Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 48
12 ■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
DAGLEGT LÍF: „Ég starfa sem
söngvari og tónlistarmaður. Dag-
urinn snýst um það. Dagur söngv-
arans er mjög misjafn. Oftast fer
vikan í undirbúning fyrir helgarn-
ar og ég undirbý þau verkefni sem
ég er í. Þegar maður fær nýtt lag
í hendurnar mótar maður það eins
vel og maður getur. Undirbúningur
fyrir kvöldið í kvöld hefur til dæmis
verið mikill. Við þurfum að radda
saman og æfa dansana.“
DISKURINN Í SPILARANUM? „Ég
hef lítinn tíma en Elvis er sígildur
og ég hlusta mikið á hann.“
AF HVERJU EUROVISION? „Ég hef
aldrei tekið þátt áður og fannst rétti
tíminn núna. Það er búið að ganga
mjög vel hjá mér og miðað við það
sem á undan er gengið fannst mér
rétt skref að fara í Eurovision. Lögin
eru mörg en tækifærið gott.“
HVAÐ GERIRÐU EF ÞÚ SIGRAR?
„Ég færi til Aþenu og næði mér í
fuglaflensu! Að öllu gríni slepptu:
Ef ég sigra myndi ég undirbúa mig
vel og hafa það að leiðarljósi að
standa mig vel.“
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ VINNA? „Nei, ég myndi
ekki gera hvað sem er en ég geri
það sem ég get og mitt besta.“
BESTA EUROVISIONLAGIÐ?
„Waterloo með Abba.“
Rétti tíminn til
að taka þátt
DAGLEGT LÍF: „Ég er að spila og
ala upp barnið mitt, fimm ára strák.
Ég búinn að vera að spila á sveita-
böllum undanfarin 12 til 13 ár.
DISKURINN Í SPILARANUM: „Það
er síðasti diskurinn með Weezer.
Hann er kominn aftur í spilarann
og kemur betur út í seinna skiptið.“
AF HVERJU EUROVISION? „Ég er
að taka þátt vegna þess að ég þekki
lagahöfundinn, þetta er persónu-
legur greiði. Ég er ekki að taka þátt
vegna þess að ég hafi „tendensa“
fyrir að verða vera með í þessari
keppni þó svo að ég hafi ekkert á
móti henni. Svo finnst mér lagið
líka skemmtilegt.“
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ SIGRA? „Ég myndi ekki
leggja fram stjórnsýslukæru.“
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA ÞEGAR
ÞÚ ERT BÚIN(N) AÐ VINNA
KEPPNINA Í GRIKKLANDI? „Ég
myndi skemmta mér ærlega, mér
dettur ekkert annað í hug.“
BESTA EUROVISIONLAGIÐ?
„Það er hið ítalska Volare og
Waterloo. Mér datt ekki í hug að
Volare væri Eurovisionlag.“
Myndi ekki leggja fram
stjórnsýslukæru
LAG: Það sem verður
HÖFUNDUR: Hallgrímur
Óskarsson
FLYTJANDI: Friðrik Ómar
Hjörleifsson
SÍMANÚMER: 900 2005
LAG: Flottur karl, Sæmi Rokk
HÖFUNDUR: Sævar Benediktsson
FLYTJANDI: Magni Ásgeirsson
SÍMANÚMER: 900 2004
Matthías Matthíasson er vafalítið best
þekktur sem söngvari hljómsveitar-
innar Papar sem hefur notið mikilla
vinsælda undanfarin ár. Sveitin hefur
gefið út fjölmargar plötur sem hafa
flestar selst mjög vel og er það meðal
annars að þakka öflugri rödd Matthí-
asar.
Áður en hann gekk til liðs við
Papana vorið 1999 var hann í hljóm-
sveitunum Reggae on Ice og Dúndur-
fréttum.
Matthías hefur einnig reynt fyrir
sér í leikhúsum og í Austurbæ verð-
ur á morgun frumsýnt leikritið Hafið
bláa hafið þar sem hann fer með hlut-
verk ígulkersins Ljóts sem mun vera
mikill nöldurseggur.
Leikur
ígulkerið
Ljót
Ekki eru allir sammála því að
Ísland sé best í heimi, og hlaut
það sérstaklega lítin hljómgrunn
árið 1989. Daníel Ágústsson söng
þá lagið „Það sem enginn sér“
eftir Valgeir Guðjónsson, og virtist
enginn hafa heyrt lagið heldur því
lagið hlaut engin stig. Sjálfsmynd
Íslendinga var þó ekki í molum
og var ákveðið að gera betur að
ári liðnu. Þá var keppnin haldin í
Júgóslavíu, og lentu Íslendingar
í 4. sæti með Stjórninni og lagið
„Eitt lag enn“. Þó Ísland væri
augljóslega á uppleið, gekk það
ekki betur en svo að ári liðnu, að
við lentum í 17.sæti með lagið
„Nína“.
LAG: Matthías Matthíasson
HÖFUNDUR: Sést það ekki á mér
FLYTJANDI: Sigurður Örn Jónsson
SÍMANÚMER: 900 2006
Ísland í Eurovision