Fréttablaðið - 02.02.2006, Síða 20
2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR20
hagur heimilanna
MATUR & NÆRING SIGURGEIR HÖSKULDSSON MATVÆLAFRÆÐINGUR
Skemmdur matur eða hollustuvara
// Farið verður yfir heildarveiðina síðasta sumar og spáð í spilin fyrir
næsta sumar - Þórólfur Antonsson hjá Veiðimálastofnun.
// Daníel Edelstein kynnir það nýjasta í veiðigleraugum.
// Nýjir og spennandi veiðimöguleikar Veiðikortsins verða kynntir.
// Veiðistaðalýsing á Laxá í Aðaldal - Nessvæði og urriðasvæði neðan stíflu.
// Stórkostleg, áður óbirt, 50 ára gömul kvikmynd af laxveiðum verður
frumsýnd. Meðal annars sést Jóhannes á Borg veiða yfir 20 punda laxa.
// Myndagetraun og Happahylurinn á sínum stað.
Föstudaginn 3. febrúar
OPIÐ HÚS
HJÁ SVFR
Skemmtinefndin
Veitingar á vægu verði og heitt á könnunni.
Húsið opnar klukkan 20.00
Sala og neysla á þorramat
nær hámarki á þessum
tíma ársins og er ekki að
merkja neina minnkun í
neyslu síðustu ár. Engu að
síður er hópur fólks sem
er alls ekki vel við þennan mat og telja
þessa varðveisluaðferð gamaldags og
óþarfa með öllu. En er það svo?
Vissulega er það gömul hefð að
súrsa mat. Forfeður okkar brúkuðu
þessa aðferð þar sem ekki var mikið
um aðrar aðferðir til varðveislu mat-
væla. Það var ekki fyrr en undir lok
19. aldar sem salt var flutt til lands-
ins sem einhverju nemur. Upp frá því
fóru menn einnig að frysta matvæli og
sjóða niður. Þrátt fyrir nýjar varðveislu-
aðferðir höldum við í þann forna sið að
súrsa þannig að segja má að súrsun sé
frekar orðin verkunaraðferð heldur en
varðveisluaðferð. Við verkum súrmat
til að ná fram ákveðnum eiginleikum
vörunnar sem okkur líkar.
Ólíkt mörgum vinnsluaðferðum,
þá eykst næringarlegt
gildi súrmatarins við
verkun. Verkunin
byggist á því
að soðin
m a t v æ l i
eru sett í
skyrmysu
í nokkra
mánuði en
við það lækkar
sýrustigið sem hindrar
fjölgun sjúkdómsvald-
andi örvera. Mysan inni-
heldur steinefni og vítamín,
svo sem kalk og B vítamín
sem síast inn í vöruna. Auk þess
brýtur mjólkursýran niður kjöt, fitu
og bein sem gerir vöruna auðmeltan-
legri og næringarríkari.
Engu að síður eru sum súrsuð
matvæli frekar feit í eðli sínu eins og
bringukollar og lundabagg-
ar. Erfitt gæti því reynst að
kalla þær vörur hollar
þó svo þær séu
nær ingar r íka r.
Blóðmör og
lifrarpylsa eru
orðnar mun
fituminni vörur
en áður og því
hiklaust hægt að
halda því fram að þar
sé um að ræða virki-
lega hollan og góðan
mat.
Súrmatur er hluti af íslenskri
menningu sem mikilvægt er að halda
við. Það gildir jafnt um þennan mat og
annan að allt er gott í hófi. www.mni.is
■ „Þegar ég er að bjóða fólki heim í
mat og drykk, án þess að verða gjald-
þrota, verð ég að beita góðri brellu
sem móðir mín beitti hér áður,“ segir
stjórnmálafræðingurinn Hannes
Hólmsteinn Gissurarson.
„Þannig var í gamla daga
þegar ég var lítill strákur og
vildi ekki borða matinn minn
hjá móður minni þá fór ég
til nágrannakonunnar og
fékk að borða þar. Nema
hvað að móðir mín sá við
þessu og laumaðist yfir til
nágrannakonunnar með matinn að heiman.
Nágrannakonan skellti honum á fallegan disk
og þá borðaði ég matinn með bestu lyst þó
ég hefði sveiað við honum hjá móður minni.
