Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 29
bæjarskóli hefur starfrækt nýbúa-
deild hefur aðeins komið upp eitt
tilvik þar sem nemandi þaðan hefur
ekki útskrifast.
Nína útskýrir að fjölmenning sé
ekki sérstök kennsluaðferð heldur
snúist málið meira um hugarfars-
breytingu og heildarsýn. „Fjöl-
menning er ekki sérstakt fag,“
segir Nína og bætir því við að mik-
ilvægt sé hvernig skólar skilgreini
sig og móti heildarsýn þegar kemur
að fjölmenningarlegu starfi. Í starfi
Nínu er félagslegi þátturinn einna
mikilvægastur og í fjölmenningar-
legri stefnu Austurbæjarskóla er
mikil áhersla lögð á samhjálp og
samkennd. Nína útskýrir að börn
séu ekki fulltrúar eigin menningar,
þau búi til sína eigin menningu.
„Við leggjum áherslu á það sem er
sameiginlegt en einblínum ekki á
það sem aðgreinir okkur. Við teljum
mjög mikilvægt að passa upp á
krakkana félagslega. Stefna okkar
miðar að því að við erum líka að
aðlaga íslenska nemendahópinn og
auka vitund inn í almennu bekkjun-
um um virðingu fyrir mismunandi
eiginleikum ólíkra nemenda. Við
þurfum öll að takast á við eitthvað,
allir hafa sína styrkleika og veik-
leika,“ útskýrir Nína. Hluti af þessu
starfi er áhersla á samvinnunám,
að nemendur hjálpist að við að læra
hvert af öðru og leysa ný verkefni í
sameiningu þar sem fjölbreytileiki
hópsins skiptir miklu máli. „Vinnu-
ferlið er mikilvægara heldur en
afraksturinn,“ segir Nína. Þá er
orðin breyting frá hefðbundnu hóp-
astarfi þar sem vinnan var oftar
framkvæmd af einum eða tveimur
því í samvinnunámi eru allir þátt-
takendur virkjaðir og allir bera
sameiginlega ábyrgð og þar af leið-
andi ávinning af því að hópurinn
læri.
Nína útskýrir að fyrstu árin hafi
fáir nemendur af erlendum upp-
runa verið duglegir við að sækja
félagslíf innan skólans en nefnir til
dæmis verkefnin „Adrenalín gegn
rasisma“ sem unnið er í samstarfi
við Laugalækjarskóla og „Ísjaka-
hópinn“ sem starfar í tengslum við
ÍTR sem hvort tveggja eru verkefni
sem miða að því að efla frumkvæði
og félagslega þátttöku nýbúabarna.
Í þessari viku var annasamur
tími í Austurbæjarskóla. Það var að
mörgu að hyggja í nýbúadeildinni –
framundan var Vetrarhátíð í
Reykjavík en hópurinn tekur einnig
þátt í þriðju Þjóðahátíð Alþjóða-
hússins þann 26. febrúar. Nú í vik-
unni hófu einnig þrír nýir nemend-
ur nám við deildina. Nína segir að
starfið sé mjög krefjandi en alltaf
gott þegar vel gengur. „Það er mest
gaman þegar maður finnur að vel
hefur tekist til og nemendunum
vegnar vel þegar þau fara frá okkur.
Það er það sem maður vonar, að
maður sé að hjálpa þeim til þess að
vera hamingjusamir þegnar í þessu
landi.“ ■
það séu starfræktar móttökudeild-
ir í sumum framhaldsskólum, til
dæmis í Iðnskólanum og FÁ en
öðrum skólum sé í raun í sjálfsvald
sett hvernig þau taka á móti nem-
endum af erlendum uppruna. „Við
reynum oft að fylgja nemendum
okkar eftir, til dæmis tala við skóla-
stjóra ef við teljum að nemendur
þurfi stuðning, til dæmis við að
komast inn.“ Nína er samt bjartsýn
á framtíðina og bendir á að skiln-
ingur á fjölmenningarlegu samfé-
lagi sé að aukast innan framhalds-
skólanna.
Í grunnskólanum er skólaskylda
og því er ekki hægt að tala um eig-
inlegt brottfall þaðan. Ef nemend-
ur finna sig illa í því námi sem
grunnskólarnir bjóða upp á er
mögulegt að bjóða upp á starfs-
tengt nám til dæmis í Fjölsmiðj-
unni, sem er verkþjálfunarsetur
fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24
ára sem hefur hætt námi, en það er
sjaldgæft að sá möguleiki sé nýtt-
ur, meðal annars vegna aldurs
nemenda því Fjölsmiðjan er ætluð
nemendum á framhaldsskólaaldri.
Á þeim ellefu árum sem Austur-
● Austurbæjarskóli var stofnaður 1930
og er einn af stærstu grunnskólum
Reykjavíkur.
● Í Austurbæjarskóla eru um það bil
600 nemendur en þar af eru um 100
nemendur af erlendum uppruna.
● Á síðasta ári bættust við rúmlega 30
nýir nemendur af erlendum uppruna
● Erlendu nemendurnir eru af 27
ólíkum þjóðernum.
● Erlendu nemendurnir tala meðal
annars hebresku, taílensku, japönsku,
litháísku, pólsku, amharísku, víet-
nömsku og kreólsku.
● Austurbæjarskóli var skilgreindur
sem fjölmenningarlegur skóli árið
2001.
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2006 29