Fréttablaðið - 18.02.2006, Qupperneq 30
[ ]
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Meðvitund er mikilvæg í umferðinni. Það setur alla í hættu að
vera utan við sig við aksturinn.
Ýmist eitt eða eitt og hálft
bílastæði er ætlað fyrir hverja
íbúð þar sem verið er að þétta
byggð í miðborginni nema við
stúdentaíbúðir, þar er hálft
stæði á íbúð eða ekkert.
Þar sem bílum er alltaf að fjölga
og byggðin að þéttast nærri mið-
borginni þá getur verið þrautin
þyngri að finna þar bílastæði
bæði fyrir íbúa og gesti. Í þróunar-
áætlun miðborgarinnar og nýjum
deiliskipulögum er yfirleitt miðað
við eitt stæði á íbúð, óháð stærð
hennar. Við stúdentaíbúðirnar 96
sem eru í byggingu við Lindargöt-
una er hálft stæði á hverja íbúð
og á Barónsreitnum stendur til
að byggja 100 stúdentaíbúðir með
engum bílastæðum. Þetta kom
fram í spjalli við Helgu Braga-
dóttur hjá skipulags- og bygginga-
sviði borgarinnar. Hún segir óskir
oft koma fram um fleiri stæði af
hálfu þeirra sem séu að byggja og
í Skuggahverfinu hafi endað með
að eitt og hálft stæði er ætlað á
hverja íbúð.
„Dæmi eru um að fólk geti
keypt sér stæði í væntanlegum
bílastæðahúsum og þannig verð-
ur það á Stjörnubíósreitnum,“
bendir hún á. Hún segir einnig
reynt að gera bílastæði neðan-
jarðar þar sem hægt sé að koma
því við. Þannig er það til dæmis
við Borgartúnið þar sem svo-
kölluð Höfðaborg er í byggingu
að búið er að ljúka við tveggja
hæða bílastæðakjallara. Á slipp-
svæðinu verður svipaður háttur
hafður á. Að mati Helgu þarf fólk
síður á bílum að halda á svæðum
þar sem íbúða- og atvinnuhús-
næði er lítið aðgreint og segir hið
nýendurskoðaða strætisvagna-
kerfi líka eiga að geta komið í
stað stöðugrar notkunar á einka-
bílnum, ekki síst í miðborginni.
Rebekka Sigurðardóttir, upp-
lýsingafulltrúi Félagsstofnunar
stúdenta, segir mikla ánægju hjá
Stúdentaráði með að hafa fengið
úthlutað byggingasvæði í mið-
borginni og hún kvíðir ekki bíla-
stæðaleysinu. „Við vitum að það
verður ekki vandamál að fylla
þessar bílastæðalausu íbúðir og
klárt mál að margir munu kjósa
staðinn og strætó,“ segir hún.
Listamaðurinn Haukur Dór
Sturluson er einn þeirra sem
búa við Laugaveginn. Hann má
ekki leggja þar en er með svo-
kallað íbúakort sem heimilar
honum að leggja við næstu götur
ofan Laugavegar, þó við mæli sé.
Fyrir það kort greiðir hann 3.000
krónur á ári. „Fyrst á annað borð
er verið að krefja okkur um gjald
þá telst þetta ekki mikið,“ segir
hann. Stundum kveðst hann þurfa
að keyra nokkra hringi áður en
hann finnur stæði en oftast getur
hann lagt í nágrenninu.
Sigurður Már Einarsson rekur
gistiheimilið Von við Lauga-
veg. Hann leigir það erlendum
námsmönnum á veturna sem
eru bíllausir og á sumrin eru
flestir gesta hans erlendir ferða-
menn. Sumir þeirra eru á bílum
og „lenda í miðbæjarharkinu,“
eins og hann orðar það. „En
þegar þarf að koma hér að með
aðföng og slíkt þá getur það verið
vandamál. Það er bara eins og að
vinna í lottói að fá stæði nálægt
dyrunum,“ segir hann að lokum.
gun@frettabladid.is
Fá bílastæði við nýjar
íbúðir í þéttri miðborg
Oft er þétt lagt við götur nærri Laugaveginum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Frá 1970 hefur verið unnið að því
í Evrópu að koma á fót prófun-
arkerfi fyrir bifreiðar til að sjá
hvernig ökumönnum og farþeg-
um reiðir af við árekstur.
Í upphafi stóðu örfáar stofn-
anir að prófununum og eingöngu
var framkvæmt eitt próf. Bílnum
var ekið beint framan á stein-
blokk sem var jafnbreið bílnum.
Engar árekstrarbrúður voru í
bílunum eins og í dag, en helsti
tilgangur prófanna var að skoða
hvort stýrisöxullinn gengi inn í
bílinn við höggið.
Árið 1996 hófst svo vinnan við
Euro NCAP verkefnið. Nafn þess
er stytting á European New Car
Assessment Programme, eða evr-
ópskt matskerfi fyrir nýja bíla.
Fljótlega fóru ríkisstjórnir, sam-
tök bifreiðaeigenda og stofnanir
að fylkja sér bakvið verkefnið og
það fór að njóta trausts.
Í júlí 1997 tilkynnti Euro
NCAP um fyrsta fjögurra stjörnu
bílinn á markaðnum; Volvo S40.
Þegar bílaframleiðendur fóru
að treysta prófununum byrjuðu
þeir að styrkja verkefnið sjálfir,
til dæmis með því að leggja til
bíla og fjármuni fyrir prófunum.
Þess hefur þó alltaf verið gætt að
framleiðendur geti ekki haft nein
áhrif á niðurstöður, öðruvísi en
með því að hanna betri bíla.
Hver bíll sem er prófaður í
dag fær einkunn í þremur flokk-
um; öryggi fullorðinna farþega,
barna og fótgangandi vegfar-
enda. Bílarnir eru prófaðir fyrir
árekstra á framenda og hlið.
Einnig er framkvæmt staura-
próf en þá er bílnum rennt á hlið
á staur sem er ekki ólíkur ljósa-
staur. Loks er svo prófað hvaða
meiðsli gangandi vegfarandi
hlyti ef bíllinn æki á hann.
Niðurstöður óháðra rann-
sókna gefa ótvírætt til kynna að
þeir bílar sem koma vel úr próf-
unum hjá Euro NCAP séu í reynd
öruggari og slys á fólki ekki eins
alvarleg og hjá þeim bílum sem
koma illa út úr prófunum.
Versta starf í heimi? Árekstraprófanir
stuðla markvisst að framförum í öryggis-
búnaði bifreiða.
HVAÐ ER... EURO NCAP?
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
Njarðarbraut 15 • Reykjanesbær • S: 421 2999 • Fax: 421 2090
Netfang: nysprautun@nysprautun.is
www.nysprautun.is
Viðurkennt
CABAS-verkstæði
Formúlulið Toyota keppir á
nýrri útgáfu af Toyota TF 106
á fyrsta mótinu í Barein 12.
mars.
Ný útgáfa af formúlubílnum Toy-
ota TF 106 var kynnt í vikunni
en ýmsar endurbætur hafa verið
gerðar á bílnum. Á nýju útgáfunni
er yfirbyggingin alveg endurnýj-
uð til þess að bæta loftflæði yfir
og undir bílinn sem er með nýjan
framvæng, nýjan afturvæng og
nýjan loftdreifi að aftan. Nýja
útgáfan verður notuð á fyrsta mót-
inu í Formúlunni sem fer fram í
Barein 12. mars og æfir Toyota-
liðið af kappi þessa dagana á nýja
bílnum. Einnig er verið að æfa
verkaskiptingar í þjónustuhléum.
Þær verða sérstaklega mikilvæg-
ar í ár þar sem búið er að leyfa
dekkjaskiptingar í keppni á ný.
Ný útgáfa
Toyota TF 106 fyrir og eftir breytingar.