Ég nota þetta trikk og kaupi ódýrt en gott vín
í þriggja lítra kút fyrir veisluna en set það svo
á kristalskaröflu og allir verða ánægðir.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
BRELLAN HENNAR
MÖMMU
> Kílóverð af lifrarkæfu í febrúar. Miðað við verðlag á öllu
landinu.
Heimild: Hagstofa Íslands
Útgjöldin
Strætó tekur í notkun tvo
nýja almenningsvagna
sem eru knúnir metangasi.
Notkun metangass er mjög
þýðingarmikið fyrir um-
hverfið. Metan er öruggari
orkugjafi en bensín og
hefur verið notað lengi við
framleiðslu rafmagns og í
iðnaði.
Strætó bs. kynnti á þriðjudag tvo
nýja almenningsvagna sem ganga
fyrir metani. Þar með hefur fyr-
irtækið stigið enn eitt skrefið í þá
átt að draga úr útblástursmengun
á höfuðborgarsvæðinu. Áður hafði
Strætó bs. verið frumkvöðull í
notkun vetnisknúinna bifreiða hér
á landi.
Metanknúnar bifreiðar eru í
senn afar umhverfisvænar og hag-
kvæmar í rekstri. Þannig er kol-
tvísýringsútblástur 113 bifreiða,
sem nota metan, jafn mikill og
frá einni bifreið sem gengur fyrir
hefðbundnu eldsneyti. Þegar það
er haft í huga að 158.500 bifreið-
ar eru nú þegar á götum höfuð-
borgarsvæðisins þá má ljóst vera
að notkun slíkra bifreiða skiptir
miklu máli frá umhverfislegu sjón-
armiði. Önnur hlið þessa máls sem
hreyfa ætti við fólki er að metanið
er alla jafna um 30 prósent ódýr-
ara en bensín. Nú eru á fimmta tug
bifreiða sem búnar eru fjölorku-
hreyfli í notkun og ganga því bæði
fyrir metani og bensíni. Sorpa
fer þar fremst í flokki með 14 bif-
reiðar, sem er viðeigandi þar sem
metanið er unnið úr sorpi á urð-
unarstað höfuðborgarsvæðisins í
Álfsnesi.
Margir eru hræddir við tækni
sem þeir þekkja ekki af eigin
raun. Vegna þessa halda margir
að notkun hefðbundins eldsneytis
sé öruggari en metans eða vetnis.
Staðreyndin er hins vegar sú að
metan er hættuminni orkugjafi en
bensín og engin þekkt dæmi eru
um slys af völdum þess. Metan er
heldur ekki nýr orkugjafi, þessi
lofttegund, sem myndast við nið-
urbrot á lífrænum úrgangi, hefur
verið notuð lengi til framleiðslu
rafmagns og í iðnaði.
Kynning Strætó bs. á nýju
almenningsvögnunum tveimur fór
fram á urðunarstað höfuðborgar-
svæðisins á Álfsnesi. Í tilefni dags-
ins fluttu stutt ávörp þau Steinunn
Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri,
Ásgeir Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs., Björn H. Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri Metan
hf. og Peter Boisen, framkvæmda-
stjóri ENGVA (European Natural
Gas Vehicle Association). Sam-
hliða kynningu Strætó bs. kynnti
Metan hf., dótturfyrirtæki Sorpu,
nýja og mun afkastameiri hreins-
unarstöð fyrir metangas. Þar er
nú þegar geta til þess að framleiða
metan á um 4000 smærri bifreiðar
á ári. svavar@frettabladid.is
Sorpi breytt í eldsneyti
EFNILEGUR BÍLADÆLARI Borgarstjóra er greinilega margt til lista lagt. Hér ber hún sig
fagmannlega að við metandæluna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Trico ehf. hefur nýverið hafið
útflutning á öryggissokkum
sem þróaðir hafa verið hjá
Trico. Gerðir hafa verið
samningar við Alcan álver
í Bretlandi og slökkvilið
Kaupmannahafnar. Þá hefur
borist fyrirspurn um sokkana frá
álveri í Suður-Kóreu. Sokkarnir eru
sagðir hafa kosti sem lýsa sér í einstakri
eldvörn og mjög lágri hitaleiðni. Þá
hrindir efni sokkanna frá sér vökva
og heldur hitastigi húðarinnar
í jafnvægi. Í öryggisprófun
hjá viðurkenndri rannsóknar-
stofnun í Frakklandi stóðust
sokkarnir hæsta stig staðalsins
EN 533. Helstu viðskiptavinir Trico
hérlendis eru Alcan á Íslandi, Norðurál
og Íslenska járnblendifélagið.
