Tíminn - 14.05.1977, Blaðsíða 2
2
fMntt
Laugardagur 14. maí 1977
Sjón-
varps-
dagskrár
sendar
• >
a sjo
Menntamálaráöherra hefur ný-
veriö skipaö nefnd til aö athuga
meö hvaöa hætti er hagkvæmast
aö koma á hljóövarps- og sjón-
varpsefni til sjómanna á hafi úti
og auka þar meö nýtingu á þvi
efni sem þar er flutt.
Sérstaklega er nefndinni faliö
aö gaumgæfa og gera tillögur um
notkun segulbandstækja og
myndsegulbandstækja i þessu
skyni. Er hugsunin sú, aö ef slik
tæki væru um borö i skipum væri
hægt aö lána einhverja þætti af
dagskrárliöum sjónvarps og
hljóövarps um borö i skip og gætu
sjómenn. þá notiö þeirra er þeir
hafa tóm til þótt þeir hafi ekki
tækifæri til aö sjá og heyra sömu
dagskrárliöi þegar þeir eru send-
ir út. Þegar eru til myndsegul-
bandstæki um borö i nokkrum is-
lenzkum skipum.
1 fyrrgreindri nefnd eru:
Ingólfur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Farmanna- og
fiskimannasambandsins, for-
maöur Höröur Frfmannsson, yf-
irverkfræöingur Rikisútvarpsins
og Ómar Ragnarsson fréttamaö-
Vorsýning Þjóðdansa-
félagsins
KJó-R.viK. — MæstKomanai
sunnudag kl. 15.00 veröur haldin
vorsýning Þjóödansafélagsins i
Laugardalshöllinni þar sem
dansaöir veröa dansar frá ein-
um 20 löndum og dansarar sam-
tals 160 talsins. An efa veröur
þaö skemmtileg sjón og fögur,
litskrúö mikiö og dansinn sjör-
ugur. Sýningunni stjórnar Svav-
ar Guömundsson og er hann
einnig aöalkennari. Um lOObörn
dansa á sýningunni og hefur
Kolfinna Sigurvinsdóttir kennt
þeim og æft. Aörir kennarar eru
þær Helga Þórarinsdóttir,
Hpigfnhildur Georgsdóttir,
Hrund Hjaltadóttir, Steinunn
Ingimundardóttir og Jetta
Jakobsdóttir.
Þjóödansafélag Reykjavikur
er áhugamannatélag og styrkt
af áhugamönnum. Gildi þess er
ekki einungis fólgiö i skemmtun
og likamsrækt, heldur einnig
söfnun og varöveizlu þjóödansa
og annarra heimilda, sem ella
væri hætt viö aö lentu i glatkist-
una. Aö öörum þræði hefur fé-
lagið þvi ærið menningargildi
auk þess sem flestum mun svo
farið aö hafa ánægju af lit-
skrúöi og fjöri þjóðdansanna.
Sýning sem þessi krefst mik-
ils undirbúnings, ekki sizt ef vel
skal til hennar vandað eins og
félagar Þjóðdansafélagsins
munu hafa fullan hug á. Má á
það benda aö allir þeir búningar
sem notaöir eru vinna félagarn-
ir aö mestu leyti sjálfir og eru
þar ófá handverkin.
Þjóðdansafélag Reykjavikur
hefur fariö meö sýningar út á
land, t.d. i Bifröst i des. s.l.
Starfsemi félagsins er þó aö
mestu bundin viö Reykjavik og
kemur þar til fámennt starfslið
og fjármagnsleysi. Innheimta
styrktarfélagsgjalda stendur nú
yfir og geta styrktarfélagar sótt
aögöngumiða sina i Laugar-
dalshöllina á föstudag frá kl. 2
til 4 e.h. og einnig á sunnudag
við innganginn frá kl. 13.00 og
greitt um leið og styrktarfélags-
gjaldiö, sem er nú kr. 1.600.00
EB - viðræður
í júnímánuði
EINS og kunnugt er hefur ríkis-
stjórnin samþykkt aö taka á
móti fulltrúum Efnahagsbanda-
lags Evrópu, til viðræöna um
fiskvciðimál almennt.
I tengslum viö ráðherrafund
Atlantshafsbandalagsins sem
haldinn var i London dagana
10.-11. mai sl. hitti Einar
Agústsson, utanrikisráöherra,
aö máli brezka aöstoðarutan-
rikisráöherrann Frank A. Judd,
en Bretar fara nú meö for-
mennsku i ráðherraráöi Efna-
hagsbandalagsins. Akveöiö var
aö nefnd, sem i veröa Finn Olav
Gundelach frá framkvæmda-
stjórn, Frank A. Judd, aöstoö-
arutanrikisráöherra, sem nú
gegnir formennsku i ráðherra-
ráðinu, og embættismenn frá
Efnahagsbandalaginu, komi til
tslands til viðræöna dagana 9.
og 10. júni nk.
Miklar framkvæmdir
á Mngeyri:
Fyrirhugaðar um-
bætur á flugvelli
Ríkið borgi
75% bygging
arverðs
heimila
dag-
SE-Þingeyri. — A hádcgi I gær fór
skuttogarinn Framnes I héöan á-
lciðis til Færeyja með 130 tn afla,
mest grálúðu. Vcröur aflanum
landað í Rúnavik i Skálafirði á
Austurcy. Skipstjóri á Framnesi I
er Siguröur Pétursson frá Bol-
ungarvik, er nú hefur tekið við
skipstjórn að fullu. Siguröur var
áður skipstjóri að hálfu á móti
Magnúsi Jóhannssyni, sem nú
hcfur flutzt héðan ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Tungufoss landaði hér i gær 270
tonnum af áburði. Vonast Dýr-
firðingar eftir að brátt fari að
hlýna, svo að gróandinn haldi hér
innreiö sina eftir langvarandi
vorkulda. Snjór er þó að mestu
horfinn héðan af láglendi og
veður hefur i raun verið gott,
hentugt til útiverka ýmissa og oft
beinlinis fagurt þó kalt sé sem
fyrr segir og frost á hverri nóttu.
Með flugvél Flugfélags tslands
hélt héðan i gær 16 manna hópur
áleiðis til Reykjavikur. Eru þar á
ferð skipverjar og landmenn af
nótabátnum Sæhrimni er hingað
var keyptur á sl. vetri. Nokkrar
konur þeirra félaga eru með i för-
inni. Ætlar hópurinn að sækja
leikhús og gera sér glaðan dag i
höfuðstaðnum i tilefni vertiðar-
lokanna. Skipstjóri á Sæhrimni er
Páll Björnsson.
1 fyrradag komu hingað á flug-
vél flugmálastjórnarinnar Stein-
grimur Hermannsson alþm., og
flugráðsmaður Agnar Kofoed
Hansen flugmálastjóri, auk
tveggja annarra starfsmanna
flugmálastjórnar. Sigurjóns
Einarssonar flugmanns og Ing-
ólfs Bjargmundarsonar deildar-
stjóra. Ræddu þeir viö heima-
menn um flugvöllinn hér og bún-
að hans, en þar eru fyrirhugaðar
ýmsar úrbætur á næsta ári. Hing-
aö komu þeir félagar frá Patreks-
firði, en fóru héðan aö Holti i On-
undarfiröiog til tsafjarðar i sömu
erindum.
Ýmsar framkvæmdir standa nú
yfir á vegum Þingeyrarhrepps.
Unnið er að byggingu þriggja
leiguhúsa og önnur þrjú eru fyrir-
huguð, og er grunngerð þeirra
þegar hafin. A sl. hausti hófst hér
smiði nýs barnaskólahúss og voru
undirstöður þess steyptar áður en
vetur gekk i garð. Verður þessu ,
verki fram haldið i sumar.
Að lokum má geta þess, að
unnið hefur verið að verulegum
endurbótum á hafnaraöstöðu hér,
að kalla sleitulaust i allan vetur
Veturinn var óvenju mildur og
hefur verkinu miðað vel áfram
undir stjórn Aðalsteins Aðal-
steinssonar frá Hvallátrum. Von
er á dýpkunarskipi til þess að
fullgera þennan áfanga nú á
þessu vori. Verður væntanlega
nánar skýrt siðar frá hafnar-
framkvæmdum hér.
Leiguflug
Flugleiða
KJ-ReykjavIk. — t sumar munu
Flugleiðir flytja 2700 feröamenn
frá Evrópu 1 22 leiguflugum fyrir
erlendar ferðaskrifstofur á tfma-
bilinu frá 23. april til 25. júni nk.
Er þetta veruleg aukning frá
fyrra ári þegar leiguflug fyrir
bVzkar, austurriskar og sviss-
neskar ferðaskrifstofur urðu alls
15 og farþegar 1800.
Þessir Evrópumenn munu allir
dveljast hér i eina viku og ferðast
um Reykjavik, nágrenni og út á
land. M.a. veröur farið til Akur-
eyrar, Húsavikur, Hafnar I
Hornafiröi og Vestmannaeyja og
munu nokkrir dveljast þar i
nokkra daga.
Flugleiðir munu ennfremur i
sumar sem endranær fljúga
leiguflug fyrir Islenzkar ferða-
skrifstofur á Boeing-727 þolum
sinum. Sólarlandaferðir verða
alls um 110 á timabilinu frá 10.
april til októberloka. Auk þess
verða fjögur leiguflug til Winni-
peg á timabilinu frá mai til ágúst-
loka og þá með DC-8 vélum Flug-
leiða. Þar eru á ferðinni tveir
hópar tslendinga og aörir tveir
hópar Vestur-tslendinga.
HV-Reykjavík. í gær fengu full-
trúar aðila vinnumarkaðarins,
sem setið hafa i starfshóp um
dagvistunarmál á fund Vilhjálms
Hjálmarssonar, menntamálaráð-
herra, til þess að ræða við hann
punkta þá sem fulltrúar vinnu-
veitenda og launþega hafa oröiö
ásáttir um i þvi sambandi.
Tillögur sinar lagöi starfshóp-
urinn fyrir rikisstjórnina þann 6.
mai slöastliöinn og hafa þær verið
ræddar á einum rikisstjórnar-
fundi, en eftir er aö ræða þær nán-
ar og endanleg ákvöröun veröur
tekin eftir það.
Tillögur starfshópsins eru svo-
hljóðandi:
1. Rfkisstjórnin heiti þvi, að við
gerönæstu fjárlaga verði gert ráð
fyrir að verja eigi minna én kr.
400 millj. sem stofnframlagi til
bygginga dagvistunarheimila I
samvinnu við sveitarfélögin.
Jafnframt gefi rikisstjórnin fyrir-
heit um að verja ekki lægri upp-
hæð, miðaö viö hækkun bygging-
arkostnaðar, á ári hverju næstu
fjögur ár til bygginga dagvistun-
arheimila.
2. Rikisstjórnin heiti þviv að sú,
breyting veröi gerð á lögum nr.
112/1976 um byggingu ög rekstur
dagheimila, aö ákvæöi 6. gr.
þeirra laga um hlutdeild rikis-
sjóðs, verði breyttúr 50% i 75% af
byggingarkostnaði.
3. Akvæöi veröi sett i lög nr.
112/1976 um byggingu og rekstur
dagheimila er kveði á um sér-
staka stjórn hvers dagheimilis
(dagheimila) I hverju sveitarfé-
lagi, þar sem tekiö skal fram að
auk fulltrúa eignaraðila skuli
fulltrúar vinnumarkaðarins eiga
sæti.
