Fréttablaðið - 18.02.2006, Qupperneq 74
18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR34
Ég byrjaði sem kornabarn á Tímanum, aðeins 16 ára að aldri,“ útskýrir Gunnar.
„Ég fann strax að þarna átti ég að
vera. Blaðamennskan hafði alla
tíð blundað í mér. Öll blöð voru
keypt heima og myndir voru mér
afar hjartfólgnar.“ Fyrsta sumar-
ið í starfi birtist strax mynd eftir
hann. „Áður en ég vissi af var ég
farinn að mynda íþróttir, og ég var
svo í þrettán ár á Tímanum þar til
Þorsteinn Pálsson bauð mér starf
á Vísi 1978. Ég er því sennilega
eini blaðamaðurinn á Fréttablað-
inu sem Þorsteinn Pálsson hefur
ráðið,“ segir Gunnar og hlær. Það
hefur alltaf verið undirliggjandi
ólga í þessum bransa og Vísir var
í mikilli samkeppni við Dagblað-
ið, en á einni nóttu voru svo þessi
blöð sameinuð og ég fylgdi þeim
kaupum. Allt þar til DV strand-
aði, en þá komst ég um borð hjá
Fréttablaðinu.“
Minnisstæðast á ferlinum?
„Það verður seint toppað að hafa
verið viðstaddur Vestmanna-
eyjagosið, þar var maður vakandi
og sofandi allan gostímann. Á
þessum árum var reyndar óvenju
mikil deigla í samfélaginu, meðal
annars áflog á miðunum og þessi
áratugur vegur þyngst í endur-
minningunni. Ég er að eðlisfari
mjög forvitinn maður og vil vera
alls staðar þar sem eitthvað er að
gerast. Ég hef verið viðstaddur
nánast alla markverða viðburði
í þjóðfélaginu undanfarin 40 ár.“
Gunnar segist alltaf hafa haft
gaman af pólitík. „Ég hef fylgst
gjörla með pólitíkusum þessa
lands og þeir hafa margir orðið
vinir manns í gegnum þetta þjark.
Ég hafði alltaf mjög gaman af því
að mynda Steingrím Hermanns-
son af því hann er svo hreinn
og beinn og Davíð Oddsson er
með skemmtilegri mönnum sem
maður hittir.
Þrír Bandaríkjaforsetar komið
til landsins og margar aðrar
heimsfrægar persónur. Clinton er
minnistæðastur þeirra, hef sjaldan
séð mann með jafn mikla útgeisl-
un. Gaman að sjá mann ganga á
miðri götu, ekki á gangstéttinni,
með útréttar hendur. Aðsópsmikill
maður með eindæmum.
Sú mynd sem þó mest loðir
við mig er sú með Ólafi Ragnari
Grímssyni og heitkonu hans Dor-
rit Moussaieff þegar hestur hnaut
með hann á Leirubakka og hann
axlarbrotnaði. Þessar myndir
hefðu sennilega aldrei verið teknar
ef ég hefði ekki verið hestamaður
og fékk þar af leiðandi að fylgja
þeim eftir ríðandi úti í nátturu
landsins. Gunnar segist stundum
verða þreyttur, en gæti ekki hugs-
að sér annað lifibrauð. „Ekki síst
fyrir það maður kynnist svo mörgu
fólki og það hefur verið allra dýr-
mætast á lífsleiðinni.“ - amb
Davíð Oddsson, eftir að hafa gengt forsæt-
isráðherraembættinu lengur samfellt en
nokkur annar, jafnvel samanlagt. „Maður
slær öll met og móttökunefndin getur
ekki verið minni en þú, Gunnar minn
Andrésson!“
Vestmannaeyjagosið
eftirminnilegast
Honum er blaðamennskan í blóð borin og hann gæti
ekki hugsað sér annað starf en að mynda atburði líðandi
stundar. Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari hjá Frétta-
blaðinu opnar sérstaka sýningu í hliðarsal Gerðarsafns
í dag í tengslum við árlega ljósmyndasýningu Blaðaljós-
myndarafélags Íslands, til að marka 40 ára feril sinn sem
fréttaljósmyndara.
„Why not?“ Ég hef tekið myndir af mörgum heimsfrægum persónum sem lagt hafa leið
sína hingað til lands svo sem Bandaríkjaforsetunum Reagan og Nixon, en eftirminnilegasta
persónan í þessum hópi er Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseti. Hann var á gangi fyrir
utan Bæjarins bestu þegar ég kallaði til Margrétar sem var við afgreiðslu, „af hverju býður
þú honum ekki upp á pylsu?“ og hún tók mig á orðinu. Bauð honum bestu pylsu í heimi
og hann svaraði að bragði og horfði í augun á mér, „why not?“
Fyrsti morgunninn. Þarna
var ég með Kára Jónassyni
og fleirum að fylgjast með
Heimaeyjargosinu að morgni
24. janúar 1973.
Árni Johnsen segir af sér þingmennsku.
Hann sendi mér póst sem fylgir með
sem myndatexti á sýninginni þar sem
hann meðal annars líkir sér við smá-
fugl í klóm smyrilsins.
NFS ER Á VISIR.IS
NFS ER Á VISIR.IS
NFS ER Á VISIR.IS