Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 16
18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR16
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
Sandholt
Bakarí
��������������� ������������������� �
���������������
kpkpkpkpkpkpkpkpkpkpkpkpkpkp
kpkpkpkpkpkpkpkpkpkpkpkpkpkp
������������������������������� �����������
�������������������������������������
Að flytja vald til fólksins
Frjáls viðskipti
Stjórnarandstæðingar og dómsmálaráðherra tókust óvenju harkalega á
í umræðum fyrir helgina um vinnubrögð varðandi ákvæði í frumvarps-
drögum um vændi þar sem fólki verður frjálst að bjóða eigin blíðu til
sölu ef svo má segja. Ekki þarf að taka fram að mansal, kynlífsþrælkun,
barnavændi, verslun og miðlun með kynlífsþjónustu er bönnuð og verður
svo áfram. En frumvarpið leyfir einstaklingi að selja kynlífsþjónustu sér til
framfærslu. Þingmennirnir Kolbrún Halldórsdóttir og
Ágúst Ólafur Ágústsson veittust harkalega að Birni
Bjarnasyni dómsmálaráðherra, meðal annars á
síðum Fréttablaðsins. Þau sætu í nefnd á hans
vegum um vændi og væru í þann mund að
skila niðurstöðum, en þá kæmi ráðherrann
bara með frumvarpsdrög frá lagaprófessor
en tefði málið á sama tíma í nefnd enda
sjónarmið hans í minnihluta. Með svona
manni er ekki hægt að vinna sögðu
þau. Björn mótmælti því að hann
hefði vísvitandi tafið málið og kvaðst
ætla að láta rannsaka seinagang
nefndarinnar.
... það sem sannara reynist
Og hvað er nú rétt í málinu? Í nefnd Björns sátu 6 manns. Þrír mæla
með sænsku leiðinni sem felst í því að gera kaup á vændi refsivert. Auk
Kolbrúnar og Ágústs Ólafs styður Jónína Bjartmarz þessa leið. Á móti eru
Ásta Möller, Gunnar Örlygsson og Ragna Árnadóttir, fulltrúi dómsmála-
ráðherra og formaður nefndarinnar. Ásta bendir á að þannig falli sænska
leiðin á jöfnu. Hún og Gunnar hafi skilað sameiginlegri afstöðu og Ragna
verið þeim samsinna um að leggjast gegn sænsku leiðinni.
Jónína, Ágúst Ólafur og Kolbrún skiluðu sínum niður-
stöðum 14. febrúar síðastliðinn, en þá hafði álit hinna
legið fyrir um skeið.
Það er kannski skiljanlegt að dómsmálaráherra vilji
láta rannsaka seinaganginn ef nefndin átti að skila af
sér fyrir réttu ári samkvæmt skipunarbréfi. Reyndar
fékk nefndin einhvern frest sem allir sættust á.
Ásta segir að nefndarmenn hafi alla tíð
vitað að Ragnheiði Bragadóttur prófessor
hafi verið falið að vinna frumvarpsdrög,
meðal annars um vændisákvæðin og
engar athugasemdir hafi verið gerðar
við það verklag.
Úr bakherberginu...
Þingmenn létu yfirleitt vel
af framtaki Árna Magnús-
sonar félagsmálaráðherra
þegar hann fylgdi úr hlaði
nýrri skýrslu um sveit-
arstjórnarmál á Alþingi
síðastliðinn fimmtudag.
Greinargerð af þessum toga
er ný af nálinni og hefur
fyrst og síðast að geyma
margvíslegar upplýsingar
um þróun sveitarfélaga og
tölulegar upplýsingar um
þau. En undir yfirborðinu
krauma ágreiningsmál um
byggðastefnu.
Í sveitarstjórnarkosningunum
árið 2002 voru boðnir fram listar
í 66 sveitarfélögum. Í þeim voru
alls 2.714 einstaklingar í framboði
á 182 listum. Tæplega 1 prósent
þjóðarinnar var því í framboði í
þessum 66 sveitarfélögum, eða
um 1,4 prósent af þeim sem voru
á kjörskrá.
Kosningaþátttaka hér á landi
er almennt mjög góð og mikill
áhugi er á stjórnmálum, sagði
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra í ræðu sinni.
Hlutur kvenna óviðunandi
„En það er enn svo, að hlutföll
kynjanna eru ekki jöfn í sveitar-
stjórnum. Konur eru 32 prósent
allra sveitarstjórnarmanna í land-
inu, sem er óviðunandi. Myndin
er þó ekki svo einföld því stærð
sveitarfélaga og landfræðileg lega
þeirra virðist hafa áhrif á kynja-
hlutföll í sveitarstjórnum,“ sagði
félagsmálaráðherra.
Í sveitarfélögum með fleiri en
1.000 íbúa eru konur um 35 pró-
sent fulltrúa í sveitarstjórnum.
Hlutur þeirra er slakari í minni
sveitarfélögum eða 29 prósent.
Hlutfallið er hæst á höfuðborg-
arsvæðinu þar sem konur eru 43
prósent kjörinna fulltrúa.
„Hlutfall kvenna í fjölmenn-
ustu sveitarfélögum er þannig
nærri 50 prósentum hærra en
í þeim fámennustu. Nýafstaðin
prófkjör benda vissulega til þess
að við þurfum að halda vel vöku
okkar hver sem niðurstaðan verð-
ur hvað varðar endanlega lista eða
úrslit sveitarstjórnarkosninga,“
sagði Árni.
Hugum að fjölmenninu
Þegar íbúum fækkar þurfa færri
skattgreiðendur en áður að standa
undir grunnkostnaði við starfsemi
sveitarfélaganna. Vítahringur
fjárhagskreppu og fólksfækkunar
getur myndast sem sveitarfélög-
in eiga erfitt með að komast út
úr. „Íbúafækkun getur í sumum
tilvikum skapað andrúmsloft
örvæntingar og vonleysis sem ýtir
sveitarstjórnum út á ystu nöf þess
sem talist getur ábyrg fjármála-
stjórn. Málefni sveitarfélaga og
byggðamál eru þannig augljóslega
nátengd,“ sagði félagsmálaráð-
herra. Honum þótti reyndar sem
landsmenn hefðu til þessa verið of
uppteknir af vanda fámennisins
og tímabært væri að gefa fjöldan-
um meiri gaum.
Þarna er ef til vill kjarni máls-
ins og um leið vandi sveitarfé-
laganna frammi fyrir löggjafar-
og framkvæmdavaldinu. Hvar
í ráðuneytum er unnt að vista
með heildstæðum hætti öll mál-
efni sem snerta sveitarfélög og
byggðamál?
Fækkað um 100
Með fækkun og stækkun sveitarfé-
laganna úr 204 árið 1990 í 104 árið
2005 eru þau óneitanlega betur en
áður í stakk búin til þess að taka
við stórum verkefnum sem snúa
beint að þjónustu við íbúa. Nær
helmingi tekna sveitarfélaganna,
um 50 milljörðum króna, er varið
í rekstur grunnskólanna og tengda
starfsemi.
Með því að færa enn fleiri
verkefni til sveitarfélaganna er
talið að bæta megi enn nærþjón-
ustu við borgara þessa lands. En
það er helst á færi stóru og stönd-
ugu sveitarfélaganna, ekki síst
á suðvesturhorni landsins. Og
mun aukin misskipting og aukinn
aðstöðumunur verða niðurstaðan
ef sú leið verður farin?
Um þetta sagði félagsmála-
ráðherra í ræðu sinni: „Það er
erfiðleikum bundið að ákvarða
kjörstærð sveitarfélaga og lík-
lega er ekkert einhlítt svar við
þeirri spurningu. Sum verkefni
eru þess eðlis að fámenn sveitar-
félög geta sinnt þeim vel, meðan
önnur krefjast viss fólksfjölda svo
sem rekstur menntastofnana og
heilsugæslu. Lágmarkskrafa hlýt-
ur að vera að sveitarfélögin séu
nægilega fjölmenn til að geta sjálf
sinnt helstu lögbundnu verkefnum
sínum og nýtt þannig það svigrúm
sem löggjafinn hefur veitt þeim í
krafti sjálfsstjórnarréttarins.
Þróunin í sameiningarmálum
sveitarfélaga gefur vísbendingar
um að innan fárra ára verði flest
sveitarfélög á landinu með fleiri
en 1.000 íbúa. Í dag telja um 70
prósent sveitarfélaga færri en
1.000 íbúa, en í þeim búa aðeins
átta prósent þjóðarinnar.“
Verkefnin nær kjósendum
Einar Már Sigurðsson þingmaður
Samfylkingarinnar hvatti félags-
málaráðherra til dáða í umræð-
unum. Einar benti á að stækkun
og sameining sveitarfélaga hefði
orðið í hrinum. Andstaðan við
sameiningu hefði oft bognað með
auknum verkefnum. Því ekki að
flytja vísvitandi ný verkefni til
þeirra með það sérstaklega í huga
að framkalla vilja til frekari sam-
einingar, spurði Einar Már.
Þingflokkur Samfylkingarinn-
ar ályktaði reyndar um sveitar-
stjórnarmál fyrir helgina og telur
að efling sveitarfélaga sé besta
byggðastefnan. Lögð er áhersla á
að gera landið að einu kjördæmi.