4. Akvæði veröi sett i lög eöa
reglugerö um að tryggt veröi, að
allir ibúar viðkomandi byggöar-
lags skuli samkvæmt nánari skil-
greiningu i reglugerð eiga sama
rétt til aö koma börnum sinum á
dagvistarheimili, sem byggt eða
rekið sé með styrk úr rlkissjóöi,
án tillits til starfs eöa stéttar, svo
og að gjöld verði ákveðin það lág,
aö mismunun þeirra vegna geti
ekki komiö til greina. 1 sambandi
viö byggingu nýrra dagvistunar-
heimila skal sú tegund stofnana
hafa forgang, sem aö dómi hlut-
aðeigandi stjórnar er mest þörf
fyrir hverju sinni.
5. Akvæði verði sett i lög um að
öll aöstaöa Fósturskólans skuli
bætt. Auknu fjármagni varið til
starfsemi skólans og skólanum
meö þvi sköpuð skilyröi til aö
brautskrá mun fleiri fóstrur en
skólinn hefur nú tök á.
6. öllum undirbúningi, svo sem
teikningum, skal hraða og önnur
hönnun heimilanna skai liggja
fyrir svo framkvæmdir þurfi ekki
að tefjast af þeim sökum, er fjár-
veiting hefur verið ákveöin.
7. Yfirlýsing um samþykki
rikisstjórnar varöandi framan-
greind atriði liggi fyrir áður en
kaup- og kjarasamningar veröi
undirritaðir.
Asamt þessum tillögum sinum
sendi hópurinn menntamálaráö-
herra svohljóðandi bréf:
Hæstvirtur menntamálaráð-
herra.
Um leiö og fulltrúar aöila
vinnumarkaöarins afhenda full-
trúum hæstvirtrar rikisstjórnar
meðfylgjandi tillögur er þeir lita
á sem fyrsta skref til lausnar á
þvi vandamáli, sem skortur á
dagvistunarheimilum er hér á
landi, telja þeir ástæöu til aö
vekja athygli á eftirfarandi:
Málefni og rekstur Fósturskól- *
ans hefur mjög komiö til álita I
umræöum varðandi lausn þess-
ara mála, þar eö skortur hefur
verið á sérmenntuðum starfs-
krafti til starfa á dagvistunar-
heimilum. Þaö er álit undirrit-
aðra aö nauösyn beri til, um leið
og málefni Fósturskólans verða
tekin til endurskoöunar, að breytt
veröi tilhögun að þvi er varöa inn-.
tökuskilyrði i skólann, þannig að
ekki verði eingöngu miöaö við á-
kveðnar prófkröfur, heldur verði
einnig tekið tillit til starfsreynslu
á dagvistunarstofnunum eöa öðr-
um sambærilegum stofnunum.
Einnig telja undirfituö samtök,
aö nauðsynlegt sé aö viökomandi
yfirvöld kanni sérstaklega, hvort
til greina geti komiö að gefa kost
á skemmra námi en þvi sem um
ræðir i fósturskólanum, sem mið-
ast viö sérmenntun starfsfólks
sem vinni undir stjórn fóstra.
Undirrituðum er ljós nauðsyn
þess að mennta sem bezt þá, sem
fást við hin mikilvægu uppeldis-
störf á dagvistunarheimilum. All-
ar ráðstafanir verða þó að miðast
viö raunverulegar þarfir. Staö-
reynd er aö við núverandi aðstæö-
ur nýtast ekki sem skyldi starfs-
kraftar fólks, sem bæði hefir
hæfileika og reynslu, sem aö
gagni gæti komiö. Úrbætur á
þessu sviði fást ekki nema veitt
veröi auknu fjármagni til Fóstur-
skólans og honum gert kleift að
taka til náms mun fleiri fóstrur en
hann getur nú. Einnig verði gert
fjárhagslega mögulegt aö efna til
skemmra náms sbr. framanritaö
verði þaö af hlutaðeigandi yfir-
völdum talið hugsanleg leiö til úr-
bóta.
