Fréttablaðið - 02.02.2006, Side 58
38 2. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR
maturogvin@frettabladid.is
Elva Dögg Melsteð, blaðamað-
ur og lottómær, segist ekki vera
neinn sérstakur frumkvöðull
þegar kemur að eldamennsku þótt
henni finnist eldhúsið vera hjarta
heimilisins. Hún eldar þó mat á
hverjum degi enda gengur heim-
ilislífið betur ef hún gerir það.
Þar er líka nauðsynlegt fyrir börn
á leikskólaaldri að fá alvöru heim-
ilismat. Það er skýr verkaskpting
á heimilinu: Elva Dögg eldar
hversdagsmatinn en eiginmaður
hennar, Magnús Þór Gylfason, sér
um veislumatinn.
„Gourmet matur er hluti af
hans áhugasviði og hann getur
eytt ógurlegum tíma í að dunda
sér við að útbúa veislumat,“ segir
hún og er mjög ánægð með þessa
verkaskiptingu. Elva Dögg segist
ofast elda það sem krökkunum
hennar finnist skemmtilegast að
borða.
„Hakk og spagettí er alltaf jafn
vinsælt en krakkarnir eru líka
hrifnir af pastaréttum. Svo reyni
ég að hafa fisk reglulega.“
Hún segir kjúklinginn líka allt-
af jafn vinsælan og hún ætlar að
gefa uppskrift af mangókjúklingi
sem er ættaður frá tengdamóður
hennar sem er ein af fyrirmynd-
unum hennar þegar matreiðsla er
annarsvegar.
„Þessi kjúklingaréttur er mikið
eldaður um helgar og mér finnst
best að hafa brún hrísgrjón með
honum og jafnvel nanbrauð. Svo
er gott að hafa spínatsalat með.“
Þegar hún er spurð um hvað
hún þurfi að eiga í ísskápnum
segir hún það nánast alltaf vera
það sama.
„Ég hlæ oft að því þegar ég er
í matvörubúðinni. Það er alltaf
sami maturinn í körfunni eins og
kjúklingabringur, hakk, græn-
meti og tómatar í dós.“
martamaria@frettabladid.is
> Chili-olía
...frá L‘occitane
gefur heima-
tilbúnum salötum
nýja vídd.
Börnin stýra eldamennskunni
MANGÓKJÚKLINGUR ELVU DAGGAR Er sérlega góður og Matthildur María og Gylfi Þór borða hann með bestu lyst. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MANGÓKJÚKLINGUR FYRIR FJÓRA
4 kjúklingabringur eða kjúklingalundir
1 peli af rjómi (eða matreiðslurjóma
fyrir þá sem eru í heilsuátaki)
1 krukka Mangóchutney, helst frá
Charwood
Milt karrí eftir smekk
Slatti af pressuðum hvítlauk
Byrjið á því að skera kjúklinga-
bringurnar í bita og steikið á pönnu
ásamt hvítlauk. Þegar það er orðið
vel brúnað er rjóminn settur út í
ásamt mangóchutneyi. Þar næst er
karríinu bætt út í og látið malla á
pönnunni í dágóða stund. Gætið
þess vel að það brenni ekki.
SPÍNATSALAT
Spínat
Parmesanostur í sneiðum
Niðursneiddar perur
Pistaðar furuhnetur.
Ítalska vínið Pasqua Cabernet-Merlot í þriggja lítra kössum hefur verið
söluhæsta ítalska vínið á Íslandi undanfarin ár og í hópi þeirra vína
sem seljast mest. Þessar miklu
vinsældir hér á norðurslóðum
gleðja mjög Pasqua-fjölskyld-
una sem fagnaði nýlega 80 ára
afmæli víngerðarinnar. Pasqua
Cabernet-Merlot er frá svæð-
inu í kringum Feneyjar á Ítalíu
frá fyrirtækinu Pasqua Vigneti
& Cantine sem ætíð hefur verið
fjölskyldufyrirtæki og eru höf-
uðstöðvarnar í Veróna.
Vínið er blanda af Caber-
net-Sauvignon (60%) og Mer-
lot (40%) og er látið gerjast á
stáltönkum. Um 10% blanda af
Cabernet-Sauvignon er sett til
hliðar og geymd á eikartunn-
um í 6-7 mánuði áður en vínið
er fullgert. Það er létt, með
krydduðu berjabragði.
Verð í Vínbúðum 3.290 kr.
PASQUA:
Vinsælasta ítalska vínið
Chateau Cantenac-Brown er eitt þekktasta vín
Frakklands og hefur notið hylli vínáhugamanna og
safnara hérlendis. Ekki spillir fyrir að dýrari vín
eru fremur hagstæð í innkaupum hér á landi vegna
hinna flötu áfengisskatta. Ekki síst er vert að benda
ferðafólki sem á leið um Fríhöfnina í Keflavík á
dýrari vínin, þau eru að jafnaði um 30% ódýrari
þar en í Vínbúðum. Chateau Cantenac-Brown er eitt
allra vinsælasta vínið í þessum flokki í Fríhöfninni
en þar kostar það 2.640 kr.
Cantenac-Brown höllin er byggð í breskum
Tudor-stíl og sker sig því nokkuð úr í Margaux.
Framkvæmdir voru hafnar á síðustu öld af John-
Lewis Brown en hann var sonur bresks vínkaup-
manns. Það var hins vegar franskur vínkaup-
maður, Armand Lalande, sem lauk við byggingu
hallarinnar og hélt jafnframt áfram þeirri vönd-
uðu víngerð er Brown-fjölskyldan hóf. Voru vín
Cantenac-Brown höfð með í hinni frægu flokkun
ársins 1855. Þetta er vín í klassískum Margaux-
stíl úr þrúgunum cabernet sauvignon, merlot og
cabernet franc.
Verð í Vínbúðum 3.690 kr.
CANTENAC-BROWN:
Ofurvín á góðu verði á Íslandi
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Ég gæti ekki verið án grænmetis því ég er
grænmetisæta.
Fyrsta minningin um mat?
Ég man eftir að hafa fengið hafragraut með
lýsi á leikskóla. Þá var lýsið sett út í skeiðina.
Þetta var svo sjokkerandi að ég man ennþá
eftir því.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Það var þegar ég borðaði dýrindis sushi á
Hawai.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Ég er alæta, finnst allt gott. En einn daginn
slokknaði á kjötgeninu í mér, get ekki borðað
kjöt né fisk lengur.
Leyndarmál úr eldhússkápnum?
Í staðinn fyrir að setja kjötkraft í sósur og
súpur nota ég sojasósu sem er betra fyrir þá
sem borða ekki kjöt. Það er eins og það komi
dýpri kraftur úr sojasósu.
Hvað borðar þú til þess að láta þér líða
betur?
Skyr. Ég væri alveg til í að borða súkkulaði en
ég reyni að halda mig frá því.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Skyr, mjólk og egg. Svo er ég ægilegur sukkari
og nota rjóma út í kaffið, á því alltaf til rjóma.
Auk þess eru alltaf til einhverjar grænmetis-
tutlur hjá mér.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða rétt
myndir þú taka með þér?
Ég myndi taka með mér heilan poka af
hnetum.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur
borðað?
Krókódíll í Ástralíu.
Hann var mjög seigur
og skrítinn á bragðið.
Ég hef líka borðað
Andouille í Frakklandi
sem er eins og pylsur
nema fyllingin í þeim
eru garnir, óhakkaðar.
Þetta er þjóðarréttur í
Frakklandi og er hann
borinn fram sem
gourmet-matur en
mér fannst þetta
algjör hörmung.
MATGÆÐINGURINN: INGVELDUR ÝR JÓNSDÓTTIR
Hafragrautur með lýsi á leikskólanum
���������
��������������
������������
���������
��������������
������������
���������
��������������
������������
���������
��������������
�����������
���������
��������������
������������
�������������������������������������
����� �����
������������
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar