Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 14
 19. mars 2006 SUNNUDAGUR14 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. ARTHUR JAMES BALFOUR (1848-1930) LÉST ÞENNAN DAG „Ég fyrirgef aldrei, heldur gleymi alltaf.“ Balfour var forsætisráðherra Bretlands og lofaði Gyðingum heimalandi í Palestínu með Balfour-yfirlýsingunni 1917. Þennan dag árið 1831 var Edward Smith fyrsti maðurinn í sögu Bandaríkjanna til að ræna banka. Smith var enskur innflytjandi sem vantaði skjótunninn gróða. Bankinn sem varð fyrir barðinu á honum hét The City Bank og var við Wall Street en forsvarsmenn bankans söknuðu eðlilega mjög 245.000 dollaranna sem Smith hafði á brott með sér. Ræninginn lék þó ekki lausum hala lengi og var handsamaður af lögreglunni stuttu eftir ránið. Stærstum hluta peninganna var því skilað aftur í fjárhirslur bankans en Smith fékk að dúsa í fimm ár við erfiðisvinnu í Sing Sing-fangelsinu fyrir vikið. Smith tilheyrir því stærstum hluta ræningja sem fetað hafa í fótspor hans en einungis einn af hverjum sex bankaræn- ingjum kemst undan án þess að mál hans sé upplýst. Óhætt er að segja að Smith hafi opnað flóðgáttir en síðan honum mistókst hafa margir menn, stórir og smáir, reynt fyrir sér í bankaránum. Engar opinberar tölur eru til um fjölda bankarána í heiminum en til viðmiðunar er talið að á hverju ári séu gerð um þrjú þúsund bankarán í Los Angeles-borg einni saman. ÞETTA GERÐIST >19. MARS 1831 Fyrsti bankaræninginn gerir áhlaup MERKISATBURÐIR 1908 Bríet Bjarnhéðinsdóttir tekur til máls á bæjar- stjórnarfundi í Reykjavík, fyrst kvenna. Tillaga hennar um að lagt verði fé til sundkennslu stúlkna er samþykkt. 1915 Reikistjarnan Plútó er ljósmynduð í fyrsta sinn. 1922 Leikfélag Reykjavíkur heldur upp á þrjú hundruð ára afmæli Frakkans Molière með hátíðarsýningunni „Ímyndunarveikin“. 1971 Tollstöðvarhúsið í Reykjavík er tekið í notkun með viðhöfn enda er húsið um fjörutíu þúsund rúmmetrar að stærð. 2003 Ráðist er inn í Írak af herliði Bandaríkjamanna og staðföstum bandamönnum þeirra. Mikill fjöldi Skaftfellinga kemur saman í Breiðholtskirkju í dag. Tilefn- ið er svokölluð Skaftfellingamessa sem er hugarsmíð séra Gísla Jónasson- ar sóknarprests í Breiðholtskirkju en hugmyndin með henni er að hóa saman Skaftfellingum, brottfluttum sem aðfluttum, í eina stóra messu. „Þetta er gamall draumur minn að rætast,“ segir séra Gísli sem hefur borið hugmyndina að Skaftfellinga- messunni í maganum í þónokkurn tíma. Hann þjónaði í Vík í tæp sex ár og svo skemmtilega vill til að hinn presturinn sem þjónar í Breiðholts- kirkju, séra Bryndís Malla Elídóttir, var prestur á Kirkjubæjarklaustri. „Við Bryndís hrintum síðan hugmynd- inni í framkvæmd, höfðum samband við söfnuðina fyrir austan og alla presta sem hafa þjónað þar.“ Þótt allir prestarnir hafi ekki séð sér fært að mæta fengu Gísli og Bryndís fimm presta til liðs við sig sem koma til með að þjóna með þeim við messuna. Prestarnir eru langt frá því að vera það eina skaftfellska við messuna þar sem tónlistarflutningur verður í hönd- um Söngfélags Skaftfellinga sem syng- ur ásamt meðlimum úr kirkjukórum Kirkjubæjarklausturs- og Víkurpresta- kalla. Organistarnir koma einnig að austan en fá liðstyrk frá Keith Reid organista í Breiðholtskirkju. „Þegar messan er búin ætlum við hafa kaffi á eftir þar sem kórinn mun halda áfram að syngja,“ segir Gísli. „Messan og kaffið eru eiginlega hugsuð sem dálítil hátíð fyrir Skaftfellinga,“ segir hann og bætir við að hann vonist til að þetta verði ekki í eina sinnið sem Skaftfell- ingamessa er haldin í Reykjavík. „Ég