Dæmi um viðbótarverkefni sem
Samfylkingin telur að eigi heima
hjá öflugri og sjálfstæðari sveit-
arstjórnum eru framhaldsskólar,
rekstur flugvalla, heilsugæsla og
hluti af starfsemi Vegagerðar-
innar.
johannh@frettabladid.is
Kynjahlutfall í sveitarstjórn eftir landshlutum
28%
37%
43%
26%
24%
32%
35%
25%
N
O
R
Ð
U
R
LA
N
D
V
VE
ST
FI
R
Ð
IR
H
Ö
FU
Ð
B
O
R
G
A
R
SV
Æ
Ð
IÐ
VE
ST
U
R
LA
N
D
SU
Ð
U
R
N
ES
SU
Ð
U
R
LA
N
D
N
O
R
Ð
U
R
LA
N
D
E
A
U
ST
U
R
LA
N
D
Síðustu fundir Alþingis verða í byrjun maí eftir
tíu til ellefu vikur. Páskaleyfi styttir starfstímann
til löggjafar um viku. Ruðningsáhrif stjórnar-
frumvarpa frá framkvæmdavaldinu verða á
þessum níu síðustu vikum æ meira áberandi.
Önnur mál fá minni tíma í þingsölum.
Ríkisstjórnin mun ekki heldur taka mjög afdrifa-
ríkar ákvarðanir um að láta þingið afgreiða
lagafrumvörp sem geta orðið stjórnarflokkun-
um mótdrægar í sveitarstjórnarkosningunum
þremur vikum eftir síðasta þingfund. Þvert á
móti komast ýmis vinsæl mál æ meira í sviðs-
ljósið eftir því sem nær dregur kosningum.
Þetta er alkunna og þarf ekkert að koma á óvart. Borgarstjórnarmeirihlutinn
mun klippa borða sem og bæjarstjórnameirihlutar í stærstu sveitarfélögun-
um um land allt. Svona er þetta og svona verður þetta.
Sundabrautarmálið, tvöföldun Hvalfjarðarganga, tvíbreiður vegur milli
Reykjavíkur og Selfoss, aðgerðir til að sporna við flótta fyrirtækja úr landi,
mótun tillagna um lækkun matvöruverðs, frestun hlutafélagavæðingar Ríkis-
útvarpsins og fjölmiðlafrumvarps, aukin áhersla á umhverfismál, tímamóta-
ákvörðun um forgangsröðun í stóriðjumálum, stundarfriður stjórnarflokk-
anna um Íbúðalánasjóð, áfangaskýrsla stjórnvalda um Evrópusambandsmál,
friður saminn við kennara um styttingu grunn- og/eða framhaldsskólans,
eru allt mál sem spámenn gætu veðjað á að verði í sviðsljósinu á næstu 10
til 12 vikum að frumkvæði stjórnarflokkanna. Bæta má við lista með hug-
myndum um aukin umsvif sveitarfélaga á kostnað ríkisumsvifa og umbætur
í málefnum aldraðra og öryrkja.
Reyndar er það ekki víst að framvindan næstu vikurnar verði með þess-
um hætti. Ekki vegna þess að stjórnmálamenn vilji ekki skapa sér og sínum
góða vígstöðu heldur vegna þess að þeir ráða ekki ferðinni eins og áður.
Stjórnmálaumræðan er opnari en áður. Hún lýtur um leið öðrum lög-
málum þar sem ný samskiptaform koma meira við sögu en nokkurn grunar
í krafti netvæðingar og fjölmiðlunar.
Atkvæðakaup eru ef til vill ekki eins augljós kostur og áður var.
VIKA Í PÓLITÍK
JÓHANN HAUKSSON
Atkvæðakaup
og kosningar
„Auk hennar hef ég ákveðið að kanna viðhorf sveitar-
stjórnarmanna og alþingismanna til sveitarstjórnar-
mála með sérstakri rannsókn sem unnin verður á næst-
unni í samstarfi við Viðskiptaháskólann á Bifröst.“
Árni Magnússon félagsmálaráðherra í ræðu um sveit-
arstjórnarmál á Alþingi siðastliðinn fimmtudag.
„Vegna þessara ummæla þingmannanna mun ég óska
eftir sérstakri skýrslu um það hvers vegna nefndin var
svona lengi að ljúka starfi sínu...“
Björn Bjarnason í Fréttablaðinu 17. febrúar um
ummæli Kolbrúnar Halldórsdóttur og Ágústs Ólafs
Ágústssonar um starf nefndar sem fjallaði um vændi.
ÞÓRSHÖFN Á LANGANESI Stærðarhagkvæmnin gildir líka í þjónustu sveitarfélaga.