Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 52
ATVINNA
20
TILKYNNINGAR
19. mars 2006 SUNNUDAGUR
Lausar stöður lækna
Heilbrigðisstofunin Ísafjarðarbæ auglýsir eftir
tveimur læknum til starfa. Stöðurnar eru lausar strax.
Um er að ræða 100% stöður. Nánari upplýsingar um
störfin veitir Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir, netfang
thorsteinn.johannesson@fsi.is. og Fjölnir Freyr
Guðmundsson yfirlæknir, netfang fjolnir@fsi.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu
sendist Þresti Óskarssyni framkvæmdastjóra, fyrir 1o.apríl
n.k.. Netfang: throstur@fsi.is
Heilbrigðisstofnunin, Ísafjarðarbæ skiptist í sjúkrasvið og
heilsugæslusvið og er vel búin stofnun, með rúmgóðri
vinnuaðstöðu. Stofnunin þjónar Vestfjörðum, einkum
norðurhlutanum. Við veitum alla almenna þjónustu, bæði á
heilsugæslusviði og á sviði skurð- og lyflækninga,
fæðingarhjálpar, öldrunarlækninga, slysahjálpar og
endurhæfingar. Starfsemin hefur verið í örum vexti á
undanförnum árum. Starfsmenn Heilbrigðisstofnunarinnar
eru rúmlega 150 talsins og starfsandi er mjög góður.
Ísafjörður er höfuðstaður Vestfjarða og þar blómstrar öflugt
lista-, menningar- og félagslíf. Íþrótta- og keppnisaðstaða er
mjög góð, bæði innan- og utanhúss. 3 golfvellir eru á svæðinu,
4 íþróttahús og 5 sundlaugar. Einnig er líkamsræktarstöð í
bænum. Tækifæri til útivistar eru mörg, skíðaland er frábært,
stutt í veiðilönd og áhugaverð göngusvæði og aðstaða til
sjósports er engu lík.Veðursæld er mikil á Ísafirði og lognkyrrð
algeng. Flugsamgöngur eru tvisvar á dag til Reykjavíkur.
Lagermaður óskast.
Karl K. Karlsson heildverslun óskar eftir lagermanni.
Leitað er að röskum og jákvæðum aðila.
Þarf að geta byrjað strax. Vinnutími frá kl. 08-17:00.
Umsóknir sendist á david@karlsson.is
8.is
Grafískur hönnuður !
ALLRA ÁTTA | SÍMI 588 8885 | WWW.8.IS | 8@8.IS
Um er að ræða ýmis spennandi og skemmtileg
verkefni. Hönnun á vefsíðum, auglýsingum,
bæklingum og öðru auglýsingaefni!
Æskilegt að viðkomandi hafi gott vald á
Photoshop, Illustrator, Freehand og flash!
ÁHUGASAMIR SENDIÐ TÖLVUPÓST Á NETFANGIÐ 8@8.is
Duglegan starfskraft á besta aldri
óskast til að elda morgunmat, vinnutími
05:30 til 12:00, 15 daga vaktir. Einnig vantar
aðstoð í sal og kaffihús, hlutastarf 15 daga vaktir.
Upplýsingar á Hótel Reykjavík Centrum eða í
síma: 514-6000
Looking for a hard working older lady
as a breakfast chef, from 05:30 to 12:00,
15 day shifts. Information at the Hotel Reykjavik
Centrum or tele: 514-6000.
Utanhúsklæðing
Óska eftir mönnum til að klæða utan atvinnuhúsnæði
á vestanverðu Snæfellsnesi. Tilboð eða tímavinna.
Báruál ca 900 m2
Flísar ca 800m2
Húsnæði og fæði á staðnum. Verkið getur hafist strax.
Upplýsingar veittar í síma 896-2676
Sigurður Örn Sigurgeirsson eða husmot@mi.is
HVENÆR ER LÁN LÁN?
Hádegisfundur í Háskólanum í Reykjavík
Laga- og viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík standa fyrir hádegis-
fundi mánudaginn 20. mars 2006 kl. 11:50 - 13:00 í stofu 101 í
Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, undir yfirskriftinni:
Hvenær er lán lán?
Tilefni: Nýfallinn dómur héraðsdóms Reykjavíkur í „Baugsmálinu“.
Áslaug Björgvinsdóttir dósent við lagadeild HR og Stefán Svavarsson
dósent og forstöðumaður MSc náms við viðskiptadeild HR fjalla um
hugtakið lán í skilningi ársreikningalaga vegna nýfallins héraðsdóms
í „Baugsmálinu“. Umræður að lokinni framsögu.
Fundurinn er opinn öllum.
Ársfundur
Eftirlaunasjóður starfsmanna
Útvegsbanka Íslands.
Boðar til ársfundar mánudaginn 3. apríl 2006. kl. 17:15
á Grand Hótel, Háteigi (4. hæð).
Dagskrá
Skýrsla stjórnar
Önnur hefðbundin ársfundarmál.
Allir sjóðsfélagar, eiga rétt á setu á ársfundi með mál-
frelsi og tillögurétti. Sjóðsfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin