Tíminn - 14.05.1977, Side 31

Tíminn - 14.05.1977, Side 31
Laugardagur 14. mal 1977 31 í upphafii skal! m Unglingalið Kefla- vikur kemur á óvart Keflvíkingar hafa komið mest á óvart í byrjun Islands- mótsins í knattspyrnu. Þeir tef la nú fram mjög ungu liði — aðeins tveir leikmenn, sem léku með „Hooley-liðinu" fræga, eru nú eftir, þeir ólafur Júliusson og Gisli Torfa- son. Þessir snjöllu landsliðsmenn njóta sin vel innan um hina ungu leikmenn, semf lestir eru á aldrinum 17-19 ára. — á sama tíma og íslands meistarar Vals eru eins og svefngenglar ★ Skagamenn, undir stjórn Kirby, eru komnir í vígamód — verður háð i Prag, þar sem Evrópumeistaramótið í fimleikum hófst i gærkvöldi NELLI KIM... sést hér I glæsilegu stökki á slá á Olympluleikunum i Montreal Evrópumeistaramótiö I fim- icikum hófst i gærkvöldi i Tékkó slóvakiu. Allir fremstu fimleika- menn Evrópu verða I sviðsljósinu i Prag og verður keppnin tví mælalaust glfurlega hörð. Flestir blða spenntir eftir viðureign Nadia Comaneci, hinnar frábæru fimleiksstjörnu frá Rúmenlu og Nelli Kim frá Rússlandi, en þær háðu harða keppni á Olympiu- leikunum i Montreal s.I. sumar — Hver er hættulegasti keppi- nautur þinn á Evrópumeistara- mótinu? Þessi spurning var lögð nær samtimis fyrir fimleikastjörn- fimleikastjörnurnar Nadia Comaneci og Nelli Kim. Og svörin voru: — Nelli Kim. — Nadia Comaneci. Ekkert er eðlilegra en einmitt þessi svör, það eru einmitt þessar tvær iþróttakonur sem. eru fremstar i flokki fimleikakvenna í heiminum nú. A ÓL-76 I Montreal gekk Comaneci betur en Kim og varð óumdeilanlegur sigurveg- ari. Nú á að halda keppninni á- fram. — Stelpurnar i landsliðinu eru farnar að kalla mig „Kimanelli”" — það hljómar betur á móti Comeneci, og ég er ekkert á móti þvisegirNelli.Samterhenni ekki gefið hvaða viðurnefni sem er. T.d. móðgast hún þegar einhver kallar hana „Járn-Kim”. En gagnvart „Kimanelli” sýnir hún óvenjulegt umburðarlyndi. Nelli verður tvitug i júli. Hún býr i iðnaðarborginni Tsimkent i sovétlýðveldinu Kasakstan og les utanskóla við íþróttaháskólann i Alma-Ata, þótt hún sé alls ekki viss um að framtiðarstarf hennar verði þjálfun. Nelli viðurkennir fúslega að hún hafi mikinn áhuga á tungumálum og stundi ensku- nám af fyllstu alvöru. A EM i Prag verður Nelli Kim fyrirliði sovézka landsliösins I fyrsta sinn. „Mér fannst alltaf eins og ég væri á bak við stein- vegg þegar ég var fyrir aftan þær Turisjevu og Korbut” — segir hún. „Nú er ég númer eitt, en ég er ekkert hrædd við það, ég hef aldrei verið hrædd við ábyrgð”. Sem kunnugt er kom Comaneci fram fyrir skömmu I fyrsta sinn eftir ÓL. Hún tók þátt utan keppni i alþjóðlegu móti í London og varö sigurvegari þar. Nelli segist hafa reynt að hvila sig á fimleikum eftir að hún kom heim frá Mon- treal, en eftir örstuttan tima hafi hún veriö komin á stjá. 1 sam- vinnu við þjálfara sinn Vladimir Bajdin ákvaö hún að flýta sér ekkert enda var það fyrirfram