sæi gjarnan að þetta væri reglulegt en það er ekkert búið að móta það. Svo væri hægt að sjá fyrir sér að það væri farið austur og haldnar hátíðir. Þótt messan sé að þessu sinni bund- in við vestursýsluna má segja að starf Skaftfellinga utan Reykjavíkur sé alveg sérstakt. „Ég var að heyra í konu sem hafði verið í Rangæingakórnum sem var mjög öfundsjúk yfir því hvað Skaftellingarnir eru duglegir að skipu- leggja uppákomur,“ segir Gísli og hlær. Reyndar er Gísli sjálfur ekki fæddur í Skaftafellssýslu en bjó þar þegar hann var ungur. „Ég er nú bara fæddur í Reykjavík eins og hálf þjóðin en átti heima í Vík í níu ár þegar pabbi minn var prestur þar.“ Hann segir að vel hafi verið tekið á móti honum þegar hann sneri aftur til Víkur, þá orðinn prestur sjálfur, enda séu Skaftfelling- ar gott fólk fólk. „Við eigum enn mikið af vinum í Vík,“ bætir hann við. Óhætt er að hvetja Skaftfellinga til að fjölmenna í messuna, sem hefst klukkan 14. SÉRA GÍSLI JÓNASSON: SKAFTFELLINGAMESSA Í BREIÐHOLTSKIRKJU Gamall draumur rætist SÉRA GÍSLI JÓNASSON Var prestur í Vík í Mýrdal og skipuleggur Skaftfellingamessu ásamt starfssystur sinni, séra Bryndísi Möllu Elídóttur, sem þjónaði í Kirkjubæjarklaustursprestakalli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI AFMÆLI Jakobína Hólm- fríður Árnadóttir heilsusálfræðingur er 29 ára. Valgerður Matthí- asdóttir (Vala Matt) arkitekt og sjónvarpskona er 53 ára. Leoncia India Martin (Leoncie) söngkona er 53 ára. Friðrik Pálsson hótelhaldari er 59 ára. Sigurður Björns- son óperusöngvari er 74 ára. Sindri Páll Kjart- ansson kvikmynda- gerðarmaður er 31 árs. Björgólfur Thor Björgólfsson umbreytingafjár- festir er 39 ára. Gunnar Helgi Kristinsson prófessor við HÍ er 48 ára. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty Inter- national er 52 ára. Blokkflautukennarafélag Íslands hélt á dögunum mót blokkflautuleikara í Tónlistar- skóla Hafnarfjarðar. Vaxandi áhugi er á þessu merka hljóð- færi og heppnaðist mótið vel í alla staði. Um sextíu blokkflautu- leikarar á öllum aldri tóku þátt í mótinu og leikið var á allar fjórar tegundir blokk- flautna, sópran-, alt-, tenór- og bassablokkflautur. Fyrir hádegi æfðu yngri nemendur samspil í hópum en eftir hádegi fengu reyndari spilarar að spreyta sig á flóknari verkum frá endur- reisnar- og barokktímanum ásamt samtímatónlist eftir fjölmarga höfunda. Einnig hélt Helga Sighvats- dóttir fyrirlestur um sam- hengi myndlistar og tónlistar og í lok dagsins léku tuttugu og fimm þátttakendur saman á blokkflautur sínar. Blokk- flautuleikararnir fóru glaðir heim og vegna þess hversu vel mótið heppnaðist er stefnt að því að gera það að árlegum viðburði hér eftir. Blokkflautur koma saman BLOKKFLAUTUMÓT Í HAFNARFIRÐI Um sextíu blokkflautuleikarar á öllum aldri tóku þátt í mótinu og leikið var á allar fjórar tegundir blokkflautna, sópran-, alt-, tenór- og bassablokkflautur. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurbjörn Ólafsson rafeindavirkjameistari, Gullsmára 7, Kópavogi, lést á hjartadeild Landspítalans fimmtudaginn 9. mars. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 20. mars kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélag Oddfellow- reglunnar, stúku nr. 1 Ingólfs I.O.O.F. sími 562 2850. Arnar Sigurbjörnsson Sigrún Sverrisdóttir Rafn Sigurbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sigurður Zophaníasson Borgarheiði 16, Hveragerði, andaðist 6. mars sl. á Sjúkrahúsi Suðurlands. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðfinna Hannesdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.