Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 24
Ég náði fótfestu þegar ég fékk næði til að eyða tíma í sveitinni, stunda útreiðar og horfa á trén í vetrardýrðinni,“ segir hin geislandi fagra Unnur Birna sem í sjötíu daga hefur borið titilinn Ungfrú heimur. „Titillinn segir að ég sé fegurst kvenna í heimi hér, en maður tekur því auðvitað með fyrirvara. Það er enginn fullkomnlega ánægður með sjálfan sig og ég er þar engin undantekning, en vissulega alveg sátt,“ segir hún einlæg og brosir sínu ómótstæðilega brosi. „Fegurð er afstæð og vafasamt að keppa í fegurð. Mér var vissu- lega brugðið þegar ég stóð uppi sem sigurvegari og nokkuð viss að ástæðan var ekki sú að ég hafi útlitslega verið sú fegurst kepp- endanna,“ segir Unnur Birna sem skrifar sigurinn á innri útgeislun og tilgerðarleysi. „Ég er sviðsvön, jarðbundin og alltaf ég sjálf, en vildi alls ekki setja upp leikrit því hefði það farið með mig lengra hefði ég þurft að halda áfram með leikritið út í eitt. Ég er ósköp venjuleg stelpa og lík- ist ekkert fegurðardrottningum Suður-Ameríku sem mættar voru með tilbúin brjóst, nef og varir. Þær líta út eins og Barbídúkkur en þar er ekki um náttúrulega fegurð að ræða, auk þess sem þær skortir tengsl við raunveruleikann. Ég held að fólk hafi fundið meiri tengsl við mig sem lifandi manneskju sem stundar hestamennsku, skíði, dans- kennslu, lögreglustörf og lögfræði- nám, en ekki einfalda ímynd sem lifir eingöngu fyrir yfirborðslegan heim fegurðarinnar.“ Titlar og tilfinningaflækjur Kóróna Unnar Birnu er alsett bláum kóröllum, tærum kristölum og skínandi demöntum, en sami gullsmiður og smíðar kórónur Elísabetar Englandsdrottningar smíðaði þetta dýrmæta höfuð- djásn fyrir aldarfjórðungi síðan. „Ég hefði líklega aldrei farið út í fegurðarsamkeppnir nema fyrir tilstilli ömmu minnar Jórunnar Karlsdóttur sem saumaði kjóla á íslenskar fegurðardrottning- ar í þrjátíu ár. Ég var mikið hjá ömmu sem barn og fékk að sitja inni í saumaherbergi þegar þær mátuðu kjólana. Sjálfsagt hefur það haft áhrif í undirmeðvitund- inni en þegar ég var spurð af fjöl- miðlafólki hvort ég ætlaði ekki að feta í fótspor mömmu sagði ég alltaf hiklaust nei,“ segir Unnur Birna og brosir að minningunni, en móðir hennar Unnur Steinsson varð Ungfrú Ísland árið 1983 og lenti í 4. sæti Miss World sama ár. „Eflaust hefur nei-ið stafað af sjálfstæðisþörf og stælum, en amma þráði að sjá litla engilinn feta þessa braut. Svo þegar amma fær heilablóðfall og liggur bana- leguna á sjúkrahúsi þar sem hún lést 11. janúar 2005 tók ég ákvörð- un um að láta hinstu ósk hennar rætast. Sagði henni að hún yrði að gjöra svo vel að láta sér batna svo hún gæti verði með mér í þessu ferli og hún játti því snortin. Sagði að heima væri kjóll sem hún hefði ákveðið að ég ætti að klæðast og heima fann ég topp og efni í pils sem ég klæddist þegar ég vann titilinn Ungfrú Reykjavík,“ segir Unnur Birna sem í kjölfarið hirti flesta fegurðartitla Íslands í kjól- um ömmu sinnar. „Mér fannst skemmtilegast að vinna Ungfrú Reykjavík því hann var fyrir ömmu, en mánuði síðar tók ég þátt í Ungfrú Ísland sem var allt öðruvísi keppni. Þá fann ég mikla pressu að standa mig vel en þegar á úrslitakvöldinu hlóðust á mig allir þessir titlar leið mér alls ekki vel. Auðvitað vissu fyrirtæk- in sem völdu sína stelpu ekki af ráðahag hinna, en mér fannst þetta alls ekki sanngjarnt þegar með mér stóðu tuttugu flottar stelpur. Þegar ég var svo krýnd sem Ung- frú Ísland var eins og kaldhæðni ríkti í salnum og reyndist mikil tilfinningaflækja fyrir mig, en auðvitað var ég um leið alsæl enda mikil keppnismanneskja og þannig séð mjög tapsár,“ segir hún hrein- skilin og broshýr. Drottning án hirðar Unnur Birna er vel kunnug ævin- týrinu um Penelópu prinsessu og 365 kjólana hennar. Segir fleiri en 365 hanga í skápum ömmu sinnar, sem kemur sér sannarlega vel í hlutverki fegurstu konu heims. „Kjólarnir eru misjafnir eins og þeir eru margir, en við mamma höfum breytt og betrumbætt marga þeirra og í einum slík- um vann ég Ungfrú heim,“ segir Unnur Birna sem hefur enga hirð í kringum sig heldur þarf sjálf að hugsa um fatnað, hár og förðun. „Þetta er ævintýri en einnig hörkupúl sem verður ekki endi- lega dans á rósum allan tímann. Á þriðjudag fer ég í tíu daga ferð til Kína og þaðan beint til Banda- ríkjanna þar sem ég verð aðra tíu daga. Ég flýg því hnöttinn endilangan þar sem hópur manns bíður fyrir neðan landganginn og þarf að vera tipp topp á háum hælum þegar ég kem úr flugvél- inni,“ segir Unnur Birna sem við- urkennir að stundum sé álagið strembið. „Starfið á sínar jákvæðu og neikvæðu hliðar. Hið neikvæða er pressan á herðum mér, en hið jákvæða að titillinn snýst ekki alfarið um ytra útlit heldur hvern- ig persóna maður er og hvað maður gerir gott fyrir heiminn,“ segir Unnur Birna sem starfar samhliða eigendum Miss World, þeim Juliu Morley og syni hennar Steven. „Þau ferðast með mér um allan heim og eru mér stoð og stytta en hingað til hef ég dvalið á hótelum þótt mér standi til boða að búa heima hjá þeim. Það getur verið einmanalegt að vera ein á hótel- herbergi, en mikil öryggisgæsla er í kringum mig og rík ástæða þar sem misjafn sauður leynist í mörgu fé sem viljað gæti vinna mér mein.“ Góða stelpan Unnur Birna dvaldi fimm vkur í Kína áður en hún var krýnd Ung- frú heimur þann 10. desember síð- astliðinn. „Þetta var eins og fimm vikna atvinnuviðtal þar sem leitað var að réttu stúlkunni í starfið og fylgst með hverju skrefi og viðbrögðum við ýmsum uppákomum. Hverri grúbbu fylgdu þrjár konur sem skrifuðu leynilega skýrslur um hegðun okkar sem þær skiluðu til dómnefndar,“ segir Unnur Birna sem er orðin þjóðþekkt í Kína og Póllandi. “Annarsstaðar get ég enn gengið um göturnar óáreitt. Börn stoppa mig oft, og í gærkvöldi fór ég sem leynigestur á árshá- tíð Árbæjarskóla, sem er gamli grunnskólinn minn og uppskar klapp og gleðióp barnanna sem gerði mig klökka,“ segir Unnur Birna sem þykir heiður að vera fyrirmynd barna. „Já, ég er góð stelpa og hef það fram yfir margar stúlkur að vera ekki þessi horaða módeltýpa heldur með eðlilegan vöxt. Ég er ekki öfgakennd á neinu sviði, vel ávallt milliveginn, hef gaman af líkamsrækt, útiveru og hollum lífsháttum, auk þess að nýta hæfi- leika mína, njóta lífsins og hafa til að bera heilbrigðan metnað fyrir sjálfa mig,“ segir Unnur Birna sem hafnar því að starfinu fylgi freistingar og yfirdrifinn glamúr. „Allavega hér heima, þótt úti sé farið með mig eins og demant og mér nánast haldið á gullstól. Þetta er mikið lúxuslíf, ég flýg alltaf á fyrsta farrými og gisti í stærstu svítum hótelanna, en einmitt þess vegna er svo gott að koma heim til Íslands, pústa og vera ég sjálf.“ Grátið eftir á Unnur Birna lifir sannkölluðu prinsessulífi, hittir eðalborið fólk og sér það markverðasta í heim- inum. „Erfiðast finnst mér að upp- lifa þennan stóra draum margra stúlkna ein. Ég á því örugglega eftir að velja hvaða staði ég skoða aftur með einhverjum nákomnum þegar ég hef skoðað heiminn ein sem Ungfrú heimur,“ segir hún alvarleg í bragði. „Til þessa hefur mér þótt erf- iðast að heimsækja barnaspítala. Á dögunum fór ég á krabbameins- deild barna í Póllandi íklædd prinsessukjól með kórónu, settist á rúm þeirra, skrifaði á myndir og brosti allan tímann, en þegar út í bíl kom aftur kom ég ekki upp orði. Þótt ég hafi brosað í návist barnanna var mér grátur efst í huga og á slíkum stundum vildi ég geta talað öll tungumál heims- ins til að hughreysta þau. Ég er því staðráðin að læra smávegis í tungumálum þeirra þjóða sem ég mun heimsækja, sem ætti ekki að vera erfitt því mikill tími fer í flug og þá tilvalið að læra,“ segir Unnur Birna sem heldur dagbók til að gleyma ekki ævintýrum daganna sem Ungfrú heimur. „Stundum verður þetta yfir- þyrmandi, en ég geri gott úr öllu á þrjóskunni, frekar en að brotna niður. Þegar ég kom heim frá Kína og í móttökuathöfn í Smáralind þar sem tíu þúsund Íslendingar fögn- uðu með mér var Friðrik Ómar fenginn til að syngja lagið hennar ömmu: My way með Frank Sinatra. Það var óvænt og ég ekki undirbú- in svo ég táraðist og þurfti að snúa mér undan. Þetta var grikkur að gera í beinni útsendingu á NFS en ég náði að halda andlitinu allt þar til ég kom heim og mamma og vinir mínir héldu mér óvænta veislu þar sem þeir stukku fram úr hverju skoti. Þá fór ég að hágráta fyrir allt það sem ég hafði haldið inni í mér, en öllu þessu umstangi fylgir oft mikil geðshræring og spennufall.“ Enginn tími fyrir prinsa Sem Ungfrú Ísland fór Unnur Birna ekki varhluta af gulu press- unni og óvægnu slúðri á forsíðum dægurblaðanna. „Þetta hefur breyst eftir að ég varð Ungfrú heimur því síðan hafa blöðin nánast látið mig í friði. Það er eins og þau beri meiri virðingu fyrir þessum titli og ég get ekki annað en verið þakklát því oft tók verulega á mig þegar bornir voru upp á mig tilhæfulausar sakir. Maður er svo varnarlaus og getur ekkert sagt sér til málsvarnar, auk þess sem svona skrif særa alltaf þá sem síst skyldi,“ segir Unnur Birna sem lifir lífinu ham- ingjusamlega einhleyp. „Ég held að mjög erfitt væri að hefja ástarsamband á þessu ári stanslausra ferðalaga. Ég hef ein- faldlega engan tíma né er virkilega innstillt á slíkt samband, en komi það til verður það alveg óvænt,“ segir sú sem var kennd við banda- ríska stórleikarann Ryan Philippe þegar hann var við tökur á Íslandi í sumar vegna kvikmyndar Clints Eastwoods: Flags