Fréttablaðið - 25.02.2006, Síða 67
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2006 51
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
15
03
0
2/
20
06
Herraleg tilboð:
afsláttur
í herradeild
fimmtudaginn 23. febrúar
til sunnudagsins 26. febrúar
Við fögnum hækkandi sól
og bjóðum 20% afslátt í herradeild Debenhams
frá fimmtudegi til sunnudags.
Komdu og tryggðu þér
flottustu herramerkin á markaðnum
- á mun betra verði.
0%
Chloë Sevigny var uppgötvuð af
stílista tímaritsins Sassy sem
kom auga á hana úti á götu í New
York en Chloë bjó þá í Connecticut.
Í framhaldi af því sat hún fyrir á
myndum í tímaritinu og í auglýs-
ingum fyrir x-girl, fatalínu Kim
Gordon í Sonic Youth. Chloë hitti
svo leikstjórann Harmony Kor-
ine í almenningsgarði í New York
og það var hann sem fékk hana til
að leika í samstarfsverkefni Kor-
ine og Larry Clark, myndinni
Kids.
Síðan hefur hún leikið í fjöld-
anum öllum af sjálfstæðum kvik-
myndum og er óhrædd við að
hafna stórum hlutverkum ef
henni líst ekki á handritið.
Hún þykir hafa gott vit á tísku,
er fyrirmynd margra í þeim geira
og er stundum kölluð „the queen
of cool“ eða drottning töffarask-
aparins.
Hún er óhrædd við að klæðast
öðruvísi fötum og hefur sérstak-
an stíl.
Hún er ljóshærð, brún og með
fallegan vöxt en þrátt fyrir það
kemst hún algjörlega hjá því að
vera hin dæmigerða ljóska og er
ögrandi í framkomu og fatastíl.
Drottning
töffaraskaparins
Á FRUMSÝNINGU Hér er hún á
frumsýningu myndarinnar Walk
the line. Í einfaldri fatasamsetn-
ingu, hvítri skyrtu og svörtum
buxum.
TÖFFARI Flott í svörtum frakka
og stuttum kjól.
IMITATION OF CHRIST Sumarleg
og sæt á tískusýningu. CHLOË Töff í hátískuklæðnaði.
Ólífulínan frá L‘occitane hefur
fengið mikið lof enda eru vörurn-
ar allar ógurlega góðar fyrir húð-
ina. Í vorlínunni komu tvær nýj-
ungar á markað í
ólífulínunni, hárnær-
ing og augnkrem.
Hárnæringin er hefð-
bundin og er sett í
hárið eftir þvott.
Gott er að láta
hana bíða í hár-
inu meðan búk-
urinn er skrúbb-
aður og svo er
hárnæringin
skoluð úr hárinu.
Hún gefur falleg-
an gljáa enda er
hún sérlega nær-
andi fyrir hárið
og dregur úr flóka.
Augnkremið er borið á svæðið í
kringum augun en mikilvægt er
að kremið komi ekki í snertingu
við augað sjálft. Ólíkt mörgum
augnkremum er það
ekki sérstaklega
ætlað kvenfólki í
eldri kantinum heldur
er það mjög gott fyrir
fyrir alla aldurshópa.
Ekki er verra að byrja
að bera það á sig í
tæka tíð, eða um leið
og stelpur/konur
byrja að nota farða og
andlitskrem. Augn-
kremið frá L‘occitane
sléttir úr svæðinu
kringum augun,
kemur í veg fyrir
bauga og frískar upp á
þetta viðkvæma svæði
sem oft vill láta á sjá
þegar þreyta og stress
banka upp á. ■
Dásamlega
frískandi
Þegar búið er að bera á sig ólífu-
augnkrem og hárið ilmar af ólífu-
hárnæringu er ekki úr vegi að
spóka sig um í grænum skóm. Í
versluninni 38 þrep var að koma ný
sending í hús þar sem
rúskinni er bland-
að skemmtilega
saman við brún-
an lit. Það er
vel hægt að
valhoppa
niður Lauga-
veginn í
þessum
skvísu-
skóm. ■
Grænir og
vænir