Tíminn - 14.05.1977, Blaðsíða 27

Tíminn - 14.05.1977, Blaðsíða 27
Laugardagur 14. mai 1977 27 — The Pretender kom þarna fyrir segulböndunum minum og öðru tilheyrandi, eins og pianó bassa og trommum. Það var i rauninni Dave Lindley, sem átti upptökin að þess öllu. Hann talaði stöðugt um, að gaman væri að loka sig inni i einhverju yfirgefnu vöruhúsnæði, og koma ekki út svo vikum skipti. 1 rauninni koma upp i mönnum hálf skritin tilfinning ef þeir héngu lengi þarna inni. Vill eyða meiri tima með syni sinum ZZ: Það leið langt timabil á milli ,,Late for the sky” og „The pretender”, eða um tvö ár. Stafar þetta af þvi að þú ert frekar afkastalitill lagasmiður, eða tek- urðu þessu bara rólega? JB: Allar þessar athugasemdir má segja að séu réttar. Ég er ekki afkastamikill og mér liggur e'kk- ert sérstaklega mikið á. Ég hef einnig ýmislegt annað að gera en að hugsa um tónlistina. Arinu 1975 eyddi ég að mestu leyti með fjölskyldu minni. Við ferðuðumst um Frakkland, Italiu og Marokko, en þaðan fórum við svo til Hawaii — mig langaði að vera með þeim. Ég veit að ég eyði í mörgum til- fellum meiri tima við sérhvert lag heldur en aðrir tónlistar- menn, en ég hef öðrum hnöppum að hneppa, og þá kannski sérstak- lega nú. Ég hef hugsað mér að eyða meiri tima með syni mlnum — mig hefur ávallt langað til þess, einnig áður en eiginkona min lézt. A meðan hann átti tvö foreldri var þetta allt auðveldara, en nú á hann aðeins eitt, þannig að lif mitt felur i sér fleiri þýðingarmikla eiginleika. — en ég starfa aö tónlistinni eins og áhugi minn segir til um. ZZ: Segðu mér hvaða tilfinning kemur hjá þér, þegar þú berð sjálfan þig saman við einhvern á við Elton John, sem afkastar ótrúlega miklu? JB: Þetta er fyrir mér ekki svo mikilvægt, þó svo að sumir gagn- rýnendur séu með svona saman- burð. Ég á við með þessu að þeir gefa hænunum hormóna, svo að þær verpi betur — þeir hafa ljósin á allan sólarhringinn, og dæla i þær allskonar lyfjum svo að þær gefi meira af sér. Þaö sama hefur verið reynt við lagasmiði. Ég hef unnið allt þetta ár. Fyrst var ég á hljómleikaferðalagi, siðan tók við plata Warrens, og loks tók ég að hljóðrita mina eig- in. ZZ: Plata Wa. "ons Zevons er sú fyrsta sem þú stjórnar upptöku á. Hefuraldrei vaknaðáhugihjá þér að starfa að sliku fyrir einhvern annan? JB: Ég hafði i hyggju að stjórna upptöku á plötu Jack Tempchins. En það verkefni kom upp á sama tima og plata Zevons. Mig minnir að Glen Frey hafi einnig haft áhuga á að stjórna upptökunni hjá Jack Tempchin, en skort tima. Jack stofnaði nú hljóm- sveit, sem hann nefndi The Funky Kings. Þeir hljóörituöu eina plötu fyrir Arista. Þeir eru allir hálf skeggjaðir, ganga um i sjúsk- uðum fötum, og haltra um likt og mörgæsir. Sannkallaðir Funky Kings... og verulega góðir. Mér skilst á öllu, að þeir eigi erfitt með að koma plötunum i verzlan- ir sökum þess að albúmið er allt þakið hljómsveitum á borð við Harold Melvin and the Blue Notes, þannig að fólk á i erfiöleik- um með að finna plötuna i rekk- um ljómplötuverzlana. ZZ: Eru það einhverjir fleiri sem þú hefur áhuga á að vinna með? JB: Nei, ég hef i rauninni ekki fundið fleiri. Ég held áfram aö stjórna upptökum fyrir Warren, sem er mjög skemmtilegt. Hann er góður lagasmiður... Ég á auðvelt með að vinna mig i að vinna að hans tónlist. ZZ: Finnst þér þú hafa lært mikið við gerð þessarar plötu? JB: Vissulega! Þetta er i fyrsta skipti er ég starfa sem upp- tökustjóri — vegna þess að þú getur ekki i rauninni starfað aö eigin plötu og stjórnað upptöku hennar samtimis. Ég hef aldrei tekið eftir þvi hvað upptökustjóri gerir fyrr en ég reyndi það sjálf- ur, sem um leið ýtti undir það að ég fékk mér annan fyrir mina plötu. Þegar ég var i stúdióinu með Warren, sat ég allan timann inni i upptökuklefanum, þar til eitt kvöid, að ég ákvað að spila i nokkrum lögum plötunnar. Landau stjórnaði ZZ: Hvernig kom það til að Jon Landau stjórnaði upptöku á þinni plötu? JB: Ég hitti hann fyrst fyrir all- mörgum árum. Ég hef t.d. oft hitt hann á konsertum og talað við hann, þetta þróaðist siðan upp I ágætis vinskap. Landau var upp- tökustjóri áður en hann gerðist rithöfundur. 1 rauninni orsökuðu veikindi hans þaðað hann varð að gefa hljómplötuupptökuna upp á bátinn. Landau gekkst undir mjög alvarlega magaaðgerö, sem heppnaðist mjög vel og gerði hon- um kleift að komast aftur i hamborgarana og næturlifið. ZZ: Hefurðu heyrt einhverjar af þeim plötum sem Landau stjórn- aði upptöku á hér áður, — MC5, Livingstone Taylor eða Springsteen t.d.? JB: Vissulega! Landau er einn af þessum fáu, sem hefur þann eiginleika að geta hlustað á tján- ingar fólks. Þetta er eitthvaö það jákvæöasta i fari upptökustjórn- anda. Hvaða afstöðu svo sem hann tekurtil þess sem þú segir. Þanriig byggjast upp rökvisar umræður. Við Landau fórum t.d. i gegnum allt sem ég hafði áður sent frá mér. ZZ: Mig undrar aö tónlistargagn- rýnendur stigi ekki einu skrefi lengra og stjórni upptökum á plötum... JB: Það kæmi mér ekki á óvart! Alla vega kom ég ekki til óts við Landau sem blaöamann heldur sem upptökustjóra. Syng betur þegar ég spila ekki ZZ: Þegar þú hafðir nú fengið upptökustjórnanda sem þú trevstir, hvers vegna spilar þú þá varJa nokkuð á plötunni sjálfur? JB: Staðreyndin er sú, að ég syng betur þegar ég spila ekki, og ég spila aftur á móti betur þegar ég syng ekki... Þetta var einungis eitt af þvi sem við uppgötvuöum. ZZ: Þegar þið John Landau áttuö þessar miklu umræður fyrir upp- tökuna, hafðirhu þá eitthvað áþreifanlegt til að sýna honuro? JB: Svona sitthvað. Hluta úr titil- lagi plötunnar „The pretender” Ég hafði fullmótað megin hug- myndina i sambandi við það lag. Það var mikil spenna og æsingur þegar ég spilaöi fyrir hann lagið. Aftur á móti reyndi Landau að fá mig til að endursemja annað lag, vegna þess einfaldlega að hann skildi ekki hvað ég var að gera eða tjá. Þessar umræður áttu sér stað um lagið „Daddy’s tune” sem er i tveimur hlutum. Landau vildi láta mig endursemja seinni hluta lagsins. Þaö var ekki fyrr en ég hafði lokið við að semja textann, að Landau skynjaði lag- ið. ZZ: Þannig að raunverulega hafðir þú enn neitunarvaldið um hvað skildi gera? JB: Ég hef trú á þvi að lista- maðurinn geri það alltaf. Staöan getur þó breytzt þegar upptöku- stjórinn er ráðinn fyrir hönd út- gáfufyrirtækisins. Þetta var ein ástæðan fyrir þvi, jafnvel mörg- um árum áður en ég hljóðritaöi mina fyrstu plötu, að ég ákvaö að vinna ekki með upptökustjórn- anda. Þegar ég lýsti þvi yfir að ég hefði ekki i hyggju að fá mér upptökustjórnanda, töldu vinir minir mig brjálaðan, en ég sagði, „Sjáið þið til, ég er enn list'a- maðurinn, og min skoöun ræður enn úrslitum”. Upptökustjórn- andinn er likt og ráðgjafi. Hann er sá sem hjálpar. Samdi lag með tengda- móður sinni ZZ: „Here come those tears again” er óvenjulegt að þvi leyti til, að þetta er i fyrsta skipti sem þú semur lag með öðrum á plöt- unum þinum, siðan „Take it easy” á „For everyman”, sem Glen Frey var skrifaður fyrir auk þin. Nancy Farnsworth, er hún ekki tengdamóðir þin? JB: Jú, ég sat við pianóiö dag einn, þegar hún kom til min, krot- aði niður nokkrar linur og sagði: „Jæja semdu nú lag viö þetta”. Ég gerði það svo. Hún hefur dundað við að semja áður. 1 raun- inni átti hún nokkur „hit” lög á áratugnum fyrir 1950, en það var fyrir minn tfma. Hún vonaðist til að þetta yrði Country söngur. Don Henley var sömu skoðunar. Þannig að einhvern tima sett- umst við niður og sungum lagiö á þann hátt. ZZ: að lokum, Hvernig valdiröu liðsmenn i þá hljómsveit sem starfar með þér nú? Ég spyr að þessu vegna þess að — að Dave Lindley undanskildum leikur enginn af þeim meö þér á plötunni seni er nokkuð óvenjulegt. JB: Já, kannski. Þeir voru bara lausir og gátu slegizt i hópinn. Lindley gekk tilliðs viö okkur á fyrsta degi hljómleikaferöarinn- ar um Bandarikin. Þegar viö vor- um aö athuga hljóminn, og stilla hljóðfærin. Hann var nýkominn úr Evrópuferðinni með Crosby og Nash, algjörlega tækjalaus. Það er hans mikla hugrekki, sem hef- ur valdið þvi, að hann er ekki algjörlega uppurinn. 1 næsta þætti verður hljómplötugagnrýni um ,,The Pretender” 4 => Viö getum 1 afgreitt bílana STRAX á mjög hagstæöu verði og með ábyrgð' upp í 20.000 km akstur Verð kr. 2.100.010 Digranesprestakall Aðalfundur Digranesprestakalls verður i Safnaðarheimilinu, Bjarnhólasiig 26, mánudaginn 23. þ.m. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Kosið i sóknarnefnd og fl. Kaffiveitingar. Safnaðaríoik hvatt tii að sækja fundinn. Stjórnin <VEB> 'acrobat' Lyftutengd 4ra hjóla rakstrar og snúningsvél 5*. • s- Þúsundir íslenzkra bænda þekkja Vicon acrobat vélina. Hún er einföld i gerð og lip- ur i notkun. Vinnslugæði frábær og rakar þar að auki frá girðingum og skurðkönt- um. Vinnslubreidd 2 m. Verð ca. krr 112.000. Nánari upplýsingar hjá sölumanni. Ghbusi LÁGMCLI 5. SlMI 81555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.