Fréttablaðið - 18.02.2006, Page 54
DAGLEGT LÍF? Ég vinn í gleraugna-
versluninnni Ég sé og hef gert það í
fimm ár.
DISKURINN Í SPILARANUM? Ég
hef verið að hlusta á diskinn hans
Michael Bublé upp á síðkastið.
AF HVERJU EUROVISION? Þetta er
árshátíð söngvara.
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ SIGRA? Nei.
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ ERT BÚIN AÐ VINNA
KEPPNINA Í GRIKKLANDI? Meika
það ennþá meira.
BESTA EUROVISION-LAGIÐ? All
Kinds of Everything sem Dana flutti
fyrir Írland 1970.
Árshátíð söngvara
LAG: 100%
HÖFUNDUR: Hörður G.
Ólafsson
FLYTJENDUR: Rúna
Stefánsdóttir og Brynjar Már
SÍMANÚMER: 900 2014
18 ■■■■ { eurovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
DAGLEGT LÍF „Ég er móðir og
kenni krökkum í söngskólum allan
daginn. Svo er ég söngkona og vinn
við ýmis verkefni í stúdíóum.“
DISKURINN Í SPILAR-
ANUM? „Ég hlusta á
Katie Melua í bílnum.
Mér finnst hún æði,“
segir Regína, sem er
ekki á leiðinni á tón-
leikana hennar hér í lok
marsmánuðar: „Ég bíð
eftir því að boðið verði
upp á aukatónleika því
ég vil ekki sitja uppi í rjáfri þegar
hún kemur hingað.“
AF HVERJU EUROVISION? „Af
hverju ekki? Keppnin fær mikla
athygli og leiðin góð til að koma
laginu og sjálfum sér á framfæri.“
MYNDIR ÞÚ GERA HVAÐ SEM
ER TIL AÐ SIGRA? „Nei, ég myndi
ekki gera það. Þetta er keppni og ég
vil vinna hana en ég kæmi þó ekki
nakin fram.“
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ ERT BÚIN AÐ VINNA
KEPPNINA Í GRIKKLANDI? „Vá.
Þá kem ég heim og slaka á og ein-
beiti mér að framhaldinu með góðu
fólki. Fjarlægur draumur.“
BESTA EUROVISIONLAGIÐ? „All
Kinds of Everything,“ segir Regína
án umhugsunar. Lagið var flutt af
Dönu í keppninni 1970 og vann:
„Yndisleg melódía og gott lag.“
Keppnin góð leið til að koma sér á framfæri
LAG: Þér við hlið
HÖFUNDUR: Trausti Bjarnason
FLYTJANDI: Regína Ósk Óskarsdóttir
SÍMANÚMER: 900 2015
DAGLEGT LÍF: „Ég les inn á teikni-
myndir einu sinni í viku og er í við-
skiptaensku í Háskóla Reykjavíkur.
Svo kenni ég söng í tónlistarskóla
Þorvalds Bjarna þannig að ég er
með mörg járn í eldinum.“
DISKURINN Í SPILARANUM: „Ég
hef verið að hlusta á Skunk Anansie
og nýja diskinn hans James Blunt.“
AF HVERJU EUROVISION? „Það
er æðislega gaman að taka þátt og
þetta er tækifæri til að gera eitthvað
skemmtilegt.“
MYNDIRÐU GERA HVAÐ SEM ER
TIL AÐ VINNA? „Nei, ég myndi
ekki gera það og þar við situr.“
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA
ÞEGAR ÞÚ ERT BÚIN AÐ VINNA
EUROVISION? „Ég get ekki hugsað
svona langt. Ég ætla bara að gera
mitt besta í kvöld og lengra nær
mín hugsun ekki. Þegar ég keppti
á sínum tíma fraus ég alveg eftir að
hafa sungið og mundi ekki neitt.
Hugsaði bara um hvort þjóðin væri
ánægð með frammistöðuna.“
EFTIRLÆTIS EUROVISION-LAG:
„Það eru svo mörg. Mér þykir vænt
um lögin sem ég syng en sú sem
fékk mig til að vilja taka þátt í Euro-
vision var Sandra Kim þegar hún
vann með laginu J‘aime la vie í
Bergen 1986.“
Með mörg járn í eldinum
LAG: Mynd af þér
HÖFUNDUR: Sveinn Rúnar
Sigurðsson
FLYTJANDI: Birgitta Haukdal
SÍMANÚMER: 900 2013