Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 8
8 2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00-18.00 og laugardaga kl. 12.00-16.00 Micra Verð 1.390.000.- Með nagladekkjum, sjálfskiptur, 6 diska geislaspilari, lyklalaus, sjálfvirkar rúðuþurrkur. MICRA NISSAN RISASTÓR! SKIPT_um væntingar ... með fría sjálfskiptingu 100.000kr. verðlækkun í febrúar og öryggisins vegna fylgja vetrardekk á felgum með! Álfelgur á mynd eru aukahlutur VEISTU SVARIÐ 1 Hvað heitir næstæðsti maður hryðju-verkasamtakanna al-Kaída? 2 Hver hefur verið ráðinn ritstjóri á Fréttablaðinu við hlið Kára Jónassonar? 3 Hvaða argentínski landsliðsmaður í fótbolta er genginn til liðs við Portsmouth? SVÖRIN ERU AÐ SÍÐU 50 VINNUMARKAÐUR Sjö erlendar og íslenskar starfsmannaleigur höfðu skráð sig á vef Vinnumálastofnun- ar síðdegis í gær, þar á meðal var portúgalska starfsmannaleigan Epalmo Europe sem talin hefur verið stærsta starfsmannaleigan með starfsemi hér á landi. Hinar starfsmannaleigurnar eru ÞH verk, Islit, People Select Aviation, GM Staffing fyrir utan Holtan Industrier og 2b, sem greint var frá í gær. People Select Aviation er bresk starfsmanna- leiga í fluggeiranum, GM Staff- ing er dönsk starfsmannaleiga og Islit er nýstofnað fyrirtæki í eigu Litháa. Hann hyggst flytja inn byggingarefni og standa að starfsmannaleigu hér á landi. Paulo Santos hefur yfirumsjón með starfsemi Epalmo Europe hér á landi. Hann segir að starfs- mannaleigan opni skrifstofu á Íslandi í byrjun þessa mánaðar og þá komi hann sjálfur til landsins. Epalmo Europe hafi 15 ára starf- semi á bak við sig og hafi nú þús- undir starfsmanna um allan heim og starfsemi meðal annars í um 20 löndum í Evrópu. Starfsmanna- leigan hafi um 60 starfsmenn hér á landi í augnablikinu. Fjöldinn fari eftir eftirspurn hverju sinni. Epalmo fylgi lögum og reglum og reyni að gera viðskiptavinina ánægða. „Við erum ekki guð en við erum heldur ekki djöfullinn. Það er rétt að sum fyrirtæki borga ekki rétt en í okkar tilfellum munum við fara yfir þetta og ræða það. Ef fólk fær ekki rétt greitt þá þurf- um við að leiðrétta það en starfs- menn okkar fá fullt af peningum. Við vinnum með stjórnvöldum og erum að þróa fyrirtækið og koma samskiptum við verkalýðsfélög og stjórnvöld í lag. Þetta er ekki nútímaþrælahald,“ segir hann og kveðst hafa fullan skilning á því að efasemdir hafi skapast. „Það er okkar að sýna fram á að fólk hafi rangt fyrir sér.“ Ole Kristian Bakke er umsjón- armaður Íslandsstarfseminnar hjá norsku starfsmannaleigunni Holtan Industrier sem er með fimm sænska smiði hér á landi í augnablikinu. Hann segir að Holtan Industrier sé 25 ára gömul starfsmannaleiga sem muni ein- göngu leigja norræna iðnaðar- menn hingað til lands. Það séu gæðin, ekki magnið, sem gildi. Starfsmannaleigan fari að einu og öllu eftir íslenskum lögum og reglum. ghs@frettabladid.is AÐ STÖRFUM Á NORÐURHJARA Starfsmannaleigur eru farnar að skrá sig á vef Vinnu- málastofnunar. Sumar þeirra eru nýstofnaðar en aðrar hafa margra ára starfsemi að baki. Myndin tengist fréttinni ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ekki nútíma- þrælahald Sjö erlendar og íslenskar starfsmannaleigur höfðu skráð sig á vef Vinnumálastofnunar síðdegis í gær. NEPAL, AP Miklar óeirðir brutust út í Nepal í gær þegar ár var liðið frá valdatöku Gyanendra konungs. Í opinberri ræðu lofaði konungurinn þjóðarkosningum fyrir apríl á næsta ári og sagði hermenn sína hafa náð miklum árangri í baráttunni við óeirðar- seggi kommúnisma, jafnvel þótt aðfaranótt miðvikudags hafi upp- reisnarmenn ráðist á og myrt 20 lögreglu- og hermenn í Vestur- Nepal. Jafnframt var tuga lög- reglumanna saknað eftir árásina, að sögn ónefnds talsmanns hers- ins. Talsmenn stjórnmálaflokk- anna sögðu orð konungs vera hjóm eitt og héldu sjö stærstu flokkarn- ir fjölmenna mótmælafundi gegn alræði konungs í Katmandú og fleiri borgum í gær. Konungurinn tók völdin af ríkisstjórn lands- ins