Fréttablaðið - 18.02.2006, Síða 81
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2006
Lau. 17. Feb. Örfá sæti laus
Fim. 23. Feb.
Fös. 3. Mars.
Mind Camp
eftir Jón Atla Jónasson
Sun. 19. Feb.
Síðasta sýning
Námsmenn og Vörðufélagar fá
miðann á Mind Camp á 1000 kr.
í boði Landsbankans
Ef
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
Vestmanneyjar
Þrið. 21. Feb. kl. 9, 11 og 13 Uppselt
-20%
PORTO Leðurhornsófi (282x150)
Verð : 205.000.-
Tilboðsverð:
164.000.-
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Opið um helgina: lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
FOCUS leðursófasett
Fáanlegt í hvítu og dökkbrúnu leðri
3+1+1
199.800.-
3+2
188.000.-
LUNA leðursófasett
Fáanlegt í hvítu og dökkbrúnu leðri
3+1+1
188.000.-
-20%
ROCCO leðursófasett
3+1+1
Verð áður: 232.000.-
Verð nú:
185.600.-
FEBRÚAR TILBOÐ
á leðursófasettum
Tvö íslensk verk, annað eftir Þórð
Magnússon en hitt eftir Hreiðar
Inga Þorsteinsson, verða flutt á
minningartónleikum í Langholts-
kirkju á morgun. Tónleikarnir
eru helgaðir minningu Guðlaugar
Bjargar Pálsdóttur, sem hefði orðið
fimmtug á síðastliðnu ári. Hún lést
af slysförum árið 1986.
Það er Kór Langholtskirkju og
Graduale Nobili sem kemur fram
á tónleikunum ásamt einsöngvur-
unum Ísak Ríkharðssyni og Jóni
Helga Þórarinssyni. Stjórnandi er
Jón Stefánsson.
Eftir Þórð verður frumflutt
verkið Psalmus 8, eða Davíðssálm-
ur 8, sem helgað er minningu Guð-
laugar. Eftir Hreiðar Inga verður
flutt verkið Sálumessa, sem Kór
Langholtskirkju frumflutti á Myrk-
um músíkdögum á síðasta ári. Það
er Minningarsjóður Guðlaugar
Bjargar sem stendur fyrir tónleik-
unum, sem hefjast á morgun klukk-
an 17, en árlega hefur sjóðurinn
borið kostnað af tónlistarflutningi í
almennri guðsþjónustu á allra heil-
agra messu í Langholtskirkju. ■
Minnst með söng
GUÐLAUG BJÖRG PÁLSDÓTTIR Hennar
er minnst árlega með tónlistarflutningi í
Langholtskirkju.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FEBRÚAR
15 16 17 18 19 20 21
Laugardagur
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
bandarísku dans- og söngvamyndina
The Gay Divorcee frá árinu 1934
með þeim Ginger Rogers og Fred
Astaire í aðalhlutverki.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Hungur eftir Þórdísi
Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann
verður frumsýnt á Litla sviði
Borgarleikhússins í leikstjórn
Guðmundar Inga Þorvaldssonar.
■ ■ OPNANIR
15.00 Hin árlega sýning
Blaðaljósmyndarafélags Íslands,
Myndir ársins 2005, verður opnuð
í Gerðarsafni í Kópavogi. Á sýning-
unni eru um 230 blaðaljósmyndir frá
síðastliðnu ári.
16.00 Ásdís Spanó opnar sýn-
inguna „Orkulindir“ í gallerí Boxi á
Akureyri.
Sýning Friðriks Arnar ljós-
myndara, 10.000, verður opnuð í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Milonga, tangóball með
argentínsku sniði, verður haldið í
þriðja sinn í Leikhúskjallaranum.
23.00 Geirmundur Valtýsson og
hljómsveit á Kringlukránni.
Hljómsveitin Signia spilar í
Pakkhúsinu á Selfossi.
Hljómsveitin Tilþrif spilar á
Holtakránni.
■ ■ FUNDIR
13.30 Charlotte Cohen flytur
fyrirlestur um strauma og stefnur
samtímans í list í almenningsrými
á opnum fundi menningar- og
ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar,
sem haldinn verður í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Eftir kaffi-
hlé verða umræður um stefnumótun
Reykjavíkurborgar varðandi list í
opinberu rými.