á- kveöið að hún tæki þátt I EM og hún þurfti ekki að taka þátt i neinni keppni áður. I stað þess notuðu þau timann til að endur- nýja „prógrammið” i ró og næöi. Endurnýjunin er aðallega fólgin I þvi að gera æfingarnar flóknari. „Lifið neyöir mann til þess” — segir Nelli andvarpandi. Þetta andvarp er auðskilið. Við sáum 12-15 ára stelpur á æfing- um, og voru þær að keppa um þau sæti sem nýlega losnuðu i lands- liöinu, sæti Ljúdmilu Túrisjevu, Olgu Korbut og Elviru Saadi, sem allar tilkynntu nýlega að þær ætl- uðu að hætta. Nýju stelpurnar t.d. Jelena Davidova, Jelena Mukhina og Stella Zhakharova og Nadjesda Teresjenko, eru sann- kallaðir ofurhugar og dirfska þeirra fær hárin til að risa á höfði manns. Ólympiufararnir Svetl- ana Grosdova og Maria Filatova Framhald á bls. 11 árs fjarveru i 1. deildarkeppninni. Það er greinilegt að Eyja- Framhald á bls. 11 Knatt- spyrna — um helgina LAUGARDAGUR: 1. Deild: Keflavik-Valur...........kl. 2 Fram-Þór Melavöllur .......2 Akranes-Breiðablik ........3 2. Deild: Völsungur-Þróttur Nes......3 Haukar-Reynir Ars..........4 SUNNUDAGUR: 1. Deild: FH-Vestmannaey.............2 MANUDAGUR: 1. Deild: KR-Vikingur, Melavöllur....8 Hinir ungu leikmenn Keflvik- inga, undir stjórn Hólmberts Friðjónssonar, hafa sýnt gifur- lega leikgleði og baráttu i leikjum sinum, og hefur það haft mikið að segja. Þrátt fyrir góða byrjun, er ljóst að Keflvikingar eiga þó nokkuð eftir i land, til að geta flaggað fullmótuðu liði. — Reynslan er ekki nóg hjá leik- mönnum þeirra, til þess. En eitt er vist, að efniviðurinn er fyrir hendi og þvi er framtiðin björt hjá Keflvikingum Hættulegt tímabil hjá Val A sama tima og leikmenn Keflavikur sýna leikgleði og bar- áttu, koma leikmenn íslands meistara Vals á óvart með getu- leysi sinu. Þeir eru langt frá þvi að vera eins lifandi og sl. keppnis- timabil þegar allt lék i lyndi. Maður hefur það á tilfinningunni, að nú sé runnið upp hættulegt timabil hjá Valsmönnum — og undirritaður er hræddur um, að það sé frekar sálfræðilegt, en knattspyrnulegt. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, sem hefur fylgzt með Valsliðinu að undan- förnu, að forráðamenn og þjálfari liðsins ætlast til mikils af leik- mönnum — og i fljótu bragði virð- ist vera búið að ala upp of mikið sjálfsöryggi hjá þeim. Leikmenn Vals, sem flestir eru mjög ungir, halda að þeir séu al- veg ómissandi, enda fá þeir aldrei hvild, þótt þeir eigi mjög slaka leiki. Leikmenn Vals vita, að þeir eru sjálfsskipaðir i liðið — það eitt hefur mjög slæm áhrif, þvi að þegar ungir leikmenn þurfa ekki lengur að berjast fyrir sætum sin- um i liði, þá er búið að bjóða hætt- unni heim. Valsmenn hafa orðið fyrir áfalli frá sl. keppnistimabili — þeir hafa misst þá Hermann Gunnars- son, Kristinn Björnsson og Vil- hjálm Kjartansson. Þessir leik- menn hafa skilið eftir sig stór skörð, sem ekki verða fyllt á næstunni. Ef þessir þrir leikmenn hefðu haldið áfram að