Fréttablaðið - 25.02.2006, Síða 34
[ ]Kurteisi er mikilvæg í umferðinni eins og annars staðar. Það er óþarfi að flauta og öskra á fólk þó það geri mistök ef þau eru ekki alvarleg.
BMW X3 er sannkallaður lúxus-
jepplingur. Aksturseiginleikar
hans eru framúrskarandi hvort
heldur sem er innan bæjar eða
utan, á beinum og breiðum vegi
eða grófari slóðum.
Hann er skemmtilega snaggara-
legur í útliti, BMW X3. Minnir
óneitanlega á stóra bróður, X5, en
er vitanlega minni um sig og því að
sumu leyti skemmtilegri borgar-
bíll. Að innan er lúxusinn ráðandi.
Hvarvetna eru vönduð efni og frá-
gangur góður.
BMW X3 er búinn XDrive skyn-
vædda aldrifinu sem BMW-menn
eru svo stoltir af. Aðalsmerki þess
er hraðvirkni, aðeins brot úr sek-
úndu líður frá því vegyfirborðið er
skynjað þar til það skilar sér í
dreifingu afls milli öxla. Þetta
þýðir að aflinu er rétt dreift milli
hjóla áður en til þess kemur að bíll-
inn fari að spóla.
Reynsluekið var X3 með tveggja
lítra 150 hestafla bensínvél sem er
hagstæður kostur, kostar 3.430.000
kr. (3.880.000 fyrir lúxusútgáfuna)
en það er lægra verð en gengur og
gerist á slíkum lúxusjepplingum,
enda er X3 vissulega minni en þeir
bílar eru flestir. Hann er þó fylli-
lega nógu stór til alls almenns
brúks. Vel fer um bílstjóra og far-
þega í framsæti, einnig þótt sæti
séu höfð það framarlega að prýði-
legt fótarými sé í aftursætinu. Þar
fer vel um tvo fullorðna en ekki
eins vel ef sá þriðji bætist við.
Stærsta leyndarmál X3 bílsins er
svo hið furðustóra skott sem birtist
þegar afturhlerinn er opnaður, eig-
inlega þannig að furðu sætir í ekki
stærri bíl. Bíllinn er verulega snar-
pur og skemmtilegur á beinum og
breiðum vegi, lipur í borgar-
þrengslum og skemmtilegt öku-
tæki á grófari vegi.
BMW X3 er rjómi fyrir þá sem
hafa gaman af akstri góðra bíla.
Hann liggur skemmtilega á vegin-
um, er með sportlega fjöðrun sem
þó er alls ekki höst og framúrskar-
andi veggrip sem gefur bílstjóra
einstaka öryggistilfinningu. Inn-
réttingin er klassísk og falleg með
einstaklega vönduðu yfirbragði.
Bíllinn er búinn þægindum eins og
hita í framsætum og góðum
geymsluhólfum og drykkjarhöld-
urum. Það besta er að verðið er alls
ekki óyfirstíganlegt, séu menn á
annað borð í lúxusbílapælingum,
ef menn sætta sig við tveggja lítra
vélina sem undirrituð getur vottað
að leynir virkilega á sér.
steinunn@frettabladid.is
Nettur og skemmtilegur
lúxusjepplingur
BMW X3 vél l/100 sek./0-100 hestöfl verð
2,0i 2,0 9,3 11,5 150 3.430.000
2,0i Lúxus 2,0 9,3 11,5 150 3.880.000
2,5i 2,5 11,2 8,9 192 4.490.000
2,5i Lúxus 2,5 11,9 9,8 192 4.970.000
3,0i 3,0 11,4 7,8 231 4.730.000
3,0i Lúxus 3,0 12,1 8,1 231 5.500.000
2,0id 2,0 7,2 10,2 150 3.690.000
2,0id Lúxus 2,0 7,2 10,2 150 4.150.000
3,0id 3,0 7,9 7,4 218 4.920.000
3,0id Lúxus 3,0 8,6 7,7 218 5.630.000
BMW X3 er glæsilegur bíll. Hann líkist mjög stóra bróður, X5, en er allur minni um sig.
Skottið í X3 leynir ótrúlega á sér.
Það er alltaf gaman fyrir fagurkera að setjast upp í BMW. Hér er allt fallegt og vandað, auk
þess sem vinnuumhverfi bílstjóra er eins og best verður á kosið.
Góður stokkur er fyrir miðju aftur í.
BMW-ættarmótið er sterkt.
Sætin eru þægileg í BMW. Þau voru ekki
rafknúin í bílnum sem reynsluekið var en
þægileg í stillingu samt.
Miðjustokkurinn er með góðum hólfum.
REYNSLUAKSTUR
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á
stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl.
Kerruljós, kerrubretti og nefhjól.
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík