Fréttablaðið - 18.02.2006, Side 91
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2006 51
L‡sing hf. er stolt af stu›ningi sínum vi› bikarkeppnina í körfuknattleik
H
in
ri
k
Pé
tu
rs
so
n
l
w
w
w
.m
m
ed
ia
.is
/h
ip
Meistaraflokkur karla
Lau. 18. feb 2006 Laugardalshöll kl. 16:00 Grindavík - Keflavík
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
Vinnur flú 100.000 kr. ?
Í bá›um leikjum fá nokkrir heppnir áhorfendum a› reyna sig
vi› 100.000 kr skoti› í bo›i L‡singar
Mætum öll og hvetjum okkar fólk!
Úrslitaleikirnir í L‡singarbikarnum fara fram um helgina
Meistaraflokkur kvenna
Lau. 18. feb 2006 Laugardalshöll kl. 14:00 ÍS - Grindavík
DHL-deild karla:
FYLKIR-FRAM 28-22
Mörk Fylkis: Arnar Þór Sæþórsson 8, Arnar Jón
Agnarsson 6, Heimir Örn Árnason 5, Eymar Kruger
3, Kristján Þorsteinsson 2, Hreinn Hauksson 2,
Mörk Fram: Jóhann Gunnar Einarsson 9, Sergey
Serenko 5, Guðjón Drengsson 3, Þorri Gunnarsson
2, Haraldur Þorvarðarson 2, Sigfús Sigfússon 2.
ÞÓR AK.-AFTURELDING 27-27
Mörk Þórs: Arnór Gunnarsson 9, Aigars Lazgins 9
Mörk Aftureldingar: Vlad Trufan 6, Hilmar Stef-
ánsson 5, Einar Ingi Hrafnsson 5.
KA-VÍK/FJÖ 35-25
Mörk KA: Magnús Stefánsson 9, Jónatan Magn-
ússon 7, Nikola Jankovic 6, Goran Gusic 5.
Mörk Vík/Fjö: Sveinn Þorgeirsson 9, Sverrir Her-
mannsson 6, Björn Guðmundsson 4.
SELFOSS-ÍR 29-33
Mörk Selfoss: Vladimir Djuric 14, Einar Guð-
mundsson 8.
Mörk ÍR: Ragnar Helgason 8, Ísleifur Sigurðsson 6,
Þorleifur Árni Björnsson 6.
VALUR-FH 26-25
Mörk Vals: Baldvin Þorsteinsson 7, Hjalti Pálma-
son 5.
Mörk FH: Hjörtur Hinriksson 6, Sigursteinn Arn-
dal 5.
Deildabikar KSÍ:
KA-ÍA 0-4
Mörk ÍA: Arnar Gunnlaugsson 3, Dean Martin 1.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
SKÍÐI Dagný Linda Kristjánsdótt-
ir hafnaði í 31 sæti í svigi, sem er
hluti af alpatvíkeppninni á ólymp-
íuleikunum í Tórínó en keppnin
fór fram við erfiðar aðstæður í
gær. Aflýsa þurfti keppni í bruni,
hinum helming tvíkeppninnar,
vegna aftakaveðurs en í þeim
hluta er Dagný mun sterkari.
Dagný Linda var í 35. sæti eftir
fyrri ferðina, 5.84 sek. á eftir
Marlies Schild frá Austurríki en
hún stóð uppi sem sigurvegari að
lokum. Dagný hafnaði í 31. sæti,
11.38 sekúndum á eftir Schild
eftir báðar ferðirnar.
Keppninni líkur svo í dag þegar
brunið fer fram og þá er líklegt
að Dagný klóri sig upp töfluna
en hún náði frábærum árangri
í brunkeppninni fyrr í vikunni
þegar hún lenti í 23. sæti sem
er einn allra besti árangur sem
íslenskur skíðakappi hefur náð á
ólympíuleikum. hþh
Ólympíuleikarnir í Tórínó:
Dagný Linda
lenti í 31. sæti
DAGNÝ LINDA KRISTJÁNSDÓTTIR Stóð sig
með prýði í svigkeppninni.
SERGEY SERENKO Hér sækir Serenko, leikmaður Fram, að marki Fylkis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Fylkismenn unnu
góðan 28-22 sigur á Fram í DHL-
deild karla í gærkvöldi og nálgast
nú toppliðin í deildinni óðfluga.
Framarar spiluðu betur í fyrri
hálfleik og voru ávallt skrefinu á
undan Fylkismönnum sem gerðu
sig seka um mörg mistök í sókn-
inni. Framarar voru grimmir en
með Fylkismenn ávallt skammt
undan en Safamýrarpiltar voru
tveimur mörkum yfir í hálfleik,
15-13.
Í síðari hálfleik bitu Fylk-
ismenn all hressilega frá sér,
skiptu í 3-2-1 vörn sem Framarar
áttu engin svör við og þeim tókst
aðeins að skora sjö mörk í síðari
hálfleiknum. Feykileg barátta
Fylkismanna skilaði sér og þeim
urðu engin mistök á, tóku for-
ystuna og unnu að lokum sann-
færandi sigur.
„Þetta var bráðnauðsynlegt
fyrir okkur að landa þessum
sigri til að halda í við toppliðin í
deildinni. Þetta var sannkallað-
ur baráttusigur og gott að koma
sterkir til baka eftir frekar slaka
leiki eftir áramót. Strákarnir
gerðu sér grein fyrir mikilvægi
leiksins og stóðu svo sannarlega
fyrir sínu,“ sagði Sigurður Valur
Sveinsson, þjálfari Fylkis eftir
leikinn, í skýjunum með sína
menn. - hþh
Fylkir vann öruggan 28-22 sigur á Fram í gær:
Baráttusigur Fylkis
FÓTBOLTI Reading, með þá Ívar
Ingimarsson og Brynjar Björn
Gunnarsson í broddi fylkingar,
tókst ekki að slá 110 ára gamalt
met Liverpool í næstefstu deild
ensku knattspyrnunnar. Reading
hafði ekki tapað í 33 leikjum í röð
þegar það beið lægri hlut fyrir
Luton í gærkvöldi, 3-1, en metið
setti Liverpool á leiktímabilunum
1894-1896.
Reading hafði ekki tapað síðan
í 1. umferð tímabilsins, þann 6.
ágúst. Liðið er þó svo gott sem
komið upp og því má búast við
tveimur íslenskum leikmönnum
til viðbótar í ensku úrvalsdeild-
inni á næsta tímabili. - hþh
Íslendingaliðinu Reading:
Tókst ekki að
slá metið
ÍVAR INGIMARSSON Lék allan leikinn