■ Verslun og þjónusta
Trico flytur út öryggissokka
Fyrsta skóflustungan að nýju verslunarhúsnæði við Dal-
braut 1 á Akranesi var tekin miðvikudaginn 25. janúar en
skóflustunguna tók Guðmundur Páll Jónsson, bæjarstjóri
Akraness.
Það er Smáragarður ehf., fasteignafélag Norvíkur hf., sem
sér um bygginguna. Stefnt er að því að opna verslunar-
húsnæðið nú í haust og mun Kaupás reka þar matvöru-
verslun. Þá er einnig ráðgert að önnur verslunar- og
þjónustufyrirtæki opni í húsnæðinu í haust.
■ Verslun og þjónusta
Ný verslun rís á Akranesi
Það varðar sektum að hindra eða trufla neyðarakstur lögreglu, slökkviliðs og sjúkra-
bifreiða, eða björgunarstarf að öðru leyti. Sektirnar eru misháar, eftir því í hverju
truflunin er fólgin.
Samkvæmt reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum,
er hæsta sektin ef ekki er vikið í tæka tíð fyrir ökutæki sem gefur
hljóð- eða ljósmerki. Verði ökumaður ekki við þeim tilmælum
að víkja er hægt að sekta hann um 10.000 krónur. Ef hvít
veifa er notuð án heimildar, skal ökumaður sektaður um
5.000 krónur. Einnig er hægt að sekta um 5.000
krónur ef óviðkomandi hamlar björgunarstarfi með
því að vera of nærri slys- eða brunastað, eða ef
vegfarandi rýfur för líkfylgdar, hóps barna undir
leiðsögn stjórnanda eða annarrar hópgöngu.
■ Hvað kostar... að hindra eða trufla neyðarakstur
10.000 að víkja ekki fyrir neyðarakstri
„Ég held að verstu kaupin sem ég hef gert sé í líkamsræktarkortum,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson alþing-
ismaður og rifjar þar með upp áralanga baráttu sína í því að gera átak í líkamsrækt að raunveruleika – en
kannski ekki tekist sem skyldi. „Nýting á þessum kortum hefur verið afskaplega bágborin hjá mér. Ég
hef verið að kaupa líkamsræktarkort annað hvert ár í tíu ár, þriggja mánaða kort og að meðaltali notað
þau kannski þrisvar. Síðasta kortið keypti ég núna fyrir jólin og er búinn að fara í ræktina þrisvar
á tveimur mánuðum. Ég held að þetta séu mjög slæm kaup.“
Spurður hvort hann hafi ekki brennt sig á þessum kaupum og hyggist snúa
sér að öðrum möguleikum í líkamsrækt, segir Ágúst Ólafur svo ekki vera.
„Ég er bjartsýnismaður að eðlisfari og tel að nú muni breyting verða á og
ég muni fara að nýta kortin betur. En það gerist sjálfsagt ekki og ég mun
örugglega endurtaka þessi verstu kaup aftur, í stað þess að fara í gönguferðir
eða gera eitthvað ódýrara. Þriggja mánaða kortin geta nefnilega verið rándýr
og hvert skipti getur kostað einhverja þúsundkalla.“
Um bestu kaup ævinnar segir Ágúst Ólafur að þau séu vafalaust þær íbúðir
sem hann hefur keypt í gegnum árin til að búa í.
„Þau kaup hafa alltaf komið vel út fyrir mig, þrátt fyrir miklar verðhækkan-
ir. En ég hef áhyggjur af öðru fólki sem skuldsetur sig of mikið. Það getur
verið hættulegt ef húsnæðisverð fer að lækka. Menn þurfa að passa sig,
en þetta hefur blessunarlega gengið upp hjá mér.“
NEYTANDINN: ÁGUST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON ALÞINGISMAÐUR:
Kort í ræktina verstu kaupin
1997 2001 2003
76
7
80
4
86
9
67
7
1999 2005
1.
00
3