Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 74
SUNNUDAGUR 19. mars 2006
FÓTBOLTI Langþráður draumur
enska ungstirnisins Wayne Rooney
rættist á dögunum þegar hann hitti
sjálfan Mike Tyson og snæddi með
honum kvöldverð.
Rooney þótti efnilegur boxari
áður en hann sneri sér alfarið að
boltanum og hann hefur lengi litið
upp til Tysons. Þeir hittust í einka-
sal á veitingahúsi í Manchester og
sátu saman, snæddu og ræddu
málin í tvo tíma og ku hafa farið
ákaflega vel á með þessum tveim
skaphundum.
Fundur þeirra átti að eiga sér
stað fyrir ári síðan en datt upp fyrir.
Upprunalega ástæðan fyrir fundin-
um var sú að Tyson ætlaði að kenna
Rooney að hemja skap sitt á vellin-
um, eins ótrúlega og það hljómar.
Ástæðan fyrir veru Tysons í
Manchester var sú að hann var að
dæma svokallaðan búrbardaga eða
„cage fight“. - hbg
Sérkennilegur atburður á veitingahúsi í Manchester:
Rooney snæddi kvöld-
verð með Mike Tyson
MJÚKUR MAÐUR Tyson segist vera að mild-
ast með árunum og sést hér kyssa hvíta
dúfu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Hörður Sveinsson er
svo sannarlega að fara vel af
stað með Silkeborg í dönsku
úrvalsdeildinni en í gær skoraði
hann bæði mörk liðsins í óvænt-
um 2-0 sigri á meistaraliðinu
Bröndby. Hörður hefur þar með
skorað fjögur mörk í tveimur
fyrstu leikjum sínum fyrir félag-
ið en um síðustu helgi skoraði
hann einnig tvö mörk í 3-2 sigri á
Viborg.
Fyrra mark Harðar í gær kom
snemma leiks en það síðara undir
lok fyrri hálfleiksins með skalla,
og hann var að sjálfsögðu valinn
maður leiksins. Stuðningsmenn
Silkeborg eru himinlifandi með
byrjunina hjá Herði og klöppuðu
honum lof í lófa eftir leikinn í
gær. Liðið er í sjöunda sæti deild-
arinnar með 26 stig eftir 22
leiki.
Bjarni Ólafur Eiríksson er
einnig að standa sig vel með
Silkeborg en hann lék allan leik-
inn gegn Bröndby í vinstri bak-
verðinum líkt og hann gerði gegn
Viborg um síðustu helgi.
- egm
Hörður Sveins heldur áfram að skora í Danmörku:
Tvö mörk í óvænt-
um sigri á Bröndby
FÓTBOLTI Bræðurnir Ólafur og Teit-
ur Þórðarsynir mættu með lið sín í
Egilshöllina í gær þegar ÍA og KR
léku í deildabikarnum. Leikurinn
var athyglisverður fyrir margra
hluta sakir en úrslitin urðu 2-1
fyrir Skagamenn. Þórður Guð-
jónsson kom ÍA yfir í leiknum en
hann lék á miðjunni á meðan
Bjarni bróðir hans var í hlutverki
miðvarðar í vörninni.
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði
Skagamanna til margra ára, er
kominn í Vesturbæinn og bar
fyrirliðabandið gegn sínum fyrr-
um samherjum í gær. Hann fisk-
aði vítaspyrnu í leiknum en úr
henni skoraði Bjarnólfur Lárus-
son og jafnaði metin í 1-1, sem var
staðan í hálfleik. Snemma í seinni
hálfleik fékk Sigmundur Kristj-
ánsson rautt fyrir að tækla Igor
Pesic og Skagamenn léku einum
fleiri út leiktímann.
Það var síðan Ellert Jón Björns-
son sem skoraði sigurmarkið í
leiknum. Gaman var að sjá Arnar
Gunnlaugsson leika með ÍA gegn
KR í þessum leik en hann var í
byrjunarliðinu. Þá kom varnar-
maðurinn Árni Thor Guðmunds-
son inn á sem varamaður í sínum
fyrsta leik fyrir Skagamenn síðan
hann var keyptur frá HK. KR-
ingar hafa þar með tapað öllum
þremur leikjum sínum í deildabik-
arnum til þessa en lið ÍA er með
ellefu stig eftir sína fimm leiki.
ÍA bar sigurorð af KR í deildabikarleik í Egilshöllinni:
Merkilegur leikur
LÉKU VEL Bræðurnir Bjarni og Þórður Guðjónssynir léku vel í gær en Þórður skoraði fyrsta
mark leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BRÆÐUR AÐ BERJAST Þjálfararnir og bræðurnir Ólafur og Teitur Þórðarsynir mættust í
Egilshöllinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM