Fréttablaðið - 18.02.2006, Page 52
16 ■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
DAGLEGT LÍF: Ég er leikari. Ég
kláraði leiklistarnám fyrir tveim-
ur árum en hef verið á sviði mun
lengur.
DISKURINN Í SPILARANUM:
Eurovision-diskurinn með öllum
íslensku lögunum.
AF HVERJU EUROVISION? Af
hverju ekki? Þetta er ógeðslega
gaman og frábær vettvangur til að
skemmta sér og öðrum.
MYNDIRÐU GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ SIGRA? Nei, ég myndi ekki
gera hvað sem er, þá væri ég búinn
að því, en ég er tilbúinn til að gera
ýmislegt.
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ ERT BÚINN AÐ VINNA
KEPPNINA Í GRIKKLANDI? Þá er
eftir að sigra heiminn.
BESTA EUROVISONLAGIÐ? Það
er lagið Nomiza, sem var framlag
Kýpur árið 2000.
Tilbúinn að gera ýmislegt
DAGLEGT LÍF:
Ég starfa sem tónlistarmaður og hef
verið að fikta við tónlist síðan ég
var unglingur. Ég spila á Hverfis-
barnum á fimmtudögum og er í
sýningu sem heitir Le‘Sing.
DISKURINN Í SPILARANUM?
Það er nýi Paul McCartney-disk-
urinn. Ég er mikill Bítlamaður og
þessi diskur fer í tækið á hverjum
degi.
AF HVERJU EUROVISION?
Ég var beðinn um að taka þátt og
ákvað bara að slá til. Það er fyrst og
fremst gaman að vera með.
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ SIGRA?
Nei ég myndi ekki gera hvað sem
er. Þjóðin verður að ákveða, maður
treystir því að hún velji rétt.
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA ÞEGAR
ÞÚ ERT BÚIN(N) AÐ VINNA
KEPPNINA Í GRIKKLANDI?
Það fyrsta sem ég myndi gera væri
að skála í ísköldum bjór.
BESTA EUROVISIONLAGIÐ?
Ætli Gleðibankinn sé ekki besta
lagið, alveg klassískt lag. Ég man
eftir þessu þegar ég var patti, þá var
lagið tekið upp á vídeó og horft á
þetta allan daginn.
Bítlamaðurinn í Eurovision
LAG: Hjartaþrá
HÖFUNDUR: Bryndís Sunna
Valdimarsdóttir
FLYTJANDI: Sigurjón Brink
SÍMANÚMER: 900 2010
DAGLEGT LÍF: „Ég held mér fal-
legri, skiluru, og ferðast, fer í nudd
og reyni að skína fyrir hina. Svo er
ég náttúrlega TV-star í aukavinnu
þegar ég er ekki þreytt. Núna er ég
„recording-artist“ í aukavinnu.“
DISKURINN Í SPILARANUM: „Ég,
skiluru, Til hamingju Ísland og svo
líka Get Down on it með Blue.“
AF HVERJU EUROVISION? „Það
er búið að vera svo mikil pressa á
mér, skiluru. „Silvía Nótt þú verður
að sýna heiminum hvað við erum
töff.“ Sigga Beinteins er guðmóðir
mín og hefur hvatt mig áfram og
Þorvaldur Bjarni grátbað mig.“
MYNDIRÐU GERA ALLT TIL AÐ
VINNA? „Við vitum náttúrlega öll
að ég er búin að vinna. Það pissa
allir í sig þegar þeir sjá mig.“
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA ÞEGAR
ÞÚ ERT BÚIN AÐ VINNA KEPPN-
INA Í GRIKKLANDI? „Held að ég
fari sem friðarsendiboði um allan
heim og dreifi diskinum mínum um
Afríku. Ég mun ekki skorast undan
þeirri ábyrgð að sýna samúð.“
BESTA EUROVISIONLAGIÐ: „Til
hamingju Ísland með Silvíu Nótt,
yfirskrifandi gott.“
Friðarsendiboðinn
Silvía Nótt
LAG: Til hamingju Ísland
HÖFUNDUR: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
FLYTJANDI: Silvía Nótt
SÍMANÚMER: 900 2011
LAG: Á ég
HÖFUNDUR: Örlygur Smári
FLYTJANDI: Bjartmar
Þórðarson
SÍMANÚMER: 900 2012