Fréttablaðið - 25.02.2006, Page 69
LAUGARDAGUR 25. febrúar 2006
Potta- og pönnubúðin þín
Rúmlega 100 tegundir í boði! Allar með afslætti!
Potta- og pönnudögum lýkur á morgun, komdu og sparaðu þúsundir!
Stórir pottar • litlir pottar • skaftpottar
þrýstipottar • fonduepottar • gufusuðupottar
djúpar pönnur • grunnar pönnur • pottapönnur
grillpönnur • wok-pönnur • pönnukökupönnur
ál • stál • pottjárn • keramik • teflon • títan
Pottar Pönnur!
Nýtt kortatímabil
Elín María Björnsdóttir úr brúð-
kaupsþættinum Já valdi sér þrjár
uppskriftabækur á bókamarkaðin-
um í Perlunni sem nú stendur yfir.
„Ég valdi nokkrar uppskrifta-
bækur því mér finnst rosalega
gaman að elda og reyni þá að hafa
hollustuna í fyrirrúmi,“ segir Elín
María, sem valdi bækurnar Fljót-
legir réttir, Asíuréttir og Salöt.
„Það er svo mikið að gera að
maður þarf að geta gripið í eitthvað
svona hratt. Svo á ég stelpu sem er
sex ára og ákvað þá að kaupa Svona
er líkaminn, sem er með flottum
myndum sem maður getur flett í
gegnum. Síðan keypti ég Blekking-
una í seríunni um Artemis Fowl
eftir Eoin Colfer. Mér finnst bæk-
urnar hans mjög skemmtilegar og
átti ekki þessa. Loks keypti ég tvær
brandarabækur því svoleiðis bækur
hafa alltaf gert lukku á heimilinu,“
segir Elín. ■
Hollustan í fyrirrúmi
ELÍN MARÍA BJÖRNSDÓTTIR Elín valdi sér þrjár uppskriftabækur í Perlunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM