er að þetta
kann að ráðast af orkuseljanda og
orkukaupanda og Alcan bauð að
því er virðist besta orkuverðið á
dögunum í viðræðum við Lands-
virkjun,“ segir Hjálmar Árnason.
Fram hefur komið á fundum
iðnaðarráðherra á Akureyri og
Húsavík að allir þrír kostirnir,
sem kannaðir hafa verið á Norð-
urlandi fullnægja kröfum um
álver með 250 þúsund tonna
framleiðslugetu á ári. Hafnar-
framkvæmdir yrðu þó 1,3 millj-
örðum króna ódýrari í Eyjafirði
en við Húsavík og í Skagafirði, en
Húsvíkingar njóta nálægðar við
stærstu orkulindirnar.
Alcoa hefur frest til 1. mars til
að gera upp við sig hvort félagið
heldur áfram undirbúningi að
hugsanlegri álverksmiðju á Norð-
urlandi. „Þeirra er valið,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir sem sagt
hefur að áætluð fólksfjölgun á
Norðurlandi í tengslum við nýtt
álver, sé 1100-1400 manns.
Samanburðarskýrsla staðar-
valsrannsókna var kynnt Húsvík-
ingum í gærkvöldi og á Akureyri
í fyrrakvöld. Iðnaðarráðherra
kynnir niðurstöðurnar á fundi
með Skagfirðingum í kvöld. - kk / jh
Framsóknarmenn
vilja álver nyrðra
Flokksþing Framsóknarflokksins í fyrra lagði ríka áherslu á að næsta álver yrði
reist á Norðurlandi. Þingflokksformaðurinn segir að ýmislegt hafi breyst síðan
þá, en varar við að fara of geyst. Álfundur var á Húsavík í gærkvöld.
Líkamsárás í Vestmannaeyjum Til
stympinga kom milli tveggja í heimahúsi
í Vestmannaeyjum í fyrrinótt. Lögreglan
skarst í leikinn og sá þá að annar mann-
anna var sár eftir hníf. Sögðu mennirnir
að um slys hafi verið að ræða. Mennirnir
þekkjast lítið. Ekki var búið að kæra
líkamsárásina til lögreglu í gær.
Árekstrar á Akureyri Tveir smá-
árekstrar urðu á Akureyri í gærmorgun.
Í öðru tilvikinu var um aftanákeyrslu að
ræða en í hinu var bifreið ekið í veg fyrir
aðra. Minniháttar eignarskemmdir urðu í
árekstrunum. Engin slys urð á fólki.
LÖGREGLUFRÉTTIR
NOREGUR Eins manns er saknað
eftir vatnavextina í Þrændalögum
í Noregi að undanförnu. Talið er
að bíll mannsins hafi hafnað úti í
firði þegar Arnevikbrúin í Åfjord
hrundi á þriðjudagskvöld. Leitar-
skilyrði reyndust afar erfið vegna
veðurs og gruggugs vatns, sam-
kvæmt norska dagblaðinu Aften-
posten. Talið er að ökumaðurinn
hafi verið 20 ára gamall karlmað-
ur, en óvíst er hvort hann var einn
í bílnum.
Hundruð manna þurftu að yfir-
gefa heimili sín þegar flóð og aur-
skriður eyðilögðu vegi og hrifu
heilu húsin með sér. Mikil úrkoma
og hlýindi valda flóðunum. - smk
Vatnavextir í Noregi:
Skemmdirnar
eru gífurlegar
DÓMSMÁL Mennirnir tveir sem
frömdu vopnað rán í Lyf og heilsu,
Austurveri í Reykjavík, í fyrra-
sumar hafa verið dæmdir. Annar
sætir fangelsi í tólf mánuði, en
níu mánuðir eru skilorðsbundnir
í þrjú ár. Hinn var dæmdur í tíu
mánaða fangelsi óskilorðsbundið.
Mennirnir fóru saman inn í
lyfjaverslunina með hulin and-
lit, annar vopnaður hnífi og hinn
vopnaður skrúfjárni. Þeir ógnuðu
starfsfólki og kröfðust ákveðinna
lyfja.
Annar mannanna framdi einig
vopnað rán í Domino´s. Báðir voru
þeir teknir af lögreglu með fíkni-
efni. Það var metið öðrum mann-
inum til refsilækkunar að hann
hefur farið í meðferð og stundar
nám. Þótti rétt að skilorðsbinda
dóm hans að hluta. - gag
Tveir dæmdir fyrir vopnað rán:
Rændu apótek
ÍRAK, AP Einræðisherrann fyrrver-
andi, Saddam Hussein, og verj-
endur hans mættu ekki í dómssal
í Bagdad í gær í mótmælaskyni
við nýjan yfirdómara sem settur
var á sunnudag. Kúrdinn Raouf
Abdel-Rahman skipaði nýja verj-
endur og hélt réttarhöldunum
ótrauður áfram þótt flesta hinna
ákærðu vantaði í réttarsalinn.
