Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 25
ERTU GEIM?
C C P L E I T A R A Ð S T A R F S F Ó L K I
CCP er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu og áskriftarsölu á stafrænni afþreyingu gegnum Internetið. CCP var stofnsett
1997 og fyrsta vara fyrirtækisins er leikurinn EVE-Online. CCP óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
Umsjón með starfsumsóknum hafa Hilmar G. Hjaltason (hilmar@img.is) og Hildur Sif Arnardóttir
(hildursif@img.is) hjá Mannafli-Liðsauka. Umsóknarfrestur er til og með 28. mars nk. Með umsóknum
skal fylgja ferilskrá. Umsækjendur sæki um störfin á heimasíðu Mannafls-Liðsauka, www.mannafl.is
GAGNAGRUNNSKERFISSTJÓRI
Starfið felst í rekstri á gagnagrunnum. CCP rekur stóran gagnagrunn undir tölvuleiknum EVE-Online, auk gagnagrunna
til prófunar og fyrir innri þróun. Allir gagnagrunnarnir eru Microsoft SQL Server 2000 og 2005.
Hæfniskröfur:
• Umfangsmikil þekking á gagnagrunnum og reynsla af Microsoft SQL Server
• Geta talað, lesið og skrifað góða ensku. Vera samviskusamur, skipulagður og með hæfileika í mannlegum samskiptum
MARKAÐSSTJÓRI - EVRÓPA
Starfið felst í yfirumsjón með markaðsstarfi í Evrópu fyrir tölvuleikinn EVE-Online ástamt umsjón með almannatengslum
í Evrópu og þróun nýrra markaða í Evrópu.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af markaðs- og kynningarstarfi og reynsla af samskiptum við erlenda aðila
• Góð enskukunnátta, bæði tal- og ritmál. Þýsku og frönskukunnátta er kostur
• Góð tölvukunnátta og þekking á samningagerð. Þarf að geta starfað sjálfstætt og í hóp
KERFISSTJÓRI/NETSTJÓRI
Starfið felst í uppsetningu og rekstri upplýsingakerfa CCP og EVE-Online með sérstakri áherslu á netrekstur.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Framúrskarandi þekking og mikil reynsla af netbúnaði. Góð þekking á BGP, SLB og öðrum Internet stöðlum
• Haldbær þekking á MS Windows Server umhverfi. Cisco CCNA eða sambærileg gráða er skilyrði
• Góð enskukunnátta, bæði tal- og ritmál. Kostur ef viðkomandi hefur einhverja reynslu af tölvuleiknum EVE-Online
UPPLÝSINGAFRÆÐINGUR/VEFFORRITARI
Starfið felst í að annast innra upplýsingakerfi fyrirtækisins. Í þessu felst bæði tæknileg umsýsla, þ.e. rekstur og viðbætur
við kerfið, ásamt því að annast skipulag á upplýsingunum í kerfinu og almenn ritstjórn. Að grunni til er upplýsingarkerfið
svo kallað "Wiki" kerfi og þar fer öll grunnhönnun CCP á leikjum fyrirtæksins fram.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Menntun á sviði bókasafnsfræði, upplýsingatækni eða vefvinnslu æskileg. Góð enskukunnátta, bæði tal- og ritmál
• Reynsla af vef umsýslu eða uppsetningu, t.d. heimasíðugerð með HTML, CSS, PHP, JavaScript
VEFFORRITARI
Starfið felst í hönnun og útfærslu á vefum og kerfum tengdum tölvuleikjum fyrirtækisins í krefjandi umhverfi.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Framúrskarandi þekking á HTML, CSS, ASP / ASP.NET og JavaScript . BSc próf í tölvunarfræði er kostur
• Góð þekking á T-SQL og almennum gagnagrunnsfræðum. Þekking á Python og Ajax er kostur
• Góð enskukunnátta, bæði tal og ritmál. Kostur ef að viðkomandi hefur einhverja reynslu af tölvuleiknum EVE-Online
ATVINNA
SUNNUDAGUR 19. mars 2006 5