Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI 45% 60% *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í janúar 2006. Íslendingar 18-49 ára Meðallestur Fr é tt a b la › i› Fr é tt a b la › i› M b l. M b l. Sími: 550 5000 SUNNUDAGUR 19. mars 2006 — 77. tölublað — 6. árgangur ���� ���� ����������������� ����� � ����� ������ ������������ �������� ������������������������������������������������������������������������������������������������������������ ��� ������������� ��� ����������������� �������������� ��� ���� ����������� ��� ��������������� ���� ��������� ������� ���������������������������������������������������������������������������������������� ALLT ATVINNA Stútfullt blað af at- vinnuauglýsingum Atvinna Í MIÐJU BLAÐSINS ÍSLANDSBANKI OG 7 DÓTTURFYRIRTÆKI OG STARFSSTÖÐVAR SAMEINAST UNDIR EINU NAFNI 1+7=1 TÓNLIST · TÖLVULEIK IR · DVD OPIÐ 11-19 ALLA DAGA! FRÁ 199,- LAGERSALA SENU FELLSMÚLA 28 (GAMLA WORLD CLASS HÚSINU) ...GERÐU BESTU KAUPIN INGÓLFUR GUÐBRANDSSON Kennir Íslendingum að ferðast með stæl Á alveg eftir að kynnast Mið-Asíu FÓLK 38 Elvar Gunnarsson Kvikmyndagerðar- maðurinn er kominn með sína eigin mynd- bandaleigu og segir það draumastarf. FÓLK 38 KÓLNANDI Í dag verður yfirleitt hæg norðlæg átt, en bætir þó í vind á Vestfjörðum þegar líður á daginn. Bjart með köflum syðra en snjó- eða slydduél norðan og austan til. Hiti 5-8 stig syðra en 0-3 stig á landinu norðanverðu. VEÐUR 4 VEÐRIÐ Í DAG � � � � � Silvía Nótt er fyndin Eiður Smári Guðjohnsen svarar spurningum lesenda Fréttablaðs- ins og Vísis í dag. Þar kemur margt áhugavert fram enda viðtalið ólíkt öðrum viðtölum sem Eiður fer í dags daglega. ÍÞRÓTTIR 32-33 VIÐSKIPTI Félagsbústaðir hafa undirritað kaupsamning um kaup á átján hótelíbúðum við Höfðabakka í Reykjavík fyrir 158 milljónir króna. Þar sem íbúðirnar höfðu áður verið seldar öðrum og samn- ingurinn þinglýstur en ekki efndur hafa kaupin þó ekki gengið eftir. Félagsbústaðir hafa gefið út stefnu til að afmá kauptilboðið van- efnda úr þinglýsingarbókum og stefnt seljanda til að gefa út afsal fyrir eigninni. Þröstur Ólafsson, formaður bústaðanna, segir íbúðirnar átján ætlaðar fólki sem sé í miklum erfiðleikum, jafnvel á götunni. Kaupsamningurinn hafi verið undirritaður 18. desember. Málið hafi því verið í kyrrstöðu í þrjá mánuði. - gag / sjá síðu 6 Breyta hótelíbúðum í heimili: Samningurinn ekki í höfn Á GÖTUNNI Breyta á átján hótelíbúðum við Höfðabakka í heimili fyrir heimilislausa og aðra í miklum kröggum, verði hægt að ganga frá kaupum á húsnæðinu. Hnattvæðing ekki sjálfgefin Aukin spenna fer ekki vel saman við friðsamlega verslun og viðskipti, segir Illugi Gunnarsson. Í DAG 12 Afsprengi arkitekts „Fólk fær oftast óstöðvandi hlátursköst í nokkrar mínútur eftir sprengingarnar.“ HELGAREFNI 18-19 GRÓÐURFAR Þrátt fyrir að gróður sé víða farinn að taka við sér eftir hlý- indi síðustu daga og vikur víða um land telur Borgþór Magnússon plöntuvistfræðingur litla hættu á ferð þótt fram undan sé frostakafli samkvæmt spám veðurfræðinga. Segir Borgþór að trjágróður og runnar eigi enn aðeins í land og hættan sé því að mestu bundin við vorlauka og slíkar jurtir sem farnar eru að taka við sér víða á sunnan- verðu landinu. „Eitthvað mun eflaust skemmast en það er lítið farið að laufgast enn sem komið er og hættan er ekki mikil meðan svo er. Sama gildir um skordýr, þau eru ekkert farin að láta að sér kveða og því ólíklegt að þau verði illa úti þó að nú komi kaldur kafli.“ Borgþór segir þá mildu vetur sem verið hafa á landinu síðustu árin hafa haft talsvert áhrif á gróðurfar og náttúru landsins. „Ef fram heldur sem horfir er gósentíð fram undan hvað gróðurinn snertir. Það hefur verið mikil framför í úthagagróðri á undanförnum árum. Bæði er það vegna minni beitar en hlýindi síðustu vetra hafa mikil áhrif. Frost í jörð hefur verið tiltölu- lega lítið og gróður eflst gríðarlega mjög víða. Haldi fram sem horfir megum við eiga von um umfangs- meiri breytingar á gróðurfari hér á landi en við höfum upplifað áður; meiri grósku og víðar og ofar í fjöll- um en áður hefur þekkst.“ - aöe Frost fram undan um land allt eftir hlýindi undanfarinna daga: Gróðurinn er ekki í hættu GRÓSKA Í GRÓÐRINUM Þótt víða sé gróður að taka við sér á láglendi telur Borgþór Magnússon plöntuvistfræðingur ekki ástæðu til að hafa áhyggjur. Kuldakast eða hret hafi ekki mikil áhrif á þessum árstíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÁSTRALÍA, AP Ástralskar nektar- dansmeyjar unnu markverðan vinnulöggjafarsigur á dögunum. Þær mega nú taka sér matar- og kaffihlé eftir að þær hafa berhátt- að sig á sviðinu. Stjórnvöld í land- inu samþykktu vinnulöggjöfina á föstudag. „Við höfum nú rétt á að fá greidda yfirvinnu þegar við vinn- um á helgidögum, sem við höfum aldrei fengið áður,“ sagði Mystical Melody, talskona verkalýðsfélags ástralskra nektardansara. „Við megum ekki vinna lengur en tíu tíma vaktir.“ Dansararnir fá nú yfirvinnu greidda, eiga rétt á hvíldar- og mat- artímum og fá greidd barnseignar- frí. - smk Ástralskir nektardansarar: Fá rétt til að fara í mat VARNARLIÐIÐ Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir ríkisstjórn- ina verða að fá skýra mynd af því hvernig bandarísk stjórnvöld hyggist tryggja varnir Íslands án veru Varnarliðsins á landinu áður en teknar séu ákvarðanir um hvort rétt sé að rifta varnarsamningnum frá árinu 1951. „Ef engar varnir eru þá verður varnarsamningurinn ansi tilgangs- laus, þannig að við viljum að þetta komi skýrt fram nú næstu vikur og mánuði,“ segir Halldór. Forysta Samfylkingarinnar telur nauðsynlegt að láta reyna á það hjá Atlantshafsbandalaginu hvort Bandaríkjamenn hafi brotið varnarsamninginn með einhliða og að margra mati harkalegri og ódiplómatískri ákvörðun sinni um brotthvarf hersins. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr- verandi utanríkisráðherra, sagði efnislega í Laugardagsþætti Ríkis- útvarpsins í gær að hann saknaði nú Davíðs Oddssonar og yfirlýs- inga um að ef Bandaríkjamenn hirtu ekki lengur um sýnilegar varnir jafngilti það uppsögn samn- ingsins. Jón Baldvin kvaðst þessu sammála og því gætu Bandaríkja- menn bara hypjað sig. Halldór segir að hann hafi grun- að að Bandaríkjamenn myndu draga herliðið burt. Hann hafi því ll. nóv- ember sagt í ræðu á miðstjórnar- fundi Framsóknarflokksins að Íslendingar myndu aldrei neyða herinn til að vera hér vildu Banda- ríkjamenn það ekki. „En ég átti satt best að segja von á því að það gerð- ist í þessum samningaviðræðum og með öðrum hætti en nú hefur gerst. Ég var einfaldlega að segja að það er mikilvægt fyrir okkur að vita þetta. Nú vitum við þetta og þá förum við að vinna út frá því.“ Hvort það verði álver eða aðrar lausnir vill Halldór ekki nefna en segir brotthvarf Varnarliðsins hugs- anlega geta réttlætt sértækar og tímabundnar aðgerðir í atvinnumál- um á Suðurnesjum. - jh / sjá síðu 16 Halldór grunaði að herinn myndi fara Halldór Ásgrímsson segir að verji Bandaríkjaher ekki landið sé varnarsamn- ingur þjóðanna tilgangslaus. Bandarísk stjórnvöld verði að skýra hvernig þau hyggist verja landið herlaust á næstu vikum og mánuðum. UNGIR OG UPPRENNANDI TÓNLISTARMENN Á AFMÆLISTÓNLEIKUM Skólahljómsveitirnar í Reykjavík héldu upp á fimmtíu ára afmæli sitt í gær með tónleikum í Háskólabíói þar sem fjöldi barna kom fram og leikið var af innlifun á hvert hljóðfæri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.