Saddam, sem var leiðtogi Íraks
í 23 ár, og sjö aðrir eru ákærðir
fyrir morð á yfir 140 sjía-múslim-
um í kjölfar morðtilræðis á Sadd-
am árið 1982. Verjendur halda
því fram að Abdel-Rahman geti
ekki verið hlutlaus, því Saddam
er sagður hafa fyrirskipað dráp á
ættmennum dómarans. - smk
Saddam og verjendur:
Neita að mæta
í réttarsalinn
YFIRDÓMARI Raouf Abdel-Rahman er nýr
yfirdómari í máli Saddams Hussein.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
Valgerður, ertu græn af öfund?
„Og rauð af reiði? Nei, alls ekki.
Valgerður Bjarnadóttir hefur ákveðið að
taka ekki annað sæti á lista Vinstri grænna á
Akureyri. Hún hafnaði í öðru sæti í prófkjöri
nyrðra og var ósátt við niðurstöðuna.
ÁLVER FJARÐARÁLS Í REYÐARFIRÐI Norðlendingar leggja áherslu á að næsta álver rísi á
Norðurlandi og minna framsóknarmenn á samþykkt síðasta flokksþings þar að lútandi.
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR IÐNAÐAR-
RÁÐHERRA Álver gæti þýtt fólksfjölgun
um 1100-1400 manns á Norðurlandi.
Ekkja látin Coretta Scott King, ekkja
Martin Luther King, lést á heimili sínu
í Atlanta í Bandaríkjunum á þriðju-
dagsmorgun, 78 ára að aldri. Líkt og
eiginmaður hennar, sem var myrtur
árið 1968, barðist Coretta ötullega fyrir
mannréttindum og jafnrétti.
BANDARÍKIN
ÍRAN, AP Verði kjarnorkumálum
þeirra vísað til Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna, neyðast Íranar
til að hefja auðgun á úrani í stór-
um stíl og banna óvæntar eftirlits-
heimsóknir SÞ í verksmiðjurnar,
að sögn Ali Larijani, aðalkjarn-
orkufulltrúa Írans.
Málið virðist vera orðið að valda-
baráttu milli Írans og George W.
Bush Bandaríkjaforseta. Í stefnu-
ræðu sinni á þriðjudag sagði Bush
að þjóðir heims mættu ekki leyfa
Íran að eignast kjarnorkuvopn, og
að Bandaríkin myndu vinna að því
að svo yrði ekki.
Í gær sagði forseti Írans, Mah-
moud Ahmadinejad, þúsundum
landa sinna að Bandaríkin væru
„innantómt risaveldi“ og að Íranar
hefðu fullan rétt á kjarnorkufram-
leiðslu. „Þjóð okkar mun ekki láta
undan þvingunum yfirgangssamra
landa sem ímynda sér að þau séu
allur heimurinn,“ sagði Ahmadin-
ejad. „Kjarnorka er réttur okkar,“
svaraði múgurinn.
Íranar segjast eingöngu ætla
sér að nota kjarnorkuna í frið-
samlegum tilgangi, en talsmenn
Bandaríkjanna telja þá ætla sér að
búa til vopn. Stjórn Alþjóðakjarn-
orkueftirlitsstofnunarinnar fund-
ar í dag og mun ákvarða hvort vísa
beri málinu til Öryggisráðsins.
- smk
Íranar neita að láta stórveldin stjórna sér og hóta fullri kjarnorkuvinnslu:
Segjast eiga rétt á kjarnorku
ÍRANSFORSETI Í KJARNORKUVERI Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, í miðju, skoðar
Bushehr kjarnorkuverið í Íran í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKATTBYRÐI Sigurjón Þórðarson,
þingmaður Frjálslyndra, krafðist
skýrra svara um skattbyrði og
sakaði fjármálaráðherra á Alþingi
í gær um talnablekkingar í svör-
um sínum við fyrirspurn Jóhönnu
Sigurðardóttur, Samfylkingunni,
síðastliðinn mánudag.
Sigurjón spurði hvort ráðherr-
ann hefði gengið út frá því að 120
þúsund króna laun væru í raun
sambærileg 120 þúsund krónum
meira en áratug síðar og meta
mætti breytingar á skattbyrði á
þeim grunni.
„Fjármálaráðuneytið ber
saman 120 þúsund króna tekjur á
mánuði árið 1994 við sömu krónu-
tölutekjur árið 2006 og 2007. Það
ber ekki saman tekjur á föstu
verðlagi eins og rétt er að gera.
Með þessari aðferð er staðreynd-
um hagrætt,“ segir Einar Árna-
son, hagfræðingur Landssam-
bands eldri borgara. Hann segir
að almennt sé greiddur skattur
af stærri hluta tekna en áður, þar
sem skattleysismörkin hafi setið
eftir að raungildi. „Á mæltu máli
er það hækkun skatta, ef hærra
hlutfall af sömu rauntekjum fer í
tekjuskatta.
Þetta hafa fræðimenn við
Háskóla Íslands, staðfest nú und-
anfarið. Síðast staðfesti ríkis-
skattstjóri að skattbyrðin hefði
aukist vegna hærri tekna en einn-
ig vegna þess að skattleysismörk-
in hefðu lækkað að raungildi.“ - jh
Fjármálaráðherra ber á borð hálfsannleika um skattbyrði segja aldraðir:
Skattbyrðin er samt þyngri
ELDRI BORGARAR Talsmenn þeirra segja
fjármálaráðherra hagræða staðreyndum.