leika með Val, þá hefði komið sú samkeppni um stöður i liðinu, sem greinilega þarf að vera. Það er ekki hægt að aískrifa Valsmenn, þótt þeir hafi byrjað illa. Valsmenn eiga yfir góðum knattspyrnumönnum að ráða, sem vitað er að geta gert góða hluti þegar þeir komast á skrið. Nú er spurningin — hvenær fara þeir i gang? Það er greinilegt, að nú er hættulegt timabil hjá Valsmönn- um. — Þeir hafa misst lvkilmenn frá sl. árf og þar með hefur þrengzt um hópinn. Þvi má ekki bera mikið útaf — meiðsli eða annað til að hættuástand skapist i hinni hörðu keppni, sem fram- undan er. Skagamenn í vigamóði AKURNESINGAR — hafa mætt ákveðnir til leiks, undir stjórn hins snjalla þjálfara George Kirby, sem gerði þá að Islandsmeisturum 1974 og 1975. Kirby hefur nú byrjað, þar sem frá var horfið. — Hann hef ur komið á festu hjá hinum ungu leikmönnum Skagamanna, sem hann ól upp þegar hann kom hing- Þróttarar sigrudu Þróttarar unnu sigur (1:0) yfir Armenningum i fyrsta leik 2. deildarkeppninnar i knattspyrnu á Melávellinum sl. fimmtudags- kvöid. Páll Ólafsson skoraði mark Þróttar. Einvígi Kim og Comaneci að fyrst. Skagamenn eiga á að skipa mjög skemmtilegu liði, skipað ungum léttleikandi leik- mönnum — að mestu leyti, en með þeim leika eldri leikmenn, sem skapa vissa kjölfestu — það eru þeir Jón Gunnlaugsson, hinn baráttuglaði fyrirliði, Jón Alfreðsson og Björn Lárusson. Þótt leikmenn Akurnesinga séu ungiraðárum, þá hafa þeir hlotið miklu meiri reynslu heldur en t.d. hinir ungu leikmenn Vals — og sú reynsla á eftir að koma þeim að miklu gagni i sumar. Skagamenn hafa þá fengið góðan liðsauka, þar sem eru þeir Krist- inn Björnsson, fyrrum landsliðs maður úr Val, og Jón Þorbjörns- son, markvörður úr Þrótti. Krist- inn fyllir upp i það skarð, sem Teitur Þórðarson hefur skilið eft- ir sig og Jón fyllir upp i það skarð, sem Davíð Kristjánsson skildi eftir. Skagamenn hafa synt það i byrjun tslandsmótsins, að þeir eiga eftir að láta mikið að sér kveða i sumar — og það verður gaman að fylgjast með þeim. Framarar rakna úr roti! Framarar komu á óvart i fyrsta leik sinum — gegn Vestmannaey- ingum. Þeir voru afspyrnulélegir og höfðu litinn áhuga á þvi, sem þeir voru að gera, Þetta var einn- ig upp á teningnum i fyrri hálfleik gegn FH-ingum i Hafnarfirði á miðvikudagskvöldið. En þegar þeir mættu til leiks eftir leikhlé, sýndu þeir gamla takta — börðust og tóku leikinn algjörlega i sinar hendur og unnu 3:0. Með sama áframhaldi verða Framarar með i baráttunni um meistaratitiiinn i ár, eins og undanfarin ár. Þeir hafa orðið fyrir blóðtöku, þar sem þrir af beztu leikmönnunum hafa ekki getað leikið með að undan- förnu — þeir Jón Pétursson, As- geir Eliasson og Pétur Ormslev, sem eru allir meiddir. Þegar þessir leikmenn verða komnir i gagnið, verður Fram-liðið aftur sterkt. Líflegir Eyjamenn VESTM ANN AEYINGAR — hafa mætt liflegir til leiks, eftir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.