of our fathers. „Það var ekkert til í því að við Ryan hefðum verið að slá okkur upp. Ég hitti þessa leikara aðeins nokkrum sinnum í gegnum sam- eiginlega vinkonu sem var að vinna við gerð myndarinnar. Þeir voru allir mjög vingjarnlegir og vita nú að ég er orðin Ungfrú heimur, en ég fékk heillaóska- skeyti frá þessum strákum sem fylgjast með mér. Hafa eflaust séð til mín á einhverjum hinna 200 sjónvarpsstöðva sem sýndu frá keppninni í Kína,“ segir feg- ursta kona heims brosmild og hefur sínar ákveðnu skoðanir á gagnrýni kvenréttindasinna á fegurðarsamkeppnum. „Það hafa allir rétt á sinni skoð- un og margt í þessari umræðu sem er réttmæt gagnrýni, en mér finnst varhugavert að fara með þessi mál út í öfgar. Ég var ekki einu sinni komin heim þegar rót- tækir kvenréttindasinnar sögðu mig slæma fyrirmynd sem hefði vond áhrif á stelpur. Það litaði þennan tíma dökkum litum og var óvægið. Þegar heim kom gerði ég mjög skýra grein fyrir fyrir því hvað Miss World-starfið geng- ur út á og fékk að launum bréf og gjöf frá Kvenréttindafélagi Íslands þar sem mér var óskað til hamingju og þær samglöddust mér. Það þótti mér vænt um og þótti gott framtak hjá þeim,“ segir Unnur Birna sem vill umfram allt gera íslensku þjóðina stolta af sér sem Ungfrú heimur. „Hvert sem ég fer hef ég mína eigin æru og æru minnar þjóðar að verja. Þegar fólk heyrir minnst á Ísland mun það muna mig og tengja land og þjóð þeirri persónu sem það hitti, rétt eins og ég kynntist stúlkum frá 102 þjóðum í Kína sem margar voru mjög lélegir fulltrú- ar sinnar þjóðar og gefa ekki góða mynd af landinu fyrir bragðið,“ segir Unnur Birna sem á dögunum fékk tilboð um kynni við bresku prinsana Vilhjálm og Harrý. „Eflaust gefast aftur tækifæri til að kynnast alvöru prinsum í þessu prinsessustarfi og riddar- inn gæti birst mér þannig, en þá er spurning hvort það höfði til mín. Ég er ekki viss um að þrífast við slíkar aðstæður og verða að almannaeign hvar sem ég kæmi. Ég þarf mitt næði og einkalíf og mín paradís er ekki fundin í alvöru konungshöll, heldur sveit þar sem ég á mína íslensku hesta, eigin- mann og börn. Ég vil því verða gömul úti í náttúrunni, en alls ekki með kórónu á höfði í fínu boði.“ ■ 18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR24 Fegurst kvenna í heimi hér Unnur Birna Vilhjálmsdóttir er komin niður úr skýjunum. Lent sínum jarðbundu fótum heima á Ís- landi þótt hringekja fegurðarinnar hafi rétt hafið snúning sinn um hnöttinn. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir hitti fegurstu konu veraldar þar sem náttúran mætir stórborgarysnum í Reykjavík. HEIMA ER BEST Unnur Birna er fyrst og fremst jarðbundin stúlka og mikill dýravinur sem keppt hefur til verðlauna á hestum frá barnsaldri, skíðað, dansað og lifað lífinu áhyggjulaust og af lífsgleði. Nú gefur hún ár af lífi sínu til góðgerðarmála í minningu ömmu sinnar sem lést snemma árs í fyrra. FRÉTTBLAÐIÐ/VALLI „Þegar ég var krýnd Ungfrú Ísland var eins og kald- hæðni ríkti í salnum og reyndist mikil tilfinningaflækja, en ég var um leið alsæl, enda mikil keppnismanneskja.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.