JARNBLENDISAMNINGUR
GENGINN í GILDI
A AÐALFUNDI Islenzka járn-
blcndifélagsins h.f., er haldinn
var i Reykjavik miðvikudaginn
11. þ.m., geröist norska fyrir-
tækiö Elkem-Spigerverket a/s
hluthafi i fclaginu viö hlið rikis-
sjóðs, i samræmi við aðalsamn-
ing milli rikisstjórnar tslands
og Elkcm-Spigerverket a/s frá
8. desember 1976 og heimildir I
lögum nr. 18, 11. mai 1977 um
járnblendiverksmiöju i Hval-
firði, er afgrcidd voru á Alþingi
i fyrri viku. Verður hlutur Elk-
em-Spigerverket a/s i tslenzka
járnblendifélaginu hf. 45%, en
hlutur rikissjóös 55%.
A fundinum var dr. Gunnar
Thoroddsen, iðnaðarráðherra,
er fer með þau mál, er varða
eignarhlutdeild rikisins i félag-
inu, og meö honum þeir Páll
Flygenring, ráðuneytisstjóri, og
Arni Þ. Arnason, skrifstofu-
stjóri. Af hálfu Elkem-Spiger-
verket a/s sótti fundinn Karl
Lorck, aðalforstjóri félagsins,
og með honum Kaspar K. Kiel-
land, varaforstjóri og fyrir-
hugaðir fulltrúar þess i stjórn
tslenzka járnblendifélagsins.
Þeir Gunnar Thoroddsen og
Karl Lorck undirrituðu á
fundinum yfirlýsingu þess efnis,
að aðalsamningur rikisstjórn-
arinnar og Elkem-Spigerverket
væri genginn i gildi, þar sem
samþykki Alþingis væri fengið
við ofangreindum lögum og full-
nægt hefði verið öðrum þeim
skilyrðum, sem sett höfðu verið
við gildistökunni. Jafnframt
aðalsamningnum gengu i gildi
þeir samningar, sem Járn-
blendifélagið hefur gert varö-
andi starfræsklu fyrirhugaðrar
kisiljárnverksmiðju sinnar að
Grundartanga, tæknisamningur
við Elkem-Spigerverket a/s um
tækniaðstoð og kaup á tækjum,
sölusamningur við sama aðila
um markaðsmál kisiljárnverk-
smiðjunnar, viðauki við raf-
magnssamning við Landsvirkj-
un, lóðarleigusamningur við
rikissjóö og hafnarsamningur
við Hafnarsjóð Grundartanga-
hafnar.
A aðalfundinum voru Járn-
blendifélaginu settar nýjar
samþykktir, og eru þær óbreytt-
ar i aðalatriðum frá fyrri sam-
þykktum að öðru en þvi, sem
leiðir af skiptunum á samstarfs-
aöila rikisins i félaginu.
A aðalfundinum var dr. Gunn-
ar Sigurðsson, Garðabæ, endur-
kjörinn sem stjórnarformaður
félagsins. Varamaður hans og
varaformaður var kjörinn
Hjörtur Torfason, hæstaréttar-
lögmaður og mun hann gegna
formannsstörfum fyrst um sinn
i forföllum stjórnarformanns.
Aðrir aðalmenn i stjórn af hálfu
rikisins voru og endurkjörnir,
þeir Eggert G. Þorsteinsson,
alþingismaður, Reykjavik, dr.
Guðmundur Guðmundsson,
verkfræðingur, Akranesi, og
Jósef H. Þorgeirsson, lögfræð-
ingur, Akranesi. Varamenn
þeirra eru Helgi G. Þórðarson,
sveitarstjóri, Borgarnesi, og
Hörður Pálsson, bæjarfulltrúi,
Akranesi.