í febrúar 2005 til að reyna að knésetja kommúnista í landinu. Valdatakan var harðlega gagn- rýnd bæði innanlands sem utan. Evrópusambandið hvatti konung- inn í gær til að láta af einræðis- stefnu sinni, leita friðsamlegra leiða til að leysa úr vanda þjóð- arinnar og gefa þegnum sínum borgaraleg réttindi. - smk Óeirðir í Nepal ári eftir valdatöku konungs: Konungi mótmælt LÝÐRÆÐISSINNI HANDTEKINN Óeirðalög- regla handtekur konu á mótmælafundi. LUNDÚNIR, AP Mannbjörg varð þegar tankskipið Ece sökk um 50 kílómetrum norðvestur af eyjunni Guernsey í Ermarsundi í gær- morgun eftir árekstur við gáma- flutningaskip, að sögn bresku strandgæslunnar. Tuttugu og tveimur sjómönnum var bjargað. Í flutningarými Ece eru um 10.000 rúmlestir af fosfórsýru. Leki sýran er ekki gert ráð fyrir að hún valdi langtímaskaða í lífríki sjávar, en talsmaður Grænfriðunga sagði að reyna bæri eftir fremsta magni að koma í veg fyrir leka. Bresku og frönsku strandgæslurnar reyna nú að bjarga því sem bjargað verður úr flakinu. - smk Mannbjörg varð þegar tankskip sökk í Ermarsundi: Fosfórsýra gæti lekið TANKSKIP SEKKUR Tankskip sökk í Ermar- sundi í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FUGLAFLENSA Landbúnaðarstofn- un efnir til kynningarfunda um fuglaflensu víðs vegar um landið á næstu vikum. Á fundunum verð- ur fjallað um sjúkdóminn, mat á áhættu að hann berist til landsins, vöktun farfugla og alifugla og um varnir sem gripið verður til grein- ist hann hér á landi. Til stendur að halda fundi á sex stöðum á landinu. Fundirnir eru fyrst og fremst ætlaðir dýralæknum, eigendum alifugla, alifuglabændum, svína- bændum og starfsfólki sem vinnur við alifugla- og svínarækt, að sögn Landbúnaðarstofnunar. Markmið- ið er að ná til flestra þessara hags- munaaðila og kynna fyrir þeim viðbúnað, viðbrögð og aðgerðir sem skipulagðar hafa verið í þessu samhengi. Fundirnir eru þó öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. - jss Landbúnaðarstofnun: Kynna viðbrögð við fuglaflensu PÓLLAND, AP Leitarhundar fundu á þriðjudag þrjú lík til viðbótar í rústum sýningarhallarinnar í útjaðri suður-pólsku borgar- innar Katowice sem hrundi um helgina, og kom í ljós í gær að eitt þeirra var af Ungverja. Hann er níundi erlendi ríkisborgarinn sem fundist hefur látinn. Stað- festur heildarfjöldi látinna var í gær leiðréttur í 63. Um 500 manns, gestir á fjöl- þjóðlegu móti bréfdúfuræktenda, voru staddir í höllinni á laugar- daginn þegar þakið brast, að því er virðist undan snjóþunga. Rannsókn stendur enn yfir á orsökunum, en húsið var stál- grindarhús reist fyrir sex árum. Einn hönnuða hússins reyndi að svipta sig lífi tveimur dögum eftir að ósköpin dundu yfir, að því er talsmaður saksóknaraembætt- is svæðisins sagði í gær. Maður- inn hefði „örugglega upplýsingar sem munu hjálpa til við að upp- lýsa orsökina,“ sagði hann. Víða um Pólland var unnið að því að moka snjó af flatþökum stórhýsa, svo sem stórmörkuðum og íþróttahöllum. ■ ERFIÐAR AÐSTÆÐUR Björgunarsveitarmenn fundu þrjú lík til viðbótar í rústum sýning- arhallarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Sýningarhöllin í Suður-Póllandi sem hrundi um helgina: Meira en 60 hafa fundist látnir KJARAMÁL Dómarafélag Íslands stendur við yfirlýsingu þá er það sendi frá sér í síðustu viku og mun halda að sér höndum þrátt fyrir að minnsta kosti einn dómari hafi þegar ákveðið að hefja málsókn. Ákvörðun Alþingis að fella úr gildi úrskurð kjaradóms um launa- hækkanir til æðstu manna ríkisins, að dómurum meðtöldum, hefur farið illa í margra. Staðfest er að Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari ætli í mál en að sögn Arngríms Ísberg, varaformanns félagsins, er ekki vitað um fleiri sem hafa tekið þá ákvörðun. Það breyti engu að félagsmenn ætla að fara þess á leit að ræða við stjórn- völd um lausn á málinu. - aöe Dómarafélag Íslands: Bíða viðræðna við stjórnvöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.