Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 83
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2006 43
Breska fyrirsætan Erin O‘Connor
er afar sérstök í útliti. Hún þjáð-
ist mikið vegna þess er hún var
yngri en hún var og er afar hávax-
in, grönn og með stórt og karakt-
ermikið nef. Það var ekki fyrr en
hún gerðist fyrirsæta sem hún fékk
sjálfstraust, sættist við óvenjulegt
útlitið og feimnin fór af henni.
Erin er ekki falleg á klassískan
máta enda sker hún sig úr í hvaða
hópi sem er. Hún er með stutt
svart hár og minnir mikið á leik-
konuna úr þöglu myndunum, Lou-
ise Brooks.
Karl Lagerfeld hefur lýst henni
sem nýtískulegri and-fegurðardís
en Erin kann að nýta sér óvenju-
lega fegurð sína og klæðir sig
eftir vexti. Hún er oft í síðum og
pilsvíðum kjólum og er óhrædd við
að klæðast skóm með háum hælum
þrátt fyrir hæð sína. Á tískupöllun-
um nýtur hún sín best en þar svífur
hún áfram eins og tignarlegt dádýr
fyrir frægustu fatahönnuði heims.
Erin sótti Ísland heim í fyrrasum-
ar þegar hún var viðstödd Mosaic
Fashion tískusýninguna.
PS
Persónulegur stílisti
*Gildir aðeins í fyrirfram bókuðan tíma.
**Gildir ekki um MAC snyrtivörur.
Bókaðu
Persónulegan stílista
í síma 522 8015
Persónuleg stílráðgjöf
Allir eiga sinn stíl, en sumir eiga bara í smá erfiðleikum með að
finna hann. Þess vegna er frábært að geta leitað til Persónulegs
stílista í Debenhams. Hann hjálpar þér að leggja línurnar, finnur
sniðin og samsetningar sem eru flottust á þér og leiðbeinir um
val á fylgihlutum í stíl.
Gjafakort til elskunnar þinnar
Komdu elskunni þinni skemmtilega á óvart. Nú fylgir
sérhverju gjafakorti, að upphæð 8.500 eða meira, tími
hjá Persónulegum stílista* og 15% afsláttur af fatnaði
og fylgihlutum sem verslað er út á kortið. Einnig fylgir
gjafakortinu 20 mín. ráðgjöf í snyrtivörudeildinni og
15% afsláttur af snyrtivörum.**
KOMDU FLOTT
ÚT Í VOR!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
14
13
0
2/
20
06
Nú eru vorvörurnar að tínast í hús,
ert þú ekki á leiðinni líka?
KVIKMYNDASTJARNA Hér er Erin óhugn-
anlega lík kvikmyndastjörnunni Louise
Brooks.
NAPÓLEON Hér er hún í kjól sem minnir
helst á Napóleon-tímann.
Dádýr á tískupöllunum
DJÖRF Í KLÆÐABURÐI Erin er orðin algjör
tískudrottning og er óhrædd við að
klæðast óvenjulegum kjólum frá flottum
hönnuðum.
ERIN O‘CONNOR Hún klæðist oft síðum og
pilsvíðum kjólum.
Það fer illa fyrir tískuvikunni
á Spáni sem einfaldlega verður
undir stóru tískuvikunum í Lond-
on og New York. Þegar myndir frá
Spáni eru skoðaðar er þó augljóst
að þetta er heldur ósanngjarnt
þar sem greinilega er mikið af
hæfileikaríkum hönnuðum sem
sýna þar. Einn af þeim er Miguel
Palacio sem tískugúrúinn Diane
Pernet kallar Marc Jacobs þeirra
Spánverja. Líkingin er alls ekki
út úr kú þar sem kæruleysið og
götutískustílinn sem oftar en ekki
einkennir hönnun Jacobs má líka
finna í flíkum Palacio. Hann er þó
heldur kvenlegri og klassískari
í sinni hönnun og í þessari nýju
línu sýndi hann afar klæðilegar
flíkur.
Mikið var um pokalega en afar
fallega kjóla úr sjiffoni, mittis-
belti og elegant blússur. Hár fyr-
irsætnanna vakti verðskuldaða
athygli, en margar hverjar voru
þær með hárið í hnút framarlega
við ennið. Ekkert nýtt svo sem en
afar svalt.
Spænskur
Marc Jacobs
MINTUGRÆNN Kvenlegar og klæðilegar
flíkur voru ráðandi í línu Palacios.
HÁRGREIÐSLA Flatur hnútur framarlega við
ennið kemur furðu vel út.
GLÆSILEGT Falleg blússa úr nýjustu línu